Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Smass-borgarar og stóri fótboltadagurinn
    Í fyrri hluta Hádegisins er horfið frá umjöllun um kórónuveiru, eldgos og jarðskjálfta, og eyrum hlustenda beint að því sem kitlar bragðlaukanna. Að minnsta kosti þeirra sem eru kjötætur. Það er komið að vikulegri örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar, sem ætlar að segja okkur í dag hvers vegna hamborgari er ekki það sama og hamborgari. Eða ætti ég að segja smassborgari, en svokallaðir smassborgarar hafa verið töluvert í umræðunni að undanförnu. Gjörðu svo vel Atli Fannar.
    Í síðari hluta þáttarins sláum við á þráðinn til Þýskalands og Ungverjalands. Í dag er stór dagur fyrir íslenskan fótbolta. A landslið karla leikur sinn 500. landsleik frá upphafi þegar liðið mætir því þýska í Duisburg í fyrsta leik í undankeppni heimsmeistaramótsins í Katar. Rúmum tveimur tímum fyrr, eða eins og einum fótboltaleik fyrr, hefur U-21 árs landslið karla leik á lokakeppni Evrópumótsins í Ungverjalandi, en þar mætir liðið Rússum í fyrsta leik. Við ræðum við íþróttafréttamennina Hauk Harðarsson, sem er í Þýskalandi, og Evu Björk Benediktssdóttur í Ungverjalandi, um átökin framundan.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Áfram óbreyttir stýrivextir og heimur stafrænna stefnumóta
    Í fyrri hluta Hádegisins er rætt við Jón Bjarka Bentsson aðalhagfræðing Íslandsbanka, um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans um að halda stýrivöxtum áfram óbreyttum, eða í 0,75%. En hvað þýðir þetta fyrir heimilin í landinu, og hvað eru stýrivextir eiginlega?
    Paramiðlunarforrit, stefnumótaöpp, hjónabandsmiðlarar - allt eru þetta viðskiptamódel sem virðast blómstra um þessar mundir. En hvernig virka þessi forrit? Auka þau í alvöru líkurnar á því að finna ástina? Við komumst að því í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Enn ein Covid-bylgjan í Evrópu og séreignarsparnaður
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um stöðuna á Covid-19 í Evrópu. Aðeins einn greindist með kórónuveiruna hér á landi síðastliðinn sólarhring, og var sá í sóttkví. Þetta eru gleðifréttir en margir óttast þó enn að fjórða bylgja faraldursins sé í vændum. Á sunnudag greindust fimm með Covid-19, þar af þrír sem ekki voru í sóttkví. Staðan er ekki bara uggvænleg á Íslandi enda hefur kórónuveiran og ýmis afbrigði hennar blossað upp í Evrópu síðustu daga. Illa hefur gengið að bólusetja í ríkjum Evrópusambandsins og ljóst er að talsverður er spölur er eftir í báráttunni við þennan heimsfaraldur.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við í heimilisfjármálin með Gunnari Dofra Ólafssyni, stjórnanda hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum, vikulegum lið hér í hádeginu. Í þetta sinn eru séreignasparnaður, lífeyrismál og skattar á dagskrá. Hvernig virkar séreignarsparnaðurinn? Ætti maður að koma sér upp einum slíkum? Eru þetta ókeypis peningar, ef svo má að orði komast.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fimm ár frá hryðjuverkunum í Brussel og, er gasið úr gosinu hættulegt?
    Það er eldgosgos í Geldingadölum. Í eldgosi ber ýmislegt að varast - þar á meðal gasið sem streymir upp með gosinu. - En hvað er það nákvæmlega sem er varasamt við gasið? Er það hættulegt mönnum og dýrum, jafnvel landi og lífi? Andri Stefánsson, prófessor í jarðefnafræði við Háskóla Íslands, kann svör við því. Katrín ræðir við hann í fyrri hluta Hádegisins.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Brussel. Belgar minntust þess í morgun að fimm ár eru liðin frá hryðjverkaárásunum i Brussel 22. mars 2016 þar sem 32 voru myrtir og um 340 særðust. Þrír árásarmenn létu einnig lífið. Á seinni hluta þessa árs verður réttað yfir tíu sakborningum vegna hryðjuverkanna en samtökin sem kenna sig við Íslamska ríkið lýstu ábyrgðinnni á hendur sér. Sveinn Helgason í Brussel ræddi af þessu tilefni við belgískan sérfræðing um baráttuna gegn hryðjuverkum og heyrði líka í Brusselbúa um þennan örlagaríka dag fyrir fimm árum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Hin umdeilda dánaraðstoð og er rasismi í The Bachelor?
    Í fyrri hluta Hádegisins örskýrir Atli Fannar Bjarkason drama síðustu vikna í raunveruleikaþættinu The Bachelor, eða Piparsveinn, sem nýtur mikilla vinsælda hér heima og erlendis. Tuttugustu og fimmtu þáttarröðinni lauk nýlega. Það gekk á ýmsu við gerð þessarar þáttaraðar, þar sem bæði þáttarstjórnandinn og einn keppenda voru sökuð um kynþáttahatur. Þetta er flókið mál, og því við hæfi Atli taki nú við með sína vikulegu örskýringu, þar sem hann tekur fyrir flókin fyrirbæri og hugtök og útskýrir þau á einfaldan hátt. Í dag segir hann okkur frá rasisma og The Bachelor.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt um dánaraðstoð, sem stundum er kölluð líknardráp. Lög sem heimila dánaraðstoð voru staðfest á spænska þinginu í gær, og taka gildi í júní. Spánn verður þá eitt þeirra fáu ríkja sem heimila heilbrigðisstarfsfólki, og ættingjum þeirra sem vilja fá aðstoð við að deyja, að veita fólki dánaraðstoð. En hvað er dánaraðstoð g er vilji til að lögleiða hana hér á landi? Guðmundur Björn ræðir við Ástríði Stefánsdóttur, dósent í hagnýtri siðfræði við menntavísindasvið Háskóla Íslands, en Ástríður er bæði læknir og heimspekingur.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Heimilisofbeldi á tímum Covid og falskir fiskar
    Í fyrri hluta þáttarins er fjallað um heimilisofbeldi á tímum kórónuveirunnar.Tuttugu og fimm prósent fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi hafa borist til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu það sem af er þessu ári, en að meðaltali á sama tímabili síðustu þrjú ár. Frá þessu er greint í skýrslu lögreglunnar á höfuborgarsvæðinu fyrir síðasta mánuð, sem var birt í gær. Sjötíu og fimm tilkynningar bárust lögreglu um heimilisofbeldi í febrúar, en á sama tíma í fyrra voru þær fimmtíu og fjórar. Þessar tölur endurspegla stöðuna um heim allan á tímum heimsfaraldurs. Í nær öllum löndum virðist heimilisofbeldi hafa aukist frá því kórónuveiran fór að herja á heimsbyggðina, með tilheyrandi samkomubanni og aukinni heimaveru fólks. Rætt er við Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins.
    Í síðari hluta þáttarins skoðum við svikafiska. Getur þú verið viss um það, hlustandi góður, þegar þú gerir þér glaðan dag og ferð út að borða, að íslenski túnfiskurinn sem þú pantir þér á fína veitingastaðnum sé í raun og veru íslenskur. Nei, segja niðurstöður rannsókna breska blaðsins Guardian, en víðs vegar út um allan heim er fiskur á veitingastöðum, í verslunum og hjá fisksölum, seldur undir fölsku flaggi. Og þetta er sérstaklega algengt hér á Íslandi. Katrín Ásmundsdóttir ræðir við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna of fiska sem sigla, eða synda, undir fölsku flaggi, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Áhrif Covid-19 á börn, og nýjar upplýsingar um uppruna veirunnar
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um áhrif Covid-19 á börn, nánar tiltekið í suðurhluta Asíu. Rannsókn á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem var birt í morgun, sýnir svo ekki verður um villst að dauði hundraða þúsunda barna í Suður-Asíu tengist kórónuveirunni á einn eða annan hátt. Harðar sóttvarnaaðgerðir og matvælaskortur eru meðal ástæðna þess.
    Í síðari hluta þáttarins skoðum við uppruna veirunnar. Rúmt ár er síðan Alþjóðaheilbrigðisstofnunin lýsti yfir heimsfaraldri kórónuveiru, en veiran á eins og flestir vita upptök sín að rekja til borgarinnar Wuhan í Kína. Hinar og þessar kenningar eru uppi um hvernig þessa veira varð til, og hernig hún barst úr dýrum í menn. Nú hafa sérfræðingar á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar rannskað þetta, og það verður forvitnilegt að vita hvort þau komist að því?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Warren Buffett og áratugur af stríði í Sýrlandi
    í fyrri hluta þáttarins fjallar Gunnar Dofri Ólafsson, stjórnandi hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum og vikulegur gestur Hádegisins, um hlutabréf og fjárfestingar, fjárfestinga- og vísitölusjóði og Véfrétt Omaha.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um stríðið í Sýrlandi, sem hefur nú staðið yfir í áratug. Yfir þrjú hundruð og nítíu þúsund manns hafi látist í stríðsátökum í landinu síðastliðin tíu ár og milljónir Sýrlendinga hafa hrakist á vergang. En tekur þetta stríð enda í bráð? Rætt er við Magnús Þorkel Bernharðsson, prófessor í Mið-Austurlandafræðum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Enska kvennadeildin og morðið á Söruh Everard
    Í fyrri hluta Hádegisins höldum við í heim íþróttanna eins og alltaf á mánudögum. Á síðustu árum hefur kvennaknattspyrna notið aukinna vinsælda, ekki aðeins hér heima heldur líka á heimsvísu. Meira og meira fjármagn streymir inn í kvennaboltann og leikmenn seljast á háar fjárhæðir, ekki síst á Englandi. Guðmundur Björn kynnti sér ensku atvinnumannadeildina í kvennafótbotla og ræddi við Evu Björk Benediktsdóttur, íþróttafréttamann, um uppgang hennar.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um mál Söruh Everard, en síðast sást til hennar miðvikudagskvöldið þriðja mars. Hún hafði verið hjá vinafólki og var á leiðinni heim til sín í suðurhluta Lundúna. Breskur lögreglumaður hefur verið handtekinn og er sakaður um að hafa rænt Everard og myrt hana. Málið hefur vakið mikinn óhug í Bretlandi og fjöldi kvenna hefur stigið fram og greint frá því að þær sé óöruggar og hræddar þegar þær eru einar á ferð að kvöldlagi. Við fjöllum um málið og eftirköst þess í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ríkisfangsleysi ÍSIS-kvenna og Borgarlína
    Í fyrri hluta Hádegisins fjallar Atli Fannar Bjarkason um Borgarlínu í örskýringu vikunnar. Í byrjun febrúar var greint frá því að fyrstu áfangar Borgarlínu kosta um þrjátíu milljarða króna, og stefnt sé að því að fyrstu vagnar hennar leggi af stað eftir fjögur ár. Mikill hiti staðið um þessa gríðarstóru breytingu á samgöngumálum höfuðborgarsvæðinu alveg frá því drög að Borgarlínu voru kynnt upphaflega. Fólk skiptist í fylkingar, með eða á móti, stjórnmálafólk jafnt sem almenningur. En hvað er Borgarlína, hvað á hún eftir að kosta og hverju kemur hún til með að breyta? Í örskýringum sínum tekur Atli fyrir flókin fyrirbæri og hugtök og útskýrir þau á einfaldan hátt. Í dag segir hann okkur frá hinni mjög svo umdeildu borgarlínu.
    Í síðari hluta þáttarins förum við til Sýrlands. Frá því að Shamima Begum - sem fór á táningsaldri til Sýrlands og gekk til liðs við Íslamska ríkið - óskaði eftir að fá að snúa aftur heim til Bretlands - þar sem hún er fædd og uppalin, hefur mál hennar vakið mikla athygli og heitar umræður í Bretlandi. Sumir telja að sýna verði stöðu hennar skilning og hleypa henni aftur heim. Aðrir vilja afdráttarlausari útkomu: Að tekið verði fyrir möguleika fólks, sem stutt hafi erlend hryðjuverkasamtök, til að snúa aftur til landsins. Nú hefur hæstiréttur Bretlands tekið afstöðu í málinu: Shamima Begum á ekki afturkvæmt til Bretlands, - Hún hefur verið svipt breskum ríkisborgararétti og verið bannað að koma aftur. Begum dvelur nú í flóttamannabúðum í Sýrlandi - ríkisfangs- og réttindalaus. Katrín ræðir við Diljá Ragnarsdóttur lögfræðing um þetta margslungna og flókna mál í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…