Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Aurskriður og jólunum frestað í Bretlandi
    Í fyrri hluta Hádegisins ræðir Katrín við Esther Hlíðar Jensen um aurskriður. Sérfræðingar hjá Veðurstofunni hafa, í kjölfar hörmulegra náttúruhamfara á Seyðisfirði, unnið hörðum höndum undanfarna daga, eðli málsins samkvæmt kannski. En hvað nákvæmlega eru aurskriður.
    Að loknum hádegisfréttum kemur Bogi Ágústsson til okkar og við ætlum að ræða um stöðuna í Bretlandi. Það styttist í áramót og ekkert bólar á viðskipstasamningi Breta og ESB, og allt stefnir í samingslausa útgöngu. Þá greindist nýtt afbrigði af kórónuveirunni þar í landi nýverið sem þykir einkar smitandi, eins og við ræddum um í gær. Semsagt, það er allt í skrúfunni í Bretlandi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nýtt afbrigði kórónuveirunnar og næstu landsliðsþjálfarar
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um nýtt afbrigði kórónuveirunnar, sem hefur gert Bretum lífið leitt síðustu daga. Óttast er að þetta sérstaka afbrigði sé talsvert meira smitandi en önnur afbrigði veirunnar. Auk Bretlands hefur það þegar greinst í Danmörku, Hollandi, Suður-Afríku og á Ítalíu og sérfræðingar óttast að það hafi þegar borist víðar.
    Að loknum hádegisfréttum ræðir Guðmundur Björn við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamann, um næstu landsliðsþjálfara í fótbolta. Bæði A-landslið karla og kvenna eru án þjálfara.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Dýrasiðferði og dýrari landbúnaðarvörur
    Í fyrri hluta Hádegisins í dag ræðir Katrín við Gunnar Theódór Eggertsson dýrasiðfræðing um það hvort fjarlægð okkar við dýr hafi áhrif á neysluvenjur okkar. Er betra geta horfst í augu við matinn sinn áður en hann endar á disknum eða viljum við frekar fjarlægðina við framleiðsluferlið?
    Í síðari hluta fjöllum við um frumvarp landbúnaðarráðherra um breytingar á reglum um innflutning á búvörum, sem verður líklega samþykkt á Alþingi í dag, eða að minnsta kosti fyrir árslok. Með þessu hækkar verð á influttum landbúnaðarvörum að öllum líkindum á næsti ári. En markmiðið er að létta undir með innlendri landbúnaðarframleiðslu. Við spyrjum, eru slæmar fréttir fyrir neytendur í vændum, en góðar fyrir íslenskan landbúnað? Guðmundur Björn ræðir við Ólaf Stephensen, formann félags atvinnurekenda um málið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fordómafull gervigreind og tíu ár frá upphafi arabíska vorsins
    Í fyrri hluta Hádegisins í dag er fjallað um arabaíska vorið, en tíu ár eru frá því Mohamed Bouazizi kveikti í sér á götum borgarinnar Ben Arous á norðurströnd Túnis til að mótmæla óréttlæti. Í kjölfarið brutust út mikil mótmæli víða um Norður-Afríku og í Mið-Austurlöndum.
    Að fréttum loknum fjöllum við um það hvort gervigreind geti verið fordómafull, eftir nýlegt hneyksli hjá Google. Katrín ræðir við Stephan Schiffel lektor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Navalny og siðferðislega vafasamir spilakassar
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um rússneska stjórnarandstæðinginn Alexei Navalny, en sannað þykir að rússneska leyniþjónustan FSB hafi eitrað fyrir honum í ágúst síðastliðnum. Rætt er við Dagnýju Huldu Erlendsdóttur, fréttamann.
    Í síðari hluta Hádegisins fjöllum við það hvernig peningar koma inn í góðgerðar- og hjálparsamtök. SÁÁ tilkynnti á dögunum að samtökin drægu sig úr þátttöku á rekstri spilakassa, en Rauði krossinn og Landsbjörg ekki. Rætt er við Henrý Alexander Henrýsson siðfræðing um hvort tilgangurinn helgi meðalið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Kjörmenn koma saman og evrópumótið í handbolta
    Í fyrri hluta Hádegisins í dag verður rætt helstu fréttaefni helgarinnar, meðal annars aðra umræðu um fjárlög á Alþingi, partýstand í miðborginni og fleira. Þá fjöllum við um það að kjörmannaráð Bandaríkjaþings hittist í dag og ákveður í eitt skipti fyrir öll, hver verður næsti forseti Bandaríkjanna.
    Að loknum hádegisfréttum er rætt við Einar Örn Jónsson um evrópumót kvenna í handbolta, en þar þykja þær norsku sigurstranglegastar. En hvers vegna er Ísland ekki með? Einar Örn svarar því og mörgu öðru.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Aftökur í Bandaríkjunum og ungmenni ársins
    Í fyrri hluta Hádegisins í dag verður rætt um aftökur í Bandaríkjunum. Bandaríkjaforseti hefur brotið130 ára gamla hefð með að taka fanga af lífi eftir að búið er að kjósa nýjan forseta. Önnur aftaka er áætluð í dag, en þá hefur ríkisstjórn Donalds Trump tekið tíu fanga af lífi á þessu ári.
    Að loknum hádegisfréttum við um manneskju ársins hjá bandaríska tímaritinu Time - bæði um þau Biden og Harris en einnig um unga vísindamanninn Gitanjali Rao - ungmenni ársins hjá Time sem unnið hefur ötullega að því að gera heiminn að betri stað með uppfinningum sínum.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Íþróttahreyfingin enn ósátt og hvernig er mikilvægi lífa ákveðið?
    Í fyrra hluta Hádegisins ræðir Guðmundur Björn við þá Hannes Jónsson, formann KKÍ og Guðmund B. Ólafsson, formann HSÍ, um nýja reglugerð yfirvalda og hvernig hún breytir umhverfi afreksíþróttamanna. Þeir Hannes og Guðmundur eru sammála um að nauðsynlegt sé að iðkendur á unglingsaldri þurf að fá að æfa.
    Að loknum hádegisfréttum höldum við áfram að fjalla um það að byrjað er að bólusetja forgnagshópa í nokkrum löndum. En hverjir tilheyra þessum forgangshópum, hver ákveður það og hvers vegna er það mismunandi milli ríkja? Við ræðum um forgangsröðun innan heilbrigðisþjónustunnar og siðferðileg álitamál tengd henni, við Jórunni Maríu Ólafsdóttur, hjúkrunarforstjóra.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Zuistar og bólusetningar í Bretlandi
    Í fyrri hluta fjallar Katrín Ásmundsdóttir um trúfélagið Zúista. Í síðari hluta er rætt um nýtt bóluefni Pfizer og BionTech. Bólusetningar hófust í Bretlandi í dag.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Tilslakanir á næstunni og íþróttastarf í Covid
    Í fyrri hluta Hádegisins fjalla Guðmundur Björn og Katrín um vendingar helgarinnar í kórónuveirufaraldrinum og ræða um næsta skref sóttvarnaryfirvalda.
    Að loknum hádegisfréttum ræðir Guðmundur Björn við Einar Örn Jónsson íþróttafréttamann, um viðbrögð íþróttahreyfingarinnar við ströngum sóttvarnaraðgerðum hér á landi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…