Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Myrkravefurinn og heimilisfjármálin með Gunnari Dofra
    Í fyrri hluta þáttarins fjöllum við um það á mánudaginn lokaði þýska lögreglan einu stærsta ólöglega markaðstorgi hins svokallaða myrkravefs, markaðstorginu DarkMarket. Vefsvæðinu var lokað og slökkt á vefþjónum þess á mánudaginn í kjölfar umfangsmikillar alþjóðlegrar lögregluaðgerðar. Meintur höfuðpaur og eigandi markaðsins var handsamaður af þýsku lögreglunni á flótta nærri landamærum Danmerkur á laugardaginn. En notendur leita á leita á myrkravefinn, sem ekki er aðgengilegur netverjum nema með sérstökum hugbúnaði, til þess að geta átt í nafnlausum viðskiptum, skiptast á ólöglegu efni eins og klámi, eiturlyfjum eða illa fengnum upplýsingum eins og kortaupplýsingum eða vefaðgöngum. Á markaðstorginu, sem gjarnan hefur verið kallað Ebay glæpamannanna, gengu meðal annars eiturlyf, illa fengin gögn og falsaðir peningar kaupum og sölum fyrir milljónir króna.
    Í seinni hluta Hádegisins kynnum við til sögunnar nýjan lið þáttarins, Heimilsfjármálin með Gunnari Dofra Ólafssyni. Við byrjum á því að ræða um verðbólgu.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Flugslys í Jakarta og heimsmeistaramótið í Egyptalandi
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um mannskætt flugslys á Indónesíu á laugardag, þar sem talið er að 62 hafi látist. Vélin sem fórst er af gerðinni Boeing 737-500 og er minni en þær Boeing 737-Max þotur sem lengi hefur staðið styr um. En upp komst um galla í tölvubúnaði í stjórntækjum Max-véla bandaríska flugvélaframleiðandans í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa sem urðu með nokkurra mánaða millibili á árunum 2018 og 2019.
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um heimsmeistaramót karla í handbolta, sem hefst í Egyptalandi á miðvikudag. Íslendingar eru meðal þátttökuþjóða, og þetta er í tuttugasta skipti sem Ísland tekur þátt á heimsmeistaramótinu. En hvaða möguleika eiga Íslendingar á mótinu og hvaða lið eru sigurstranglegust? Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson ræðir við okkur um allt þetta, og meira til.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jón Typpakall og átökin í bandarískum stjórnmálum
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um John Dillermand, danska barnaþætti sem hófu göngu sína í vikunni og hafa vakið mikið umtal. Þættirnir fjalla um typpakallinn Jón, miðaldra mann í matrósafötum og með snyrtilegt yfirvaraskegg, ekki ólíkur útbrunnu karlmódeli sem Jean-Paul Gaultier hefði ráðið í vinnu. Hann býr hjá langömmu sinni, og er með risastórt typpi sem hefur sinn eigin vilja.
    Í síðari hluta þáttarins ræðir Katrín við Birnu Önnu Björnsdóttur rithöfund, sem hefur lengi búið í Bandaríkjunum, um niðurstöður endrutekinna kosninga í Georgíuríki og áhrif þeirra á stjórnartíð Joe Bidens, verðandi Bandaríkjaforseta.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Söguleg árás á þinghúsið, og fyrsta örskýringin
    Hádegið í dag er tileinkað atburðunum á Capitol Hill í Washington D.C. í gær, þegar hundruð stuðningsmanna Donalds Trump, fráfarandi Bandaríkjaforseta, tókst með ótrúlegum hætti að ryðja sér leið inn í þinghúsið, og valda þar skemmdarverkum. Fjórir létust í átökum við lögreglu.
    Atli Fannar Bjarkarson mætir til leiks með sína fyrstu örskýringu, þar sem hann fjallar um tildrög atburðanna í gær. Í seinni hluta þáttarins fjöllum við nánar um nákvæmlega hvað átti sér stað, og hverjar afleiðingarnar verða fyrir núverandi forseta. Verður hann ákærður fyrir embættisglöp, þótt einungis séu tæpar tvær vikur þar til hann á að láta af embætti.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Drama í Georgíuríki og hundleiðinleg heimavinna
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um auka-þingkosningarnar í Georgíuríki í Bandaríkjunum, sem ráða því hvort Demókratar fá meirihluta í öldungardeild þingsins, eða Repúlblikanar haldi sínum meirihluti. Þá er einnig fjallað um sérstakt símtal Donalds Trump, fráfarandi forseta, til yfirkjörstjórnar og innanríkisráðherra Georgíu á laugardag.
    Í seinni hluta er rætt við Steinar Þór Ólafsson, kontórista og pistlahöfund, um þróun þess að fólk taki vinnuna með sér heim á tímum Covid-19.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jack Ma horfinn og mildun dóma í kynferðisbrotamálum í Landsrétti
    Ekkert hefur spurst til kínverska viðskiptajöfursins og stofnanda Alibaba netfyrirtækisins, Jack Ma, í um tvo mánuði, eða síðan hann gagnrýndi kínversk stjórnvöld og hvatti til frjálsara markaðshagkerfis. Fjallað er um þetta dularfulla mál í fyrri hluta þáttarins.
    Í seinni hlutanum er rætt við Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, þingmann Viðreisnar og fyrrverandi saksóknara, um mildun dóma í kynferðisbrotamálum í Landsrétti. En Landsréttur sneri við sakfellingum í þriðjungi nauðgunarmála á nýliðnu ári, nánar tiltekið í sex af sautján nauðgunardómum, þegar málum sem varða brot gegn börnum er sleppt, líkt og við fjölluðum nánar um í Hádeginu í gær. En það er ekki allt og sumt. Í sjö til­vikum staðfesti Landsréttur sakfellingu héraðsdóms en mildaði refsinguna, oftast nær með vísun í drátt á málsmeðferð.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Landsréttur snýr við sakfellingum í nauðgunarmálum og Covid-vendingar
    Landsréttur sneri við sakfellingum í þriðjungi nauðgunarmála á nýliðnu ári. Rætt er við BrynhildiGunnarsdóttur Flóvenz, dósent við lagadeild Háskóla Íslands, í fyrri hluta Hádegisins, um hvað getur hugsanlega útskýrt það mál.
    Í síðari hluta þáttarins er farið yfir helstu vendingar á nýju ári hvað varðar Covid-19 heimsfaraldurinn en fjöldi ríkja boða hertar aðgerðir um þessar mundir. Bólusetningar eru þá hafnar víðs vegar um heim en enn langt er í land og tafir á afhendingu bóluefnis og framkvæmd bólusetninga gangrýndar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Þungunarrof löglegt í Argentínu og hvað vitum við um bóluefnið?
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um nýja þungunarrofslöggjöf í Argentínu, sem var samþykkt í gær. Ákvörðun argentíska þingsins markar tímamót, og Argentína er nú komið í hóp fárra ríkja sem heimila þungarrof í Suður-Ameríku.
    Í síðari hluta þáttarins er fjallað um bóluefnið Comirnaty, sem hefur verið samþykkt til notkunar hér á landi. Byrjað var að bólusetja í gær, en hvaða bóluefni er þetta? Hvað er vitað um það? Og vitum við eitthvað um aukaverkanir? Katrín ræðir við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar um það og fleira til.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Vinstri-græn í kjölfar Þorláksmessugleði, og áramótaheitin
    Hvernig getum við sett okkur raunhæf áramótaheit og af hverju eigum við til að klúðra þeim fyrir janúarlok? Katrín ræðir við Erlu Björnsdóttur sálfræðing fyrir fréttir.
    Að loknum hádegisfréttum er rætt við Evu Heiðu Önnudóttur dósent í stjórnmálafræði um stöðu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra, en hann var gestkomandi í veislu á þorláksmessu þar sem sóttvarnarreglum var ekki framfylgt. Hvaða áhrif hefur þetta mál fylgi Vinstri-grænna og ríkisstjórnarsamstarfið?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Partýstand á fjármálaráðherra og útgöngusamningi náð
    Í fyrri hluta Hádegisins rekjum við tímalínuna í heitasta fréttamáli síðustu daga; frá því fregnir bárust af því á aðfangadag að Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra sótt veislu í Ásmundarsal þar sem sóttvarnarreglum var ekki framylgt að mati lögreglu. Málið hefur dregið dilk á eftir sér, og stjórnarandstæðingar hafa krafist afsagnar ráðherra á meðan ríkisstjórnin styður hann.
    Að loknum hádegisfréttum fjöllum við um hitt stóra fréttamál síðustu viku, Brexit, og hvernig samningar náðust milli Evrópusambandsins og Breta um hvernig framtíðarviðskiptum milli Bretlands og Evrópusambandsins verður háttað.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…