Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um nýjustu vendingar í Rússlandi. Stjórnarandstæðingurinn Alexei Navalny var handtekinn á dögunum við komuna til landsins, en degi síðar birtist myndband á YouTube rás Navalnys þar sem Vladimir Pútín Rússlandsforseti er sakaður um að eiga illa fengna glæsihöll við Svartahaf. Þúsundir mótmælenda og Navalnys hafa verið handtekin síðustu daga, en þar svífur nú andi breytinga yfir vötnum.
Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um mál Mölku Leifer, fyrrum skólastjóra í stúlknaskóla fyrir strangtrúaaða Gyðinga í Ástralíu. Leifer var fyrr í mánuðinum framseld frá Ísrael til Ástralíu, þar sem hún á yfir höfði sér 74 ákærur fyrir barnaníð, en hún er sökuð um að hafa beitt nemendur sína kynferðislegu ofbeldi á árunum 2003 til 2008. Hún flúði til Ísraels, heimalands síns, þegar ásakanir gegn henni litu dagsins ljós 2008 og hefur verið þar síðan og háð langa og flókna lagalega baráttu þar í landi um hvort, og þá hvenær, stæði til að hún yrði framseld til Ástralíu.
Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.