Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Blóðtappar, bóluefni og morðið á Daunte Wright
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um dauða hins tvítuga Daunte Wright, en hann var skotinn til bana af lögreglu í Minnesota-ríki í Bandaríkjunum á sunnudag. Morðið á George Floyd síðasta vor er mörgum enn í fersku minni, en nú standa yfir réttarhöld yfir lögreglumanninum Derek Chauvin sem er ákærður fyrir hafa myrt Floyd þegar hann þrýsti hné sínu að hálsi Floyds í níu mínútur, með þeim afleiðingum að Floyd lést. Í kjölfarið brutust út gríðarleg mótmæli um gjörvöll Bandaríkin, mótmæli sem teygðu anga sína út um allan heim. Ofbeldi gegn svörtu fólki, og þá sér í lagi lögregluofbeldi, verði að linna - það var krafa mótmælenda. Á sunnudag bárust svo miður skemmtilegar fréttir frá Minnesota, þegar hinn tvítugi Daunte Wright, var skotinn til bana af lögreglu. Wright, líkt og Floyd, var svartur, og dauði Wright hefur dregið dilk á eftir sér.
    Í síðari hluta þáttarins ræðir Katrín við Magnús Gottfreðsson, prófessor í smitsjúkdómum við Háskóla Íslands og yfirlækni á Landspítalanum um þetta mál - blóðtappa og bóluefni, orsakir og afleiðingar. Í tveimur nýjum vísindagreinum er fjallað um sjúklinga sem fengu sjaldgæfa blóðtappa eftir fyrri sprautuna af bóluefni AstraZeneca, annars vegar í Þýskalandi og Austurríki og hins vegar í Noregi. Í Noregi létust þrír af þeim fimm sem fengu blóðtappa. Þá benda fyrstu tölur frá Bandaríkjunum til þess að blóðtappa-aukaverkun komi fram í einni af hverri milljón bólusetningu með bóluefni frá lyfjaframleiðandanum Janssen. Þar hafa að minnsta kosti sex alvarleg tilfelli greinst en alls hafa sex komma átta milljónir Bandaríkjamanna verið bólsettar með bóluefninu. Farsóttastofnun og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna vilja að hætt verði að nota bóluefni Janssen að sinni vegna mögulegra tengsla við blóðtappa. Hér á landi hefur verið ákveðið að konur yngri en fimmtíu og fimm ára skuli ekki fá bóluefni frá AstraZeneca þegar þær eru bólusettar við COVID-19 vegna hættu á blóðtappamyndun. Þá verður beðið með að nota bóluefnið frá Janssen þar til það liggur fyrir hvort einhver tengsl séu á milli bóluefnisins og blóðtappamyndunar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Bólusetningarskylda og árleg hlutfallstala kostnaðar
    Í fyrri hluta Hádegisins fer Gunnar Dofri Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum, yfir heimilisfjármálin. Í dag fjallar hann um árlega hlutfallstölu kostnaðar og mikilvægi þeirrar ágætu tölu.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við bólusetningar, og hvort hægt sé að skylda fólk til að þiggja þær.Margir telja lausnina við þessum leiðinda-heimsfaraldri felast í hinu títtnefnda hjarðónæmi. Þetta hjarðónæmi næst svo víst ekki nema að ákveðið stór hluti þjóðarinnar, um sextíu til áttatíu prósent, fái bólusetningu við veirunni. En - hvað gerist ef svo stór hluti þjóðarinnar kýs ekki að þiggja bólusetningu? Er þá hjarðónæminu stefnt í hættu? Geta stjórnvöld þá skyldað landann í bólusetningu? Má það? Katrín ber þetta forvitnalega álitaefni undir Halldóru Þorsteinsdóttur, héraðsdómara og lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Gullna borgin og fara íþróttir af stað í vikunni?
    Í fyrri hluta Hádegisins höldum við til Egyptalands. Þar hafa fornleifafræðingar nýlega uppgötvað forna borg - borg sem þeir kalla gullnu borgina - en hún er sögð vera frá gullaldarárum faraóa, eða fyrir um 3000 árum. Borgin er ein sú stærsta sem fundist hefur þar í landi frá tímabilinu og er fundurinn sagður vera einn sá merkilegasti í landinu síðan grafhýsi Tutankhamuns fannst.
    Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, um íþróttir á Íslandi á tímum kórónuveirunnar. Sóttvarnarlæknir reiknar með að skila minnisblaði til heilbrigðisráðherra í dag með tillögum að næstu skrefum varðandi aðgerðir innanlands. Ráðherra mun væntanlega kynna drög að nýrri reglugerð á ríkisstjórnarfundi á morgun. Stórhertar samkomutakmarkanir tóku gildi þann 24. mars til að reyna kæfa útbreiðslu hins svokalla ?breska afbrigðis? sem þá hafði gert vart við sig innanlands. Líkamsræktarstöðvum og sundlaugum var meðal annars lokað sem og krám. Þá hefur íþróttastarf alveg legið niðri. Við ræðum um áhrif kórónuveirufaraldursins á íþróttastarf hér á landi, og hvert framhaldið verður, farið svo að íþrótttaiðkun verði heimiluð á ný í vikunni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Solberg sektuð og réttarhöldin yfir Derek Chauvin
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um mál Ernu Solberg, forsætisráðherra Noregs. Solberg hélt upp á sextugsafmæli sitt í lok mars, í þrettán manna hópi, þrátttt fyrir að samkomubann miðaðist við tíu þar í landi. Hún þarf að greiða 20 þúsund norskar krónur í sekt fyrir að brjóta sóttvarnalög, jafnvirði um 300 þúsund íslenskra króna. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi norsku lögreglunnar í morgun. Við ræðum við Gísla Kristjánsson, fréttaritara RÚV í Ósló.
    Súrefnisleysi varð George Floyd að bana. Þetta sagði Martin Tobin, lungnalæknir, þegar hann bar vitni í réttarhöldunum gegn Derek Chauvin í gær. Chauvin, sem er fyrrverandi lögreglumaður, á yfir höfði sér allt að fjörutíu ára fangelsi verði hann sakfelldur fyrir morðið á George Floyd. Lögreglumaðurinn fyrrverandi, sem ætlaði ásamt samstarfsmönnum sínum að handtaka Floyd vegna gruns um að hann hefði greitt fyrir sígarettupakka með fölsuðum tuttugu dollara seðli, kraup yfir Floyd og þrýsti hné sínu að hálsi hans í níu mínútur og tuttugu og níu sekúndur með þeim afleiðingum að hann lést. Við förum yfir stöðuna á réttarhöldunum yfir Chauvin í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Drama hjá Alovgen og eldarnir á Reykjanesskaga
    Í fyrri hluta Hádegisins hlýðum við á örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar um deilur og drama í lyfjageiranum. Drama í lyfjageiranum hljómar eins og titill á lélegum reyfara, eða þaðan af verri sápuóperu, en deilur þeirra Roberts Wessmann, forstjóra og stjórnarformanns Alvogens og Halldórs Kristmanssonar, náins samstarfsmanns hans til margra ára - hafa vakið mikla athygli að undaförnu, og fara að mestu leyti fram í fjölmiðlum, að er virðist. Þetta er flókið mál og því við hæfi að hlýða á örskýringu um helstu vendingar í þessu máli. Hvað hefur gerst og hvað gerist næst, og það allt. Sjaldan veldur einn þá tveir deila, segir máltækið.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Salóme Jórunni Bernharðsdóttur, náttúruvársérfræðing á Veðurstofu Íslands, um eldhræringarnar á Reykjanesskaga, gasmengun og framtíðarhorfur.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jákvæðar horfur í Bandaríkjunum og hvað gerist í Landsrétti?
    Í fyrri hluta Hádegisins skoðum við stöðuna á bólusetningum í Bandaríkjunum, en þær ganga vonum framar. Þá rýnum við hagvaxtaspá Alþjóðagjaldeyrissjóðins.
    Á fimmtdag í síðustu tók umdeild reglugerð í gildi sem skikkaði alla komufarþega sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum að dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi milli fyrri og síðari sýnatöku, að þeim sem framvísa vottorði um fyrri sýkingu eða bólusetningarvottorði undanskildum. Nokkrir létu reyna á lögmæti skikkunarinnar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudag sem úrskurðaði að óheimilt hefði verið að þvinga fólkið til dvalar á sóttkvíarhótelinu. Ríkið hefur nú áfrýjað niðurstöðu Héraðsdóms til Landsréttar og viðbúiði er að Landsréttur taki málið fyrir og komist að niðurstöðu í dag. Við berum málið undir Ólaf Harðarson, prófessor í stjórnmálafræði, í seinni hluta Hádegisins. Getur verið að það hafi einhverjar stjórnmálalegar afleiðingar í för með sér?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ríkið áfrýjar og geta lán verið góð?
    Í fyrri hluta Hádegisins kíkjum við á heimilisfjármálin með Gunnari Dofra Ólafssyni, stjórnanda hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum. Í dag tekur hann lán - þann nánast óumflýjanlega fylgifisk lífsins - fyrir. Hvað eru góð lán og slæm - innan gæsalappa - og hvernig er hægt að greina á milli þeirra?
    Í síðari hluta þáttarins einblínum við á kórónuveiruna, og áhrif hennar á samfélög hér heima og erlendis. Á fimmtdag tók umdeild reglugerð í gildi sem skikkaði alla komufarþega sem koma frá skilgreindum áhættusvæðum að dvelja í sóttkví eða einangrun í sóttvarnahúsi milli fyrri og síðari sýnatöku. Undanskildir voru þeir sem framvísa vottorði um fyrri sýkingu eða bólusetningarvottorði. Fimm kærur voru lagðar fram í kjölfarið og þrjár þeirra voru svo teknar fyrir dóm í gær og Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði að ríkið mætti ekki skikka þá í sóttkví í sóttvarnahúsi sem kærðu dvölina. Kærurnar voru lagðar fram á þeim grundvelli að um ólöglega frelsissviptingu væri að ræða. Í gagnkröfu sóttvarnalæknis segir að það sé mat bæði hans og heilbrigðisráðherra að aðgerðin sé lögleg og gangi ekki lengra en nauðsynlegt er til að vernda lýðheilsu. Niðurstöðu Héraðsdóms hefur verið áfrýjað til Landsréttar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Tikanovskaja ákærð og belgískur þingmaður í hart við Kína
    Í fyrri hluta Hádegsins fjöllum við um mótmæli síðustu mánaða í Hvíta-Rússlandi, og stöðuna þar almennt. Svetlana Tikanovskaja, réttkjörinn forseti landsins, hefur verið ákærð á grundvelli hryðjuverkalaga - grunuð, samkvæmt hvít-rússneskum yfirvöldum um að skipuleggja sprengingar og íkveikjur í höfuðborginni og víðar í landinu fyrir nokkrum dögum. Nokkrir aðrir hafa einnig verið ákærðir, en nöfn þeirra voru ekki nefnd, hefur Deutsche Welle eftir tilkynningu frá embætti ríkissaksóknara í Hvíta-Rússlandi.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Belgíu. Bandaríkjastjórn telur að kúgun kínverskra stjórnvalda á Úígúr-múslímum í Xinjiang-héraði i norðurvesturhluta Kína jafngildi þjóðarmorði og hefur samþykkt refsiaðgerðir gegn kínverskum stjórnmála- og embættismönnum. Evrópusambandið hefur einnig gripið til refsiaðgerða. Sveinn Helgason í Brussel ræddi við þingmann Græningja á belgíska þinginu sem nú er kominn á svarta listann hjá ráðamönnum í Beijing eftir að hann lagði fram þingsályktunartillögu um að Belgía lýsi því yfir að ofsóknirnar á hendur Úígúrum megi skilgreina sem þjóðarmorð.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hong Kong að verða hluti af Kína og sniðug sparnaðrarráð
    Í fyrri hluta Hádegisins fjallar Gunnar Dofri Ólafsson, umsjónarmaður hlaðvarpsins Leitin að peningunum, um sparnaðarráð. Hvernig er best og - ekki síst auðveldast - að spara? Þurfum við að taka viljastyrk okkar og þrautseigju með í reikninginn? Er hægt að spara jafnvel með nánast án þess að hafa fyrir því?
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um stöðuna í Hong Kong. Kínverska þingið samþykkti í morgun umfangsmiklar breytingar á kosningakerfinu í Hong Kong og felast breytingarnar í því að færri þingmenn eru kjörnir af íbúum héraðsins, á meðan meirihluti þingmanna er valinn eftir gaumgæfilega athugun nefndar á vegum kínversku stjórnarinnar. Samskipti Kína og Hong Kong hafa verið stirð undanfarin ár og svo virðist sem sjálfstjórnarhéraðið Hong Kong sé hægt og bítandi að verða hluti af Kína, langt á undan áætlun.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Átökin harðna í Mjanmar og súrt fótboltapartí Íslendinga
    Í fyrri hluta þáttarins fjöllum við um nýjustu vendingar í asíuríkinu Mjanmar, en helgin var sú blóðugasta frá því herinn rændi þar völdum í landinu 1. febrúar síðastliðinn.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Armeníu og Ungverjalands. Það gengur hvorki né rekur hjá íslensku karlalandsliðunum í fótbolta. Fjórir tapleikir á fjórum dögum hjá A-landsliðinu og U-21 árs liðinu. Við slóum á þráðinn til Hauks Harðarsonar og Evu Bjarkar Benediktsdóttur, íþróttafréttamanna, en þau eru stödd í Armeníu og Ungverjalandi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…