Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Góða fólkið og jómfrúarávarp Bidens forseta til Bandaríkjaþings
    Í fyrri hluta Hádegisins er fyrirbærið ?góða fólkið? örskýrt. Hver eru góða fólkið? Ert þú hluti af því hlustandi góður? Og ef ekki, hvað ertu þá? Tilheyrirðu þá vonda fólkinu? Hugtakið góða fólkið hefur verið áberandi samfélagsumræðunni hér á landi síðustu ár. Einhverjir höfðu spáð því að það myndi fljótt deyja út, en virðist en lifa góðu lífi. Til að skilja góða fólkið betur, eða allavega hver þau eru, er við hæfi að njóta aðstoðar Atla Fannars Bjarkasonar. Örskýringar Atla Fannars eru vikulegur liður hér í Hádeginu, þar sem hann útskýrir flókin efni á einfaldan hátt.
    Í dag eru hundrað dagar frá því hinn sjötíu og níu ára gamli Joe Biden tók við embætti forseta Bandaríkja, og varð hann þá fertugasti og sjötti maðurinn til að gegna þessu valdamikla embætti. Þessu fyrstu hundrað dagar hafa verið viðburðaríkir fyrir nýja forsetann; hann tók við nokkuð erfiðu búi af fyrirrennara sínum Donald Trump; ekki það að í stjórnartíð Trump hafi efnahagsleg óstjórn verið raunin, því fer fjarri. Nei, það var kórónuveiran, útbreiðsla hennar og fylgifiskar, sem léku Bandaríkjamenn grátt á síðasta ári. Á síðasta ári létust yfir hálf milljón Bandaríkjamanna af völdum veirunnar, en virðist allt horfa til betri vegar. Bólusetningar ganga vel vestanhafs og á næstu mánuðum munu stjórnvöld verja milljöðrum dollarra til þess að byggja upp efnahags landsins að nýju. Þetta er meðal þess sem fram kom í ræðu Bidens á Bandaríkjaþingi í gær, þeirri fyrstu frá því hann tók við embætti forseta.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Boris í bobba og grískur Evrópuþingmaður handtekinn
    Þema Hádegisins í dag eru stjórnmálamenn í klandri, einn grískur og einn breskur.
    Boris Johnson forsætisráðherra Breta hefur átt nokkuð ánægjulegar vikur að baki eftir erfið síðustu misseri, sem einkenndust af útgöngu Breta úr Evrópusambandinu og baráttu stjórnvalda við að halda útbreiðslu kórónuveirunnar í skefjum í landinu, en lengi var ástandið æði slæmt á í Bretlandi. En nú horfir allt til betri vegar, Bretar hafa tryggt sér nóg af bóluefni - sumar segja á kostnað Evrópusambandsins - og ströngum sóttvarnaraðgerðum hefur verið aflétt. Bretar geta nú aftur farið á pöbbinn og í líkamsrækt, og með hækkandi sólu virðist hagur landsmanna nú óðum vænkast. En eins og litríkum stjórnmálamönnum er tamt virðist Boris Johnson erfitt að halda sig frá sviðsljósinu, og í vikunni komu upp atvik sem reynast heldur óheppileg fyrir forsætisráðherrann.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Belgíu. Belgíska lögreglan handsamaði gríska Evrópuþingmanninn Ioannis Lagos í gær - en alþjóðleg handtökuskipun hafði þegar verið gefin út. Þrettán ára fangelsisvist bíður þingmannsins í heimalandinu sem var handtekinn aðeins nokkrum klukkustundum eftir að Evrópuþingið svipti hann þinghelgi. Við skoðum málið nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Skuggahliðar heimilisfjármála og neyðarástand á Indlandi
    Í fyrra hluta Hádegisins fer Gunnar Dofri Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum og vikulegur gestur Hádegisins, áfram yfir fjármál para og hjóna. Skuggahliðar sambanda eru á dagskrá í dag, að fjármála-sambanda, er á dagskrá í dag.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Indlands. Algjört neyðarástand ríkir í þessu næst fjölmennasta ríki heims. Önnur bylgja kórónuveirufaraldursins leggst nú af fullum þunga á Indverja. Spítalar eru yfirfullir, og líkbrennsluhús sömuleiðis. Súrefniskútar og lyf eru af skornum skammti. Alþjóðasamfélagið leggur nú hendur á vogarskálar og í nótt bárust Indverjum um hundrað öndunarvélar og súrefnistæki. Þá hyggjast bretar senda níu þotur hlaðnar lækningavörum í vikunni. En betur má ef duga skal. Tæplega tvö hundruð þúsund manns hafa látist af völdum veirunnar í landinu og telja faraldfræðingar að sú tala hækki snarlega næstu vikurnar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Óvenjuleg Óskarsverðlaun og eignarhald fótboltaliða
    Í fyrri hluta Hádegsins fjöllum við um Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór í Bandaríkjunum í nótt. Eftir sem áður var Ísland í ákveðnum brennidepli - að minnsta kosti í augum okkar margra sem hér búa. Verðlaunaafhendingin reyndist söguleg - þar voru sögulegir sigrar - söguleg tískuslys - tískuafrek og sögulegar ræður.
    Umræðan um fjármál í fótboltaheiminum hefur verið mikil undanfarna daga eftir fréttir síðustu viku, þegar tólf evrópsk stórlið tilkynntu að þau ætluðu að stofna sérstaka Ofurdeild, deild sem myndi gera hina ríku í fótboltanum ríkari og hina fátæku fátækari. Eins og við höfum rætt um hér í Hádeginu þá féll fyrirhuguð ofurdeild ekki í kram stuðningsmanna liðanna og áður en vikan var á enda höfðu flest liðin dregið sig úr keppni. Bandarískar íþróttir og tekjumódel þeirra hafði mikil áhrif á eigendur liðanna, en fjögur af tólf liðum deildairnnar eru í eigu bandarískra fjárfesta og vogunarsjóða. Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamann, um eignarhald í knattspyrnuheiminum, og hvernig evrópskar íþróttir eru að verða að bandarískari og bandarískari, að minnsta kosti fjárhagslega.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ofurdeildin öll og siðferðislegar hliðar skuldasölu
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason Ofurdeild Evrópu, sem í upphafi vikunnar setti knattspyrnuheiminn í uppnám. Vikan er ekki liðin og svo virðist sem ekkert verði af deildinni, enda fengu eigendur liðanna tólf sem tilkynntu um þátttöku sína í deildinni að finna til tevatnsins. Atli Fannar örskýrir þetta forvitnilega mál, í sínum vikulega lið í Hádeginu.
    Eru skuldir óumflýjanlegur hluti lífsins? Erum við háð þeim? Eru þær af hinu góða eða illa - eða hvorki né. Við ræðum við Henrý Alexander Henrýsson heimspeking um þær siðferðilegu vangaveltur sem vakna þegar skuldir eru annars vegar í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Chauvin dæmdur og hungurverkfall Navalnys
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við nýlegan dóm yfir fyrrum lögreglumanninum Derek Chauvin, sem í gær var fundinn sekur um morðið á George Floyd í maí í fyrra.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Val Gunnarsson, sagnfræðing og sérfræðing í málefnum Rússlands, um stjórnarandstæðinginn Alexei Navalny. Navalny hefur verið í hungurverkafalli í í fangelsi skammt frá Moskvu frá því 31. mars. Heilsa hans hefur hrakað mjög og óttast er að hann gæti dáið á næstu dögum, en fyrr á þessu ári var Navalny dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að rjúfa skilorð. Fari svo að Navalny falli frá innan veggja fangelsins, er ljóst að Vladirmír Pútín Rússlandsforseti hefur losnað við sinn helsta pólitíska andstæðing. En það gæti haft alvarlegar afleiðingar fyrir framtíð Pútíns á forsetastóli - og framtíð Rússlands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fjármál hjóna og byssuglaðir Bandaríkjamenn
    Í fyrra hluta Hádegisins fer Gunnar Dofri Ólafsson, umsjónarmaður hlaðvarpsins Leitin að peningunum yfir fjármál para og hjóna. Er mikilvægt að pör séu samstíga um fjármálin og peningaákvarðanir? Hverju breytir það? Hvað svo ef samband endar?
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Bandaríkjanna. Mannskæðar skotárásir í Bandaríkjunum eru nærri daglegt brauð, það er gömul saga og ný. Hagsmunasamtök byssueigenda, NRA, standa vörð um rétt Bandaríkjamanna til að bera skotvopn, á meðan Bandaríkjaforseti segist nú ætla að gera allt sem í sínu valdi standi til að herða skotvopnalöggjöf þar í landinu. En það er óvíst hvort honum verði kápan úr því klæðinu. Við fjöllum um skotárásir og byssueign í Bandaríkjunum í síðari hluta þáttarins, en þetta er hápólitískt mál sem þarf að útkljá í sjálfri öldungadeild Bandaríkjaþings.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Harkalegt Covid-19 bakslag og umdeild ofurdeild
    Lengi virðist vont geta versnað - líkt og nýjustu Covid-19 vendingar sýna. Það er hópsýking í landinu, hópsýking sem getur hæglega breiðst út og orðið mikið stærri. Alls greindust 27 kórónuveirusmit innanlands í gær en ekkert við landamærin. Tvennt var ekki í sóttkví. Þrír eru á sjúkrahúsi, þar af einn í öndunarvél á gjörgæslu. Katrín og Guðmundur fjalla um nýjasta bakslagið í baráttunni við kórónuveiruna hér á landi í fyrri hluta Hádegisins.
    Fátt annað kemst að í bresku pressunni í dag en fótbolti, eða hin svokallaða ofurdeild Evrópu. Tilkynnt var um stofnun hennar í gær en sex af stærstu liðum Englands eru meðal þeirra tólf evrópsku stórliða sem verða í deildinni. En málið snýst víst um miklu meira en fótbolta. Ljóst er að bilið milli hinna ríku og fátæku í boltanum mun koma til með að aukast, og liðin færast fjær sínum upphaflegu rótum, stuðningsmönnunum heima fyrir. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og eru þessi stórlið sökuð um fordæmalausa grægði, á tímum þar sem heimsfaraldur hefur gert það að verkum að fjölmörg knattspyrnulið hafa ekki getað borgað leikmönnum og starfsmönnum laun. Við ræðum við Hauk Harðarson, íþróttafréttamann, um málið í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • International Crisis Group og er hægt að eyðileggja internetið?
    Í fyrri hluta Hádegisins veltir Katrín því fyrir sér hvort hægt sé að eyðileggja internetið? Til dæmis með því að sprengja það í loft upp? og - af hverju mögulega gæti einhver viljað gera það - viljað eyðileggja netið okkar góða? Við höldum til Bandaríkjanna.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Brussel. Stríð og hörmungar víða um heim njóta mismikillar athygli á alþjóðavísu. Gjarnan er töluverður aðdragandi að átökum en kastljósið beinist oft ekki að viðkomandi landi fyrr en allt er farið í bál og brand. Samtökin International Crisis Group fylgjast grannt með átakasvæðum um alla veröld og eru með höfuðstöðvar í Brussel. Okkar maður þar, Sveinn Helgason, ræðir við Ásdísi Ólafsdóttur yfirmann stafrænna miðla hjá samtökunum, um stöðuna í Myanamar og Eþíópíu og starfsemi International Crisis Group.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Onlyfans: áhyggju- eða fagnaðarefni?
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason samfélagsmiðilinn OnlyFans fyrir hlustendum. Tugir íslenskra kvenna, og einhverjir karlmenn, selja erótískar myndir af sér á samfélagsmiðlinum OnlyFans, og græða á tá og fingri. Á meðan Stígamót hafa lýst yfir áhyggjum af því að fleiri og fleiri íslendingar noti þennan miðil, virðast notendurnir sjálfir hæstánægðir. Í nýlegu viðtali í hlaðvarpsþættinum Eigin konur á VÍSI greindi Klara Sif Magnúsdóttir, 23 ára Akureyringur, frá því að hún hafi grætt fimmtán miljónir íslenskra króna á OnlyFans.
    Í síðari hluta þáttarins ræðum við um samfélagsmiðilinn OnlyFans við kynfræðinginn Sigríði Dögg Arnardóttur
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…