Í fyrri hluta þáttarins fjöllum við um þá ákvörðun Seðlabankans að hækka stýrivexti um 0,25%, en peningastefnunefnd bankans tilkynnti þetta í morgun. Þar er gefið út að ástæða hækkunarinnar sé mikil og viðvarandi verðbólga, en verðbólga mældist 4,6% samkvæmt spá greiningadeildar Íslandsbanka í apríl, og 4,4% í maí. Verðbólgumarkmið seðlabankans er 2,5 prósent. Vextir hafa verið í sögulegu lágmarki síðustu mánuði sem hefur skilað sér í lægri lánakjörum banka og annarra lánastofnanna til almennings. Konráð S. Gíslason, hagfræðingur og aðstoðarframkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, kemur í heimsókn til að ræða þessa ákvörðun og möguleg áhrif hennar á almenning.
Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um loftslagsmálin. Nýjar fréttir og rannsóknir sérfræðinga sýna að tuttugu risafyrirtæki framleiddu yfir helming af öllu plastrusli árið 2019, það er að segja, samtals framleiða þau um fimmtíu og fimm prósent þeirra hundrað og þrjátíu milljóna tonna af einnotaplasti sem hent var í ruslið - eða út í náttúruna. Þegar svona staðreyndir ber á borð, þegar hlutur risafyrirtækja virðist svo stór hvað loftslagsáhrifin varða - má þá spyrja - skiptir einhverju máli hvað ég geri í baráttunni gegn loftslagsvánni? Skiptir einkaframtakið máli? Gró Einarsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun á sviði loftslagsmála og græns samfélags og doktor í félagssálfræði, svarar því og meiru til í seinni hluta þáttarins.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.