Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Palestína, Ísrael og hvenær er stríð stríð?
    Í lokaþætti vikunnar fjöllum við átökin fyrir botni Miðjarðarhafs, en þetta er skrifað hafa hátt á annað hundrað Palestínumanna látist í árásum Ísrahelshers á Gasa-svæðinu. Þá hafa Hamas-samtökin svarað árásum Ísraela með sprengjuárásum á ísraelsku borgina Ashkelon.
    Í síðari hluta þáttarins ræðir Katrín við Ólaf Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, um skilgreininguna á stríði. Hvenær er stríð stríð - og hvenær er stríð eitthvað allt annað? Hvað gerir stríð að stríði?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Viðsnúningur kynferðisbrotamála í Landsrétti og hvað er NFT?
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um furðufyrirbærið NFT. Það er vitað mál að fólk sem hefur mikið á milli handanna sýnir stöðu sína með ýmiskonar hætti: Kaupir flotta bíla, villur og báta, merkjavöru og málverk eftir þekkta listamenn. Oftast eru þetta þá tiltölulega einstök verðmæti. Verðmæti sem enginn annar á - eða að minnsta kosti afar fáir - enginn annar getur fengið að njóta. Eina listaverk sinnar tegundar í þessum jarðneska heimi. Og gjarnan er það það sem réttlætir verðmiðann. En þó ekki alltaf - eins og sannast núna á þessari netöld. Nú getur hver milljónarmæringurinn sem er eignast netverk - til dæmis svokölluð gif, meme's, eða jörm, tvít og önnur netfyrirbæri Það er að segja, eignast verkin en þau halda þó samt áfram að vera í umferð á netinu. Þrátt fyrir háan verðmiða og dýrmæt kaup breytist ekkert. Eða hvað? Við tökum forskot á sæluna og fáum örskýringu frá Atla Fannari á miðvikudegi í þessari viku. Og í þetta sinn örskýrir hann þetta hugtak og fyrirbæri NFT.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Hildi Fjólu Antonsdóttur, doktor í réttarfélagsfræði. Sektardómar í kynferðisbroamálum eru mun líklegari að hljóta sýknu eða vera mildaðir í Landrétti, heldur dómar vegna ofbeldis- og fíkniefnabrota. Þetta kom fram í svari dómsmálaráðherra við fyrirspurn Andrés Inga Jónssonar, þingmanns Pírata, í síðustu viku; en Andrés hafði spurt hve oft Landsréttur hefði staðfest dóma héraðsdóms í fjórum málaflokkum - kynferðisbrotum, ofbeldisbrotum, fíkniefnabrotum og vændiskaupum - og hversu oft Landsréttur hefði snúið sekt í sýknu eða öfugt, og hversu oft dómar hefðu verið mildaðir eða þyngdir. Guðmundur Björn ræddi við Hildi Fjólu um þetta mál og segir hún að séu þessar tölur bornar saman við fyrri ár, og áður en Landsréttur var stofnaður, sé þetta vísbending um Landsréttur sé að breyta dómaframkvæmd í kynferðisbrotamálum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Átök í Landinu helga og skattaundanþágur
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um atburði síðustu daga í Ísrael og Palestínu. Ísraelsher sagðist í morgun hafa hæft hundrað og þrjátíu hernaðarlega mikilvæg skotmörk á Gaza í loftárásum í gærkvöldi og í nótt. Fimmtán vígamenn úr röðum Hamas hreyfingarinnar og vígasveita hafi jafnframt verið vegnir. Undanfarna daga og vikur hefur spennan aukist og meiri harka færst í átökin á milli Palestínumanna og Ísraelsmanna, meðal annars vegna landtökuáforma ísraelskra stjórnvalda.
    Gunnar Dofri Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsins Leitin að peningunum, heldur áfram að fræða okkur um skatta í heimilisfjármálum Hádegisins. Í síðari hluta þáttarins sinn tekur hann undanþágur og afslætti fyrir. Skattinn sem ekki þarf að borga.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Samkomutakmörkunum aflétt og ?vorbragur? íslenskrar knattspyrnu
    Í fyrri hluta Hádegisins förum við yfir stöðuna á kórónuveirufaraldrinum hér landi. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra kynnti nýjar tilslakanir í sóttvörnum á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn. Tilslakanirnar, sem eru í samræmi við minnisblað sóttvarnalæknis, tóku gildi á miðnætti og nýja reglugerðin á að gilda í rúmar tvær vikur.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um fótbolta, nánar tiltekið íslenskan fótbolta og hinn margrómaða ?vorbrag? sem einkennir íslenskan fótbolta á vorin. Ár eftir ár bjóða íslenskir fótboltamenn ekki upp á neitt sérstakan fótbolta, þegar íslenskt fótboltaáhugafólk hefur varið vetrinum í áhorf á léttleikandi Brasilíumenn og fótafima Spánverja. Af hverju kemur þetta okkur svona á óvart, á hverju ári? Stefán Pálsson, sagnfræðingur og áhugamaður um fótbolta, kíkti í heimsókn.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Afglæpavæðing neysluskammta og mörk tjáningarfrelsis
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason fyrirbærið neysluskammt, og hvað felst í afglæpavæðingu þeirra. Á Alþingi liggur fyrir frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta, þ.e. að gera það löglegt nota fíkniefni til heimabrúks. Verði það að lögum verður fólki ekki refsað fyrir eiga takmarkað magn af ákveðnum fíkniefnum. En þetta er flókið mál og hvað felst nákvæmlega í hugtakinu neysluskammtur kann að vefjast fyrir fólki. Í örskýringum sínum reynir Atli að útskýra flókin fyrirbæri og hugtök á sem einfaldastan máta.
    Í síðari hluta þáttarins fjallar Katrín um tjáningarfrelsi; hvað má segja? Hver má segja hvað og skiptir máli hvar það er sagt? Þetta er meðal þeirra spurninga sem Hæstiréttur Bandaríkjanna stendur nú frammi fyrir.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • SpaceX og peningaþvætti
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um vel heppnað tilraunaflug SN15 geimflaugar SpaceX, sem fram fór í Texas í Bandaríkjunum í gær. Elon Musk er forstjóri og stofnandi SpaceX, og hann ætlar sér stóra hluti á næstu árum. Gætu geimferðalög loksins orðið að veruleika fyrir almenning? Það vill Elon Musk meina.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Teit Má Sveinsson, lögfræðing og sérfræðing hjá dómsmálaráðuneytinu, um peningaþvætti. Hugtakið peningaþvætti skýtur reglulega upp kollinum - nú síðast í samhengi við norska bankann DNB. - En norska fjármálaeftirlitið sektaði bankann á dögunum um fjögur hundruð milljónir norskra króna, eða sem nemur um sex milljörðum íslenskra króna fyrir slælegt eftirlit með peningaþvætti. En hvað þýðir þetta nákvæmlega - peningaþvætti? Og hver er ábyrgð banka, fjármála- og fjártæknifyrirtækja hvað það varðar? Hvað felst í því að hafa eftirlit með peningaþvætti - og hvenær vaknar grunur um slíkt?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Áskoranir í nýju landi og nýtt málgagn Trumps
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um nýtt málgagn Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Fáir forsetar Bandaríkjanna, ef einhverjir, hafa verið jafn umdeildir Trump, sem lét af embætti í janúar síðastliðnum eftir fjögur stormasöm ár í Hvíta Húsinu. Eitt af því sem einkenndi stjórnartíð Trumps var notkun hans á samfélagsmiðlum, ekki síst á Twitter, sem Trump notaði óspart til að koma skilaboðum á framfæri til stuðningsmanna sinna og til þess að lasta pólitíska andstæðinga. Nú eða bara þá sem honum var illa við. Í janúar lokuðu allir stærstu samfélagsmiðlar heims á Trump, ákvörðun sem sitt sýndist hverjum um, en samfélagsmiðlarnir báru það fyrir sig að skilaboð Trumps væru ógn við lýðræðið og gætu haft alvarlegt ofbeldi í för með sér. En Trump deyr ekki ráðalaus, og nú hefur forsetinn fyrrverandi stofnað sinn eigin miðil.
    Í síðari hluta þáttarins bregðum við okkur til Brussel og heyrum í okkar manni þar, Sveini Helgasyni. Milljónir Sýrlendinga hafa flúið heimaland sitt vegna stríðsins sem þar hefur geisað í rúman áratug. Meðal þeirra er tónlistarmaðurinn og tónskáldið Bassel Abou Fakher sem búið hefur í Belgíu frá 2015. Sveinn Helgason ræðir við Bassel um hættulega bátsferð á úthafinu og áskoranir í nýju landi í seinni hluta Hádegisins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Narendra Modi í kröppun dansi og flækjustig skattheimtu
    Í fyrri hluta Hádegisins höldum við til Indlands. Þótt bólusetningar við kórónuveirunni sem veldur Covid-19 sjúkdómnum gangi vel víða á Vesturlöndum, er björninn hvergi nærri unninn. Víða gengur illa að verjast útbreiðslu veirunnar, þar á meðal á Indlandi, en í síðustu viku ræddum við um það skelfingarástand sem myndast hefur í landinu. Sjúkrahús eru yfirfull og líkbrennslustofur sömuleiðis. Ef eitthvað er, hefur staðan enn versnað á Indlandi í þessari viku, en yfir 20 milljón tilfelli kórónuveirunnar hafa greinst þar í landi. Forsetisráðherra Indlands sætir nú harðri gagnrýni í landinu eftir að önnur bylgja faraldursins skall á með miklum þunga, og þá beið flokkur hans ósigur í þingkosningum í einu lykilríki um helgina.
    Í síðari hluta þáttarins kemur Gunnar Dofri Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum, í heimsókn og fjallar að þessu sinni um skatta og heimilisfjármálin. Hver er munurinn á tekjuskatti, fjármagnstekjuskatti, fasteignagjöldum, þjónustugjöldum og virðisaukaskatti? Af hverju borgum við erfðaskatt og er allt eðlilegt við það? Er ekki hægt að einfalda þetta kerfi eitthvað?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Mannasiðir við gosstöðvar og komandi úrslitakeppnini í körfu
    Í fyrri hluta Hádegisins veltum við því fyrir okkur hvernig beri að haga sér við gosstöðvar. Fólk flykkist á gosstöðvarnar í Geldingadölum - eða þar sem áður voru dalir - að líta augum þetta undur sem gosið er. En hætturnar leynast víða, hraunið er óstöðugt, hitinn er gífurlegur, gasið alltumlykjandi á stundum. Hvernig högum við Íslendingar okkur við gosstöðvarnar? Hvað ber að varast? Hverju tekur fólk upp á? Við spurðum Boga Adolfsson, formann björgunarsveitarinnar Þorbjörns nánar út í það.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við efstu deildir karla og kvenna í körfubolta. Íþróttir fullorðina voru heimilaðar hér á landi á ný um miðjan síðasta mánuð. Um helgina hófst keppni í efstu deila karla í fótbolta, og úrslitakeppnir í handbolta og köfurbolta nálgast óðfluga. Keflvíkingar tryggðu sér deildarmeistaratitililnn hjá körlunum í síðustu viku, en hann skiptir víst litlu máli í köfubolta. Þar er það úrslitakeppnin sem öllu máli skiptir. Spennan á botninum er mikil, og svo gæti farið að fornir fjendur mætist í átta liða úrslitum. Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður umræðuþáttarins Körfuboltakvöld, er til viðtals.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Harmleikur í Ísrael og hvað ef ég vil ekki bóluefni AstraZeneca?
    Í hundraðasta þætti Hádegisins fjöllum við um harmleik í Ísrael, og reynum að fá svör við ósvöruðum spurningum um bóluefni AstraZeneca.
    Við byrjum í landinu helga. Minnst fjörutíu og fjórir létust og hundrað og fimmtíu slösuðust í troðningi í mannmergð á pílagrímsstað í norðanverðu Ísrael í nótt. Tugþúsundir gyðinga höfðu safnast þar saman til að fagna árlegri hátíð, Lag B'Omer.
    Yfir tuttugu þúsund manns voru bólusett með bóluefni AstraZeneca hér á landi í vikunni. Bóluefnið hefur verið talsvert í umræðunni síðustu vikur vegna hugsanlegrar hættu á blóðtappamyndunar í kjölfar bólusetningar með bóluefninu. Nokkuð hefur borið á því að fólk sé tregt til þess að þiggja bóluefni AstraZeneca. En hvað gerist ef þú neitar? Máttu velja um annað bóluefni eða verðurðu að þiggja það sem í boði er? Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Kamiluu Sigríðu Jósefsdóttur sóttvarnarlækni hjá embætti Landlæknis um ósvarðar spurningar, tengdum AstraZeneca.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…