Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Kosið í Eþíópíu og EM í fótbolta
    Í fyrri hluta þáttarins fjöllum við uim kosningar í afríkuríkinu Eþíópíu. Í kosningunum, sem hófust í dag, verður kosið bæði til héraðsstjórna og landsþings. Þingið kýs síðan forsætisráðherra, sem fer fyrir ríkisstjórn landsins, og forseta, sem hefur lítil sem engin völd. Þetta eru fyrstu kosningar í Eþíópíu frá 2015 og jafnframt þær fyrstu frá því að forsætisráðherrann Abiy Ahmed komst til valda árið 2018. Búist er við að Velmegunarflokkur forsætisráðherrans fái meirihluta atkvæða í kosningunum og geti því haldið áfram um stjórnartaumana.
    Evrópumót karla í fótbolta - EM allstaðar - er nú í fullum gangi og lýkur riðlakeppni mótsins á miðvikudag. Mótið hefur verið hin mesta skemmtun og spennan er mikil um hvaða lið komast áfram í sextán liða úrslit. Edda Sif Pálsdóttir íþróttafréttamaður lítur við í síðari hluta þátarins og ræðir við okkur um mótið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Áhrifavaldar og sögulegur fundur Bidens og Pútín
    Í fyrri hluta þáttarins hlýðum við á örskýringu vikunnar, um áhrifavalda. Orðið áhrifavaldur hefur verið meira og meira á milli tannanna á fólki á síðustu árum hér á landi. Hvers vegna? Jú, vegna þess að hér býr jú fjöldinn allur af áhrifavöldum, samfélagsmiðlastjörnum sem græða á tá og fingri á því að segja frá sér og sínu lífi. En það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera áhrifavaldur enda fylgja því ýmsar kvaðir, meðal annars þær að greina skýrt og skilmerkilega frá því hvenær auglýsendur greiða fyrir þjónustu þeirra. Í örskýringum sínum leitast Atli Fannar Bjarkason við að útskýra flókin fyrirbæri á einfaldan hátt. Hvað er áhrifavaldur?
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um samskipti Rússa og Bandaríkjanna síðustu ár, leiðtogafund þeirra Joe Bidens Bandaríkjaforseta og Vladimírs Pútín Rússlandsforseta, sem haldinn var í Genf í Sviss á miðvikudaginn. Frá því Ronald Reagan Bandaríkjaforseti og Mikhaíl Gorbtasjev leiðtogi Sovétríkjanna hittust á sögulegum fundi í Genf árið 1985 - og svo ári síðar í Höfða í Reykjavík - hafa leiðtogafundir Bandaríkjanna og Rússlands verið hátt í tuttugu. Fundur þeirra Bidens og Pútíns var haldinn á víðsjárverðum tímum. Samskipti Bandaríkjanna og Rússlands hafa ekki verið verri í áratugi, jafnvel verri nú en á löngum tímabilum á meðan kalda stríðið varði. Síðustu ár hefur nefnilega gengið á ýmsu.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Stjórarnarskrárfrumvörp og hvað tekur við eftir Netanyahu?
    Við hefjum Hádegið í dag í Ísrael. Langri og strangri stjórnartíð Benjamíns Netanyahus lauk á sunnudagskvöldið. Netanyahy hefur gegnt embætti forsætisráðherra Ísraels í fimmtán ár, þar af samfellt síðust tólf ár. Eftir harðar deilur samþykktu þingmenn á ísraelska þinginu, Knesset, nýja stjórn - stjórn sem skipuð er átta flokkum sem eiga fátt sameiginlegt annað en viljann til að steypa Netanyahu af stóli. Stjórnarkreppa hefur lengi ríkt í Ísrael og Ísraelar hafa kosið fjórum sinnum á tveimur árum. Og jú - forsætisráðherrann þaulsætni er farinn - en hvaða þýðingu hefur það? Boðar ný stjórn betri og bjartari tíma fyrir Ísrael þar sem stjórnarkreppa hefur lengi ríkt.
    Í síðari hluta þáttarins ætlum við að ræða um stjórnarskrána. Í ársbyrjun lagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fram stjórnarskrárfrumvarp - í eigin nafni - og sagðist þá bjartsýn á Alþingi tækist að afgreiða frumvarpið fyrir þinglok. Það gekk ekki eftir og ef við lítum yfir söguna, ætti það ekki að koma á óvart, þar sem forsætisráðherrar sem gera slíkt hafa hingað til ekki haft erindi sem erfiði. Brynjólfur Þór Guðmundsson fréttamaður, sest niður með okkur og ræðir þessu mál.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • G7-fundurinn og á að sýna mann berjast fyrir lífi sínu í beinni ?
    Við byrjum í Kornbretalandi, þar sem ráðstefna G7-ríkjanna var haldin yfir helgina - en fundi þessara leiðtoga sjö stærstu iðnríkja heims: Bandaríkjanna, Bretlands, Frakklands, Ítalíu, Japans, Kanada og Þýskalands - lauk í gær með pompi og prakt. En hvað varð úr? Verður stóryrðum leiðtoganna hrint í framkvæmd? Urðu veigamiklar ákvarðanir teknar? Hver verða sum sé áhrif og afdrif ráðstefnunnar?
    Christian Eriksen leikmaður danska karlalandsliðsins í fótbolta er á batavegi eftir að hafa farið í hjartastopp í leik Danmerkur og Finnlands á Evrópumótinu í fótbolta á laugardag. Eriksen var milli heims og helju um tíma og milljónir manna út um allan heim horfðu á þennan knattspyrnusnilling berjast fyrir lífi sínu í beinni útsendingu. Guðmundur Björn ræðir í síðari hluta þáttarins við Kristjönu Arnarsdóttur, íþróttafréttamann, um hvað gerðist á laugardaginn og hvers vegna í ósköpunum þetta var allt saman sýnt í sjónvarpi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Örskýring um bóluefni og NATÓ fundar í Brussel
    Atli Fannar tekur fyrir málefni líðandi stundar - í dag er það málefnið - bólusetningar við veirunni sem veldur Covid-19. Hvað er átt við með virkni bóluefnis? Er virkni góður mælikvarði á bóluefnin? Af hverju ætti fólk að þiggja bólusetningu? Af hverju þiggur sumt fólk ekki bólusetningu? Og af hverju mætti aðeins helmingur þeirra sem fékk boð í bólusetningu með bóluefni Janssen í Laugardalshöll í gær?
    Fundur leiðtoga sjö af stærstu iðnríkjum heims ? G7 ríkjanna svokölluðu - hefst í dag í Cornwall-héraði á Suður-Englandi, líkt og við fjölluðum um í Hádeginu í gær. Meðal fundarmanna er Joe Biden Bandaríkjaforseti sem - strax að ráðstefnunni lokinni - heldur beint á í leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Brussel. Okkar maður þar, Sveinn Helgason, rýnir í helstu viðfangsefni NATO-leiðtoganna og ræðir við Kristine Berzina, sérfræðingi um alþjóða- og öryggismál.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rannsókn á árásinni í þinghúsið og Mladic áfram í lífstíðarfangelsi
    Veigamiklir öryggisbrestir urðu í aðdraganda árásarinnar á þinghúsið í Washington 6. janúar síðastliðinn: Lögreglan við þinghúsið var algjörlega óundirbúin, bandarísk lögregluyfirvöld hunsuðu veigamiklar vísbendingar og aðrar mikilvægar upplýsingar náðu aldrei réttum eyrum. Öryggisbrestirnir áttu stóran þátt í því að það fór sem fór þennan örlagaríka dag. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýútgefinni 127 blaðsíðna skýrslu Bandaríkjaþings um árásina.
    Áfrýjunardómstóll Sameinuðu þjóðanna staðfesti dóm Stríðsglæpadómstólsins fyrir fyrrum Júgóslavíu um ævilangt fangelsi yfir Ratko Mladic, fyrrverandi æðsta yfirmanni í her Bosníu-Serba í gær. Mladic var sakfelldur árið 2017 fyrir stríðsglæpi og þjóðarmorð í Júgóslavíustríðinu á tíunda áratug síðustu aldar. Sannað þótti að hann hefði staðið fyrir umsátri um Sarajevóborg og fjöldamorði í Srebrenica árið 1995 þegar á níunda þúsund drengir og fullorðnir karlmenn voru teknir af lífi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Eldhúsdagsumræður og staðgöngumæðrun
    Hér áður fyrr var talað um að gera sér eldhúsdag, og var sá dagur nýttur til þes að gera hreint í eldhúsinu sem og í öðrum vistarverum, og ganga frá ýmsu dregist hafði að koma fyrir. Áður þingstörfum er frestað, er líka eldhúsdagur, og hann var í gær. Þar var farið yfir stefnu ríkisstjórarinnar, fjármál og störf Alþingis. Semsagt, farið yfir eitt og annað sem þarf að gera, eða hefur lent útundan. Þessar umræður fóru fram í þremur lotum, hver flokkur fékk átta mínútur í fyrstu umferð og fimm mínútur í annari og þriðju umferð. Þingmönnum var tíðræðtt um óvissu í efnahagsmálum, spillinug og aukinn vanda í heilbrigðiskerfinu. Við skulum heyra það helsta sem þíngmönnum lá á hjarta í gær - við komumst þó ekki lengra en í fyrstu umferð hér.
    Við höldum áfram þaðan sem frá var horfið í Hádeginu á föstudaginn og fjöllum um barneignir og mannréttindi í seinni hluta þáttarins. Í þetta sinn ræðir Davíð Þór Björgvinsson, dómari við Landsrétt og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, við okkur um staðgöngumæðrun - löggjöf þess efnis hér á landi og viðhorfin og hagsmunina sem liggja þar að baki.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Alþjóðlegur lágmarkstekjuskattur og engin Naomi Osaka á Opna franska
    Við hefjum Hádegið í dag á stórum vendingum helgarinnar í alþjóðlegum skattamálum, hvorki meira né minna. Fjármálaráðherrar sjö stærstu iðnríkja heims - G7 ríkjanna svokölluðu: Kanada, Frakklands, Ítalíu, Japans, Bandaríkjanna, Bretlands og Þýskalands - gerðu með sér sögulegt samkomulag sem kveður á um að leggja eigi fimmtán prósenta alþjóðlegan lágmarksskatt á tekjur fyrirtækja. Þar að auki eiga fyrirtæki að greiða skatta í því landi sem þau afla tekna í - því landi sem þau selja vörur sínar eða þjónustu.
    Ein skærasta tennisstjarna heims, Naomi Osaka, er ekki meðal þátttakanda á Opna Franska meistaramótinu í tennis sem stendur nú yfir í París. Ástæðan er sú að tennisfólki er skylt að ræða við blaðamenn að leikjum loknum, og það kærir Osaka sig ekki um. Hún hefur glímt við þunglyndi og kvíða síðustu ár og segir það að neyða keppendur til að ræða við fjölmiðla eftir tapleik, jafngildi því að sparka í liggjandi mann. Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Eddu Sif Pálsdóttur um þessa ákvöðrun Osaka, og um andlega líðan íþróttafólks. Má segja hvað sem er við íþróttafólk?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Alræðisstjórnir sem svífast einskis, og Twitter
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkasonum samfélagsmiðilinn Twitter, vinsældir hans og hvers vegna miðilinn skipar sérstakan sess í þjóðfélagsumræðu Íslendinga - þótt mun fleiri Íslendingar séu á Facebook en á Twitter. Í örskýringum sínum tekur Atli Fannar fyrir menn og máliefni, misflókin, og kryfur þau til mergjar á ekkert alltof flókinn hátt. Hvað er Twitter?
    Í síðari hluta þáttarins bregðum við okkur til Brussel, en ætlum þó ekki að fjalla um Belgíu neitt sérstaklega. Okkar maður þar, Sveinn Helgason, fjallar í pistli sínum frá höfuðborg Evrópusambandsins um alræðisstjórnir, og ræðir við Nate Schenkkan, annan aðalhöfund skýrslu hugveitunnar Freedom House sem fjallar það hvernig alræðisstjórnir kúga og áreita andstæðinga sína - jafnvel þótt þeir hafi flúið heimaland sitt.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hvalreki í Jemen og fjöldamorðið í Tulsa
    Í fyrri hlta þáttarins fjöllum við um sannkallaðan, og bókstaflegan, hvalreka í Jemen, annars stærsta ríkis Arabíuskagans. Jemenar hafa haft yfir litlu að gleðjast síðustu ár. Í yfir sex ár hafa ein hörmulegustu og mannskæðustu átök tuttugustu og fyrstu aldarinnar átt sér stað á sunnanverðum Arabíuskaganum, en borgarastríðið í Jemen er stundum kallað gleymda stríðið, átök sem fallið hafa í skuggann á þeim hörmungum sem hafa átt sér stað í Sýrlandi á sama tíma. En hópur jemenskra sjómanna fann á dögunum 127 kíló af hvalambri í maga búrhvals á suðurstörnd landsins. Þeir eru nú auðugir menn, enda hvalambur æði verðmætt. Við ræðum við Eddu Elísabetu Magnúsdóttur, sjávarlíffræðing hjá Háskóla íslands, um þetta undraefni.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um fjöldamorðin í Tulsa, sem áttu sér stað fyrir hundrað árum í Tulsa í Oklahomaríki í Bandaríkjunum. Í maí 1921 myrti æstur múgur hvítra Bandaríkjamanna um þrjú hundruð svarta íbúa borgarinnar, kveiktu í heimilum og fyrirtækjum með þeim afleiðingum að um tíu þúsund misstu heimili sín og fjöldi fólks neyddist til að flýja heimabæinn sinn - margir til frambúðar. Við minnumst fjöldamorðanna í Tulsa í seinni hluta þáttarins og lítum á atburðarrásina í kjölfar þeirra - er búið að gera atburðina upp? Hver segir söguna í dag og hvernig?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…