Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Örskýrðir jarðskjálftar og Ragnar ?skjálfti"
    Jarðskjálftar eru fyrirferðamiklir í Hádeginu í dag. Í fyrri hluta þáttarins hlýðum við á örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar um jarðskjálfta. Einhverjir óttast jarðskjálfta, aðrir ekki. Þeir eru allavega raunveruleiki hér á Íslandi, eins og við fengum svo sannarlega að finna fyrir í gær. En hvað eru jarðskjálftar og hvernig orsakast þeir? Og af hverju eru þeir svona algengir á Íslandi? Einhverjir hlustendur telja sig vita svarið við þessu, en ekki öll okkar voru vakandi í jarðfræðitímunum í gamla daga - og því ekki úr vegi að hlýða nú á örskýringu, um jarðskjálfta. Í örskýringum sínum tekur Atli fyrir flókin fyrirbæri og hugtök og útskýrir þau á einfaldan hátt. Og það eru jarðskjálftar svo sannarlega.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Ragnar ?skjálfta? Stefánsson, jarðeðlisfræðing og jarðskjálftasérfræðing um jarðskjálfta í sögulegu samhengi hér á landi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Umhverfisráðherra of loftslagsmarkmiðin og þrautseigur jeppi á Mars
    Í fyrri hluta Hádegisins er rætt við Guðmund Inga Guðbrandsson, umhverfisráðherra, um markmið Íslands í loftslagsmálum. Stjórnvöld sendur nýferð frá sér uppfærð markmið Íslands í lofstlagsmálum til skrifstofu Loftslagssamnings Sameinuðu þjóðanna. En hvað felst í þessum nýju markmiðum og hverjar eru helstu áskoranir okkar á næstu árum í loftslagsmálum?
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Mars. Geimjeppinn Preserverance, eða Þrautsegja, lenti á Mars á fimmtudaginn. Við skoðum hvað jeppanum Percy, eins og hann er kallaður, er ætlað að gera á rauðu reikistjörnunni og hver tilgangur þessa tímafreka, umfangsmikla og flókna verkefnis er í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Að kaupa eða leigja og vald samfélagsmiðla
    Í fyrri hluta Hádegisins er rætt við Gunnar Dofra Ólafsson, vikulegan gest þáttarins, um hvort það sé betra að leigja húsnæði eða kaupa, og af hverju. Undanfarið hefur fasteignaverð farið hækkandi, og það helst í hendur við stýrivaxtalækkanir seðlabankans, meðal annars. Við höfum rætt við Gunnar Dofra um lækkun vaxta, og einnig um hlutdeildarlánin svokölluðu, en allt þetta auðveldar fólki að kaupa íbúð. Eða ætti að gera það allavega. Það er þó svo að það eru alls ekki allir sem geta kaupið íbúð, eða hreinlega vilja það. Hinn möguleikinn er þá leigumarkaðurinn, en á Íslandi er hann ansi erfiður, ólíkt því sem tíðkast í nágrannalöndum okkar þar sem margir kjósa af fúsum og frjálsum vilja að vera á leigumarkaði um ókomna tíð. En það er eitt og annað sem fylgir því að eiga og viðhalda húsnæði, og það kostar fúlgur fjár. Í dag spurjum við, er betra að kaupa húsnæði eða leigja, og hvers vegna?
    Í síðari hluta þáttarins ræðir Katrín við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefnder um vald samfélagsmiðla. Tæknirisarnir Google og Facebook hafa verið mikið í umræðunni að undanförnu í tengslum við tjáningarfrelsi og ritskoðun og hlutverk þeirra þar að lútandi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Vetarhörkur í Texas og Opna ástralska
    Í fyrri hluta Hádegisins höldum við til Texasríkis í Bandaríkjunum. Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir allsherjar neyðarástandi í Texas vegna óvenjumikillar vetrarhörku síðustu daga. Um sextíu eru látin og enn er fjöldi fólks án rafmagns og drykkjarvatns. Vetrarveðrið hefur haft víðtækar afleiðingar fyrir íbúa ríkisins.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Hauk Harðarson, íþróttafréttamann, um Opna ástralska meistaramótið í tennis, en því lauk um helgina. Naomi Osaka og Novak Djokovic unnu mótið. Mótið var hin mesta skemmtun, en aðalumræðuefnið að móti loknu er hvort ferill hinnar bandarísku Serenu Williams sé kominn að leiðarlokum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Facebook í slag við Ástralíu og uppbygging gagnavera á Íslandi
    Í fyrri hluta Hádegisins hlýðum við á örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar um deilur Facebook og ástralskra stjórnvalda. Facebook lokaði á deilingu frétta ástralskra fjölmiðla á samskiptamiðlinum í Ástralíu. Lokunin var sem sagt svar samfélagsmiðlarisans við boðaðri löggjöf sem kveður á um að Facebook, Google og sambærilegir miðlar þurfi að greiða áströlskum fjölmiðlum höfundarlaun fyrir birtingu á efni þeirra. En hvað hefur Facebook eiginlega á móti fjölmiðlum í Ástralíu? Gæti verið svipað í vændum annars staðar í heiminum? Jafnvel í Evrópu, já eða hér á litla Íslandi? Atli Fannar útskýrir málið betur í örskýringu sinni - vikulegum lið hér í Hádeginu þar sem hann tekur fyrir flókin fyrirbæri og hugtök og útskýrir þau á einfaldan hátt.
    Í síðari hluta þáttarins er fjallað um gagnaver. Þau hafa verið mikið í umræðunni að undaförnu, en fjöldi þeirra er starfræktur hér á landi. Þetta er umhverfivænn iðnaður, en mjög orkufrekur. Starfsemi eða hlutverk gagnavera er fjölbreytt, en meðal þess gagnaver sinna hér á landi er þjónusta við rafmyntir, þar á meðal Bitcoin. Sitt sýnist hverjum um hvort íslensk orka eigi að fara í það að skapa, það sem sumir kalla sýndarverðmæti. En gagnaver þjónusta ekki aðeins rafmyntir. Samtök iðnaðarins segja mikil tækifæri fólgin í uppbyggingu gagnavera hér á landi. Guðmundur Björn ræddi við Sigríði Mogensen, sviðsstjóra hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Belgískir barir og hvenær koma ferðamennirnir?
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um horfur í ferðaþjónustunni hér á landi. Frá og með morgundeginum þurfa allir komufarþegar á Keflavíkurflugvelli framvísi neikvæðu COVID-19 prófi fyrir komuna til landsins. Það má ekki vera eldra en þriggja sólarhringa gamalt. Íslendingum sem framvísa ekki vottorði verður ekki meinaður aðgangur inn í landið en geta átt von á sekt. Það má því ætla að einhver bið verði á komu ferðamanna hingað til lands, en íslensk ferðaþjónusta hefur verið í lamasessi síðustu mánuði. En mun ferðaþjónustan ná sínum fyrri styrk, og hverjar eru væntingar ferðaþjónustufyrirtækja um komandi sumar? Guðmundur Björn reæðir við Bjarnheiði Hallsdóttur, formann Samtaka ferðaþjónustunnar.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við til Brussel, höfuðborgar Belgíu og hjarta Evrópu. Það er hart í ári hjá veitingastöðum og börum í Brussel sem hafa verið lokaðir síðan í október vegna kórónuveirufaraldursins, til viðbótar við lokanir í fyrravor og fram á sumar. Veitingamenn reyna sumir að bjarga sér með því að bjóða heimsendingarþjónustu en flestir kvarta þeir sáran undan ástandinu. Þeir bíða þess að stjórnvöld aflétti hömlum sem settar voru til að sporna við útbreiðslu Kórónaveirunnar en vilja líka fá meiri aðstoð frá hinu opinbera vegna alvarlegrar rekstrarstöðu. Okkar maður í Brussel, Sveinn Helgason, heyrði hljóðið í viðskiptavinum og veitingamönnum í miðborginni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ngozi Okonjo-Iweala og fangelsuð prinsessa í Dúbaí
    Í fyrri hluta Hádegisins höldum við til Nígeríu. Nígeríski hagfræðingurinn Ngozi Okonjo-Iweala er nýr forstjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Okonjo-Iweala tekur við embættinu fyrsta mars og verður þá bæði fyrsti Afríkubúinn og fyrsta konan til að gegna þessu áhrifamikla embætti. En hver er þessi merkilega kona og hvað tekur við hjá henni í embætti?
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við Latifu, prinsessu af Sameinuðu arabísku furstadæmunum og dóttur Sjeiks Mohammed bin Rashid al Maktoum, leiðtoga landsins. Breska ríkisútvarpið, BBC, birti í gær í myndbönd sem sýna Latifu hvar hún greinir frá því að henni hafi verið haldið nauðugri í glæsivillu í Dúbaí. Málið er hið forvitnilegasta en um leið ógnvekjandi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • 50-30-20 og framtíð Rússlands eftir Navalny
    Í fyrri hluta þáttarins fjallar Gunnar Dofri Ólafsson um sparnaðarráð. Flest okkar kannast eflaust við að vilja gjarnan spara meira og eyða minna - og sumir kannast jafnvel við að spyrja sig hvert peningarnir fari eiginlega í lok mánaðar. En hvað er til ráða? Hvernig er skynsamlegast að ráðstafa tekjum sínum? Gunnar Dofri, umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum, fjallar um sparnað og hina svokölluðu fimmtíu-þrjátíu-tuttugu reglu í Heimilisfjármálum dagsins - vikulegum lið Hádegisins.
    Í síðari hluta þáttarins höldum við áfram að fjalla um rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalny. Réttarhöldum yfir Navalny, sem áttu að halda áfram í dag, hefur verið frestað fram á laugardag. Navalny, sem nýverið var dæmdur í tæplega þriggja ára fangelsi fyrir skilorðsbrot, er gefið að sök að hafa móðgað stríðsetju úr síðari heimsstyrjöld. Meðferð rússneskra stjórnvalda á Navalny og barátta hans fyrir lýðræðisumbótum í Rússlandi hefur ekki aðeins vakið heimsathygli, heldur einnig orðið til þess að fleiri og fleiri Rússar eru orðnir andsnúnir Pútín forseta. Guðmundur Björn ræðir við Jón Ólafsson prófessor við Háskóla Íslands, um hvaða áhrif Alexei Navalny og mál hans hefur haft á rússneskt samfélag.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Trump sýknaður og Ólympíuleikarnir í Tókýó
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um réttarhöldin yfir Donald Trump, en hann var um helgina sýknaður af ákæru um embættisglöp, öðru sinni. Til þess að sakfella forsetann hefðu tveir þriðju hlutar öldungadeildarþingmanna að greiða atkvæði með sakfellingu.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt við Einar Örn Jónsson, íþróttafréttamann, um Ólympíuleikanna í Tókýó, sem fara fram í sumar. Leikarnir áttu að fara fram síðasta sumar, en var frestað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Hvaða íslensku keppendur eru líklegir til að ná inn á leikanna? Einar Örn svarar því, og mörgu öðru.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Klámkóngurinn Larry Flint og Bitcoin
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um Larry Flynt, sem einna helst er þekktur fyrir að vera útgefandi klámblaðsins Hustler. Hann er látinn, 78 ára að aldri. Viðskiptaveldi hans er metið á allt að fimm-hundruð-milljónir bandaríkjadala. En hver var þessi maður? Hvað gerði hann? Fyrir hvað stóð hann - eða með öðrum orðum - af hverju er hann til umfjöllunar í fréttaþætti á Rás 1?
    Á dögunum keypti bandaríski rafbílaframleiðandinn Tesla andvirði eins komma hálfs milljarðs bandaríkjadollara, í rafmyntinni Bitcoin. Forstjóri og stofnandi Tesla, Elon Musk, hefur lengi talað fyrir kostum Bitcoin og hyggst Tesla bráðlega taka við greiðslum í rafmyntinni. EinNbitcoin er nú metin á rúmar fimm komma fimm milljónir króna. En hvað er bitcoin, og hvað er rafmynt? Kristján Ingi Mikaelsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Rafmyntaráðs Íslands, situr fyrir svörum um það og meira í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…