Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Engin bóluefnarannsókn og náttúrumiðað hagkerfi
    Í fyrri hluta Hádegisins fjöllum við um stærstu tíðindi gærdagsins. Ekkert varð af því að samningar næðust milli stjórnvalda og bandaríska lyfjaframleiðandans Pfizer, um að bóluefnarannsókn fyrirtækisins færi fram hér á landi. Þetta varð ljóst í gær eftir fund Kára Stefánssonar forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar og Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis, með fulltrúum Pfizer. Þessar fregnir voru sem köld vatnsgusa í andlit margra landsmanna, sem sáu COVID-laust Ísland í hillingum; enda hefðu þá um 500 þúsund skammtar af bóluefni frá Pfizer þá borist til Íslands og voru landsmenn svo gott sem búnir að kveðja veiruna. En út á hvað gekk þess hugmynd og hvers vegna gekk hún ekki eftir?
    Í síðari hluta þáttarins fjöllum við um náttúrumiðuð hagkerfi. Við lifum og hrærumst í náttúrunni og tilvist okkar er háð henni. Auk þess byggja mörg okkar lífsviðurværi sitt á henni. Það er hins vegar ekki ókeypis, en talið er að ágengni okkar á náttúruna og auðlindir hennar kosti okkur - jarðarbúa þúsundir milljarða á ári hverju. Þrátt fyrir það er náttúran sjálf og virði hennar hvergi tekin sjaldan tekin með í reikninginn. Því spyrjum við - er tími til kominn til að endurskoða hagkerfi heimsins og taka upp nýtt - náttúrumiðaðra hagkerfi?
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Orkuskipti og réttarhöldin yfir Donald Trump
    Þótt kórónuveiran og útbreiðsla hennar um heimsbyggðina hafi lagt undir sig nær alla fréttatíma undanfarið ár eru víðast hvar enn sömu vandamál til staðar í heiminum, þótt við heyrum kannski minna af þeim. Eitt af þeim er loftslagsváin, sem var fyrirferðamikil í umræðunni á síðustu árum og verður áfram næstu ár og áratugi. Stjórnvöld út um allan heim, víðast hvar allavega, leggjast nú á eitt í baráttunni gegn hlýnun jarðar. Ýmsir valkostir eru í stöðinni fyrir þjóðir heims til að minnka kolefnisfótsporið.
    Eitt af þeim úrræðum eru svokölluð orkuskipti. Gunnar Dofri Ólafsson, umsjónarmaður hlaðvarpsþáttarins Leitin að peningunum hefur litið á heimilsfjármálin í Hádeginu undanfarnar vikur, og nú veltum við því fyrir okkur hvort orkuskipti borgi sig.
    Málaferli gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna árásarinnar á þinghúsið í Washington sjötta janúar, hefjast í Öldungardeild Bandaríkjaþingsins í dag. Þetta er í annað sinn sem ákæru um embættisglöp gegn Donald Trump ber á borð þingsins. Við förum yfir þetta mál í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Astra Zeneca og hinn ósigrandi Tom Brady
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um bólefni Astra Zeneca, en á laugardaginn bárust um tólf hundruð skammtar af efninu til landsins. Til stendur að 74 þúsund skammtar berist fyrir lok mars. Bóluefnið frá Astra Zeneca er til dæmis ódýrara í framleiðslu en hin tvö og auðveldara er að flytja það og geyma en önnur bóluefni, en virkni þess þykir þó minni en í bólefnum Pfizers og Moderna. Katrín fjallar um kosti og ókosti þessa bóluefnis.
    Í síðari hluta þáttarins fjallar Guðmundur um hinn 44 ára gamla Tom Brady, sem vann sína sjöundu Ofurskál í ameríska fótboltanum í gær. Tom Brady og félagar hans í Tampa Bay Buccaneers völtuðu yfir Kansas City Chiefs í úrslitaleiknum, sem fram fór á heimavelli Buccaneers í Tampa í Flórída í nótt. En hvað gerir Brady svona einstakan? Eva Björk Benediktsson íþróttafréttamaður, svarar því.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Valdaránið í Mjanmar og svikahrappar í Hollywood
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um ástandið í Mjanmar, en herinn framdi valdarán í landinu aðfaranótt mánudags. Aung San Suu Kyi, leiðtoga NLD flokksins, hefur ekki enn verið sleppt úr haldi og sömu sögu er að segja af öðrum þingmönnum flokksins.
    Í seinni hluta þáttarins höldum við áfram að fjalla um svik og svikahrappa. Mikið hefur verið fjallað um mál Hollýwood svikadrottningarinnar svokölluðu í fjölmiðlum að undanförnu. En svikadrottningin - sem reyndist vera fjörutíu-og-eins árs karlmaður frá Indónesíu - náði að svíkja nokkrar milljónir Bandaríkjadollara úr vongóðu fólki innan kvikmyndageirans í Hollýwood á um sjö árum. Hann var loks handsamaður í Bretlandi í desember í fyrra, eftir umfangsmiklar lögregluaðgerðir, og bíður nú ákæru. Þegar von á bók um þetta furðulega mál eftir Scott Johnson, rithöfund og þá er einnig vert að nefna að ítarlega er farið yfir málið í hlaðvarpinu Chameleon: Hollywood Con Queen.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Bólefnakrísa Evrópusambandsins og QAnon
    Í fyrri hluta Hádegisins hlýðum við á örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar um samsærishreyfinguna QAnon. Hvað er QAnon, hvaðan kemur það, og hver stendur á bakvið það?
    Í sinni hluta þáttarins heyrum við nýjum liðsmanni Hádegisins, Sveini Helgasyni, sem starfaði um árabil sem fréttamaður RÚV, meðal annars í Washington. Hann er nú í Brussel og hann ætlar í sínum fyrsta pistli að fjalla um hvers vegna það hefur gengið jafn hægt og illa og raun ber vitni að bólsetja við kórónuveirunni sem veldur Covid 19, í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Hann ræðir við Scott Marcus hjá Brugel hugveitunni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nígeríusvindlarar og Navalny dæmdur í fangelsi
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um svokölluð Nígeríusvindl, svindl sem byggjast á hvers konar fyrirframgreiðslum. Óprúttnir svikahrappar herja á grandalausa rithöfunda um allan heim um þessar mundir. Þeir villa á sér heimildir - þykjast vera háttsettir starfsmenn hjá virtum bókaútgefendum og reyna að fá rithöfunda til að láta af hendi óútgefin handrit. Íslenskir rithöfundar eru ekki undanskildir þessu svindli. Tilgangur svindlsins er enn ekki fyllilega ljós - en sumir telja að með þessu séu svikahrapparnir að reyna að vinna sér inn traust rithöfundanna til að geta svo svikið af þeim fé í kjölfarið. En, hvernig virkar svona svindl?
    Í síðari hluta þáttarins er fjallað um dóm sem féll yfir rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny í Moskvu í gær, en hann hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir brot á skilorði. Mikil mótmæli hafa verið víðsvegar um Rússland síðustu daga og upp úr sauð milli lögreglu og stuðningsmanna Navalnys í gær, þegar dómurinn féll. Við ræðum við Dagnýu Huldu Erlendsdóttur fréttamann um Navalny, dóminn og framtíð lýðræðis í Rússlandi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Valdarán í Mjanmar og stýrivextir
    Í fyrri hluta Hádegisins fjallar Gunnar Dofri Ólafsson um stýrivexti, en pengiastefnunefnd Seðlabankans kynnir vaxtaákvörðun sína á morgun. Búist er við því að þeir verði óbreyttir um skeið - jafnvel út árið. En hvað eru vextir, og hvað eru stýrivextir? Hver er tilgangur slíkra vaxta?
    Herinn hefur tekið völdin í landinu Mjanmar í suðaustur Asíu, og handtekið hátt setta embættismenn úr röðum stjórnarflokksins NLD, þar á meðal leiðtoga flokksins, frelsishetjuna Aung San Suu Kyi. Einungis tíu ár eru síðan lýðræði var komið á í landinu eftir langa stjórn hersins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Bóluefnadeilur Breta og ESB og Danir aftur heimsmeistarar
    Í fyrri hluta Hádegisins er stiklað á stóru um Covid-19 tengd mál og hver staðan er á bólusetningum erlendis. Eins og vanalega er af nægu að taka. Katrín, en mikið hefur borið á hatrömmum deilum á milli Evrópusambandsins og bresk-sænska lyfjaframleiðandans AstraZeneca. AstraZeneca tilkynnti sem sagt í janúar að tafir yrðu á afhendingu á bóluefninu til Evrópusambandsins á þessum fyrsta ársfjórðingi. Erfiðleikar hefðu komið upp við framleiðslu bóluefnisins í verksmiðjum á meginlandi Evrópu, í Hollandi og Belgíu - það er að segja verksmiðjum innan ESB, sem ollu þessum töfum að sögn lyfjaframleiðandans.
    Í seinni hluta þáttarins fjöllum við heimsmeistaramót karla í handbolta, sem lauk í gær. Danir eru heimsmeistarar annað skiptið í röð, en þeir höfðu betur gegn Svíum í úrslitaleiknum í Kaíró, 26-25. Rætt er við Þorkel Gunnar Sigurbjörsson, íþróttafréttamann, um þetta nýafstaðna mót, gengi Íslands og hvers má vænta af íslenska liðinu í framtíðinni.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Réttað yfir FARC-liðum og Covid-19 svindlarar
    Í fyrri hluta Hádegisins er fjallað um skæruliðasamtökin FARC í Kólumbíu. Í gær bárust fregnir af því að dómstóll í landinu hefði ákært átta hátt setta leiðtoga úr FARC, fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn mannkyni. Stjórnvöld og FARC hafa ýmsa hildi háð frá því miðjan sjöunda áratug síðustu aldar, en gerðu með sér friðarsamkomulag árið 2016.
    Í siðari hluta þáttarins fjöllum við svokallaða Covid 19- svindlara. Bilið á milli hinna ríku og fátæku eykst í heimsfaraldri og sérfræðingar segja að afleiðingar kórónuveirufaraldsins bitni einna verst á þeim sem minnst mega sín. Bóluefni lofar bót við veirunni - en það er ekki beint þannig að aðgengi að bóluefni sé jafnt milli ríkja. Margt bendir til þess að um að svokölluð bólusetnignar-þjóðernishyggja sé að gera vart við sig - að þeir stærstu og sterkustu, eða stærstu ríkin, það er að segja, einblíni aðeins á að tryggja bóluefni fyrir sig og sína þegna og tryggi sér samninga um bóluefni hér og þar. Það sé ekki öllum ljóst að enginn sé öruggur fyrr en allir eru öruggir. Þetta virðist einnig eiga við um einstaklinga - einstaklinga sem beita ýmsum brellum og brögðum til að troða sér fram fyrir röðina og tryggja sér bólusetningu á kostnað þeirra sem heldur þurfa á að halda.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Gamestop og hert þungunarrofslöggjöf í Póllandi
    Í fyrri hluta Hádegisins hlýðum við á örskýringu Atla Fannars Bjarkasonar um verslunarkeðjuna GameStop. Bandarískur vogunarsjóður ætlaði að græða stórlega á fyrirhuguðu tapi eða fjárhagsvandræðum, verslunarkeðjunnar GameStop, sem selur allt sem viðkemur tölvuleikjum, með því að nýta sér svokallaða skortsölu hlutabréfa. Hinsvegar greina fréttir frá því að þau plön hafi stórlega misfarist þegar stór hópur lítilla fjárfesta keyrði hlutabréfaverð fyrirtækisins upp á örlagastundu.
    Í síðari hluta þáttarins er rætt um ný lög um þungunarrof, sem tóku gildi í Póllandi í gær. Héðan af er þungunarrof með öllu bannað í landinu og aðeins leyfilegt að gangast undir þungunarrof í algjörum undantekningartilvikum, það er að segja, ef kona verður þunguð eftir nauðgun eða ef líf og heilsa móðurinnar er í hættu. Rætt er við Wiktoriu Johönnu Ginter.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…