Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Hitabylgja í Ameríku og Kanada
    Skæð hitabylgja herjar nú á Kanada og Bandaríkin, með tilheyrandi mannfalli og álagi á heilbrigðiskerfið, sem og önnur kerfi og innviði á borð við vatns- og rafmagnsveitur. Þá er bæði aukin hætta á gróðureldum sem og flóðum í hitanum, en yfir 180 gróðureldar loga í Kanada, þar sem hvert hitametið er slegið á eftir öðru. Hæst hefur hitinn mælst 49.6 gráður og þá í bænum Lytton í Bresku Kólumbíu. Bærinn brann nánast allur til kaldra kola í gróðureldum aðeins nokkrum dögum eftir nýja hitametið.
    Hádegið verður með sérstöku og styttra sumarsniði í júlímánuði.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hlutafjárútboð og ójöfnuður eykst milli ríkra á fátæka á Íslandi
    Við hefjum Hádegið í dag á örskýringu vikunnar, en í örskýringum sínum leitast Atli Fannar Bjarkason við að útskýra flókin hugtök og mál, á sem einfaldastan hátt. Hvað er hlutafjárútboð? Af hverju virðast allir - jafnvel ólíklegasta fólk - vera að fjárfesta í hlutabréfum um þessar mundir? Er það góð leið að skjótum gróða, eða er betra að geyma peninganna undir kodda?
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um ójöfnuð á Íslandi. Ójöfnuður og milli hinna ríku og fátæku hefur aukist á Íslandi síðustu ár, og er líklegur til að aukast enn frekar á næstu árum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sérfræðingahóps verkalýðshreifingarinnar um efnahagsleg áhrif kórónuveirufaraldursins. Hvort langtímaatvinnuleysi aukist og hvort þetta bil milli þeirra sem eiga og þeirra sem eiga ekki, fari minnkandi, er í höndum stjórnmálamanna og ákvarðanna þeirra. Guðmundur Björn rýndi í þessa nýútkomnu skýrslu og ræðir við Höllu Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra Alþýðusambands Íslands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • 100 ára afmæli Kommúnistaflokksins og ofbeldi presta í Póllandi
    Við byrjum Hádegið í dag í Kína, en verður mikið um dýrðir í Peking, höfuðborg Kína á morgun, þegar haldið verður upp á hundrað ára afmæli kínverska kommúnistaflokksins. Flokkurinn komst til valda við lok kínversku borgarastyrjaldarinnar 1949 og hefur haldið völdum æ síðan, þótt áherslur flokksins hafi breyst töluvert í tímana rás. Guðmundur Björn ræðir við Geir Sigurðsson, prófessor í kínverskum fræðum við Háskóla Íslands, um sögu þessa næst fjölmennasta stjórnmálaflokks heims.
    Mörg hundruð börn og ungmenni hafa verið misnotuð eða beitt kynferðislegu ofbeldi af hálfu presta kaþólsku kirkjunnar í Póllandi. Ný skýrsla á vegum kirkjunnar leiðir þetta í ljós. Við skoðum þetta mál í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf. Fréttaskýringar, samtöl og umræður um það sem er efst á baugi.
    58 min
  • Lyfjarisar fyrir rétt og stjórnarkreppa í Svíþjóð
    Við byrjum í Bandaríkjunum. Bandarískir lyfjarisar verða dregnir fyrir rétt í New York-ríki í dag. Fyrirtækin eru ásökuð um að hafa hvatt til og ýtt undir óhóflega sölu og notkun ópíóíða og þannig hrundið af stað ópíóíðafaraldri í Bandaríkjunum - faraldri sem braust út undir lok síðustu aldar og hefur dregið um hálfa milljón Bandaríkjamanna til dauða á síðustu tuttugu árum. Fjöldi fólks hefur leiðst út í notkun á sífellt sterkari ópíóíðum á borð við heróín og fentaníl.
    Í síðari hluta þáttarins förum við til Svíþjóðar. Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, sagði af sér í gær í kjölfar þess að Vinstriflokkurinn Venstrepartiet féll frá stuðningi sínum við minnihlutastjórn Jafnarmanna og Græningja. Löfven er þó hvergi af baki dottinn og freistar þess nú að fá stjórnarmyndunarumboð, en leiðtogar stjórnmálaflokkanna gegnu á fund Andreas Norlen, forseta sænska þingsins í morgun. Guðmundur Björn við Kára Gylfason, fréttaritara Ríkisútvarpsins í Svíþjóð, um stjórnarkreppuna í Svíþjóð - og stöðuna á Covid 19 þar í landi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Covid ekki dautt úr öllum æðum, og bikaræði í Þorlákshöfn
    Í fyrri hluta þáttarins ræðum við um útbreiðslu kórónuveirunnar í heiminum. Á meðan við hér á landi fögnum nýfengnu frelsi - afléttingu allra samkomutakmarkanna og blússandi gangi í bólusetningum - með því að fjölmenna í miðbæinn, kíkja út á lífið, jafnvel bóka ferðir út með nýjum flugfélögum eða gömlum - er ekki sömu sögu að segja víðast hvar annars staðar í þessum heimi. Nei, því þrátt fyrir að hægt hafi á útbreiðslu kórónuveirunnar á heimsvísu að undanförnu - færast áhyggjur af delta-afbrigði kórónuveirunnar í aukana. Afbrigðið - sem fyrst greindist í Indlandi undir lok síðasta árs og er talið meira smitandi en flest önnur afbrigði veirunnar - hefur greinst í að minnsta kosti níutíu og tveimur ríkjum - og breiðist hratt út, en smitum fer ört fjölgandi svo sem í Rússlandi, Ástralíu, Ísrael og í hluta Afríku. Ríki hafa því mörg hver þurft að grípa til neyðaraðgerða eftir tilslakanir.
    Þór frá Þorlákshöfn er Íslandsmeistari karla í körfubolta árið 2021, eftir frækinn sigur á Keflvíkingum á föstudagskvöld. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Þórsara og er einungis í þriðja sinn á síðustu fjörutíu árum að annað lið en Keflavík, Grindavík, Njarðvík eða KR hlýtur titilinn. En hvað skóp sigurinn og hvað gerir Ölfusinga svona góða? Guðmundur Björn ræðir við Sigurð Orra Kristjánsson, körfuboltaskríbent og ritstjóra Körfunnar.is, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Samkomutakmörkunum aflétt að fullu og grísk morðsaga
    Frá og með morgundeginum falla allar takmarkanir vegna kórónuveirunnar niður innanlands. Grímuskylda, fjöldatakmarkanir og nálægðartakmörk heyra því sögunni til.
    Þetta kom fram í máli Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra, á upplýsingafundi ríkisstjórnarinnar nú um klukkan 11:00. Þar með er lokið 15 mánaða tímabili með mismunandi ströngum samfélagslegum takmörkunum til að hefta smit og útbreiðslu COVID-19.
    Ung kona var myrt á heimili sínu í Grikklandi í byrjun maímánaðar. Eiginmaður hennar, sem lifði árásina af, lýsti því hvernig þrír menn brutust inn á heimili þeirra, bundu hann fastann, myrtu konuna hans og komust svo af vettvangi með háar fjárhæðir í reiðufé. En - við nánari skoðun á gögnum úr snjallsímum, öryggismyndavélum og snjallúrum - kom í ljós að ekki var allt sem sýndist. Við skoðum tæknina og tækniþróun og þýðingu hennar fyrir glæpi og glæpamenn tuttugustu og fyrstu aldarinnar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Flugfélög og flugþyrstir Íslendingar og Apple Daily hættir í Hong Kong
    Flugfélagið Play Air fer í sitt jómfrúarflug á morgun. Þá fer ferðamönnum fer ört fjölgandi hér landi með auknum afléttingum sóttvarna og samkomutakmarkana, og sólarþyrstir Íslendingar fara nú í auknum mæli út fyrir landssteinanna, eftir meira en ár af einangrun. Í morgun bárust svo fréttir af því að endurreisn WowAir sé enn í fullum gangi og flugfélagið hafi sótt um flugrekstrarleyfi til samgöngustofu. Guðmundur Björn fjallar um flugþyrsta Íslendinga í fyrri hluta Hádegisins, og ræðir meðal annars við sveiflukónginn Geirmund Valtýsson, sem hefur aldrei farið til útlanda.
    Í síðari hluta þáttarins heldur Katrín til Hong Kong. Dagblaðinu Apple Daily, eina fjölmiðlinum sem stutt hefur lýðræðishreyfinguna í Hong Kong af afli, hefur verið lokað. Lokunin kemur í kjölfar aðgerða stjórnvalda - áhlaupi á starfsstöðvar dagblaðsins, handtökur stjórnenda og starfsmanna þess og frystingu eigna félagsins. Aðaleigandi dagblaðsins, ritstjóri þess og framkvæmdarstjóri hafa verið ákærðir fyrir brot gegn tiltölulega nýsettum þjóðaröryggislögum kínverskra stjórnvalda. Þeir eru ásakaðir um samsæri gegn stjórnvöldum í Kína.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hörmungarhlaup í Kína og bóluefnaskortur þrátt fyrir fögur fyrirheit
    Við hefjum Hádegið í dag í Kína, þar sem einn banvænasti hlaupaviðburður sögunnar fór fram nýverið. 172 vongóðir hlauparar lögðu af stað í hundrað kílómetra utanvegahlaup í gegnum grýtt, skörðótt, hálægt fjallendi Gansu-héraðs í norðvesturhluta Kína laugardaginn tuttugasta og annan maí. 151 þeirra lifðu hlaupið af - 21 létust - eða einn af hverjum átta þáttakendum. Það eru um tvö þúsund maraþon haldin í Kína á ári hverju og sem betur fer eru svona fréttir ekki daglegt brauð - þannig maður hlýtur að spyrja - hvað gerðist einmitt þennan dag? Hvað fór úrskeiðis með þessum hræðilegu afleiðingum?
    Þótt um það bil 90 milljónir skammta af bóluefni við Covid 19 hafi verið dreift til hundrað þrjátíu og eins ríkis fyrir tilstilli Covax-áætlunarinnar svokölluðu, er nú mikill bóluefnaskortur í fjölda fátækari ríkja heims. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur þungar áhyggjur af stöðu mála. Guðmundur Björn ræðir við Birnu Þórarinsdóttur, framkvæmdastjóra UNICEF á Íslandi, um Covax áætlunina og bóluefnaskort í fátækari ríkjum heims, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…