Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Hvert fara afgönsku flóttamennirnir og Ólympíumót fatlaðra að hefjast
    Við höldum áfram að fjalla um mál málanna, stöðuna í Afganistan. Í síðustu viku fjölluðum við ítarlega um valdarán Talíbana í landinu, en þeir fara nú með tögl og hagldir þar eftir að hafa náð yfirráðum í höfðuborginni Kabúl fyrir rúmri viku. Tugir þúsunda Afgana hafa reynt að flýja land síðustu daga og vikur, með misjöfnum árangri. En hvert fara þessir flóttamenn og er önnur flóttamannakrísa í vændum?
    Ólympíumót fatlaðra hefst á morgun í Tokýó - Ísland á sex keppendur á mótinu, fimm sem eru að fara á ólympíumót í fyrsta sinn - við setjumst niður hér á eftir með Helgu Margréti Höskuldsdóttur íþróttafréttakonu og rýnum í sögu mótslins, fyrirkomulag og kynnumst íslensku keppendum betur.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Guðmundar og Þórhildar Ólafsdóttur.
    58 min
  • Tekjur Íslendinga og siðferðislegt réttmæti örvunarskammta
    Við byrjum á örskýringu vikunnar í borði Atla Fannars Bjarkasonar. Í þessari viku rýnir Atli Fannar, eins og kannski margir landsmenn, í tekjublað Frjálsar verslunar sem kom út í vikunni. Þar má finna upplýsingar tekjur þúsundir Íslendinga, sem byggðar eru á álagningaskýrslu. Atli ætlar ekki að segja okkur hvað hinir og þessir Íslendingar eru með í laun - nei, hann ætlar að örskýra fyrir okkur hvernig þetta allt saman er reiknað. Í örskýringum sínum tekur Atli fyrir flókin mál og útskýrir þau á einfaldan hátt.
    Svokallaðir örvunarskammtar eða boozterar gegn Delta afbrigði Covid 19 hafa verið gefnir hér á landi í vikunni. Jansen-bóluefnið þótti ekki veita nægilega vörn gegn Delta-afbrigðinu og því var því fólki sem var bólusett með Jansen boðið að þiggja örvunarskammt frá Pfizer. Sitt sýnist hverjum um þetta. Nýleg rannsókn sýnir að bóluefni Jansen veiti fína vörn gegn Delta afbrigðinu, sé litið til dauðsfalla og spítalainnlagna. En svo er það hin hliðin á þessu öllu saman. Einungis rúmlega 32 prósent heimsbyggðarinnar hefur fengið að minnsta kosti einn skammt af bóluefni, og 24 prósent allra jarðarbúa teljast fullbólusett. Með öðrum orðum, þá þýðir þetta að á meðan stór hluti heimsins er óbólusettur, er verið að dæla enn meira af bóluefni ríkisborgara efnameiri ríkja, eins og Íslandi. Þá eru Bandaríkjamenn að gera slíkt hið sama. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gagnrýnt þessa örvunarskammta harðlega, og segja sérfræðingar hennar á þá óþarfa - og það sé í raun siðlaust að bólusetja bólusett fólk AFTUR, á meðan meirihluti heimsbyggðarinnar er óbólusettur. Við skoðum þetta mál í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • R. Kelly fyrir dóm og hverjir eru Talíbanar?
    Við hefjum Hádegið í dag í Bandaríkjunum. Undafarin misseri hafa fleiri og fleiri heimsþekktir tónlistarmenn, leikarar og aðrir sem unnið hafa í skemmtanaiðnaðinum, sætt ásökunum um kynferðisofbeldi. Uppgangur MeToo-byltingarinnar skipar þar stórt hlutverk. Nýjasta stórfréttin er sú að nóbelsverðlaunahafanum Bob Dylan er gefið að sök að hafa brotið kynferðislega gegn tólf ára stúlku fyrir rúmlega hálfri öld, eins og við ræddum um í Hádeginu fyrr í vikunni. Sum þessara mála enda með kæru, önnur ekki. Í gær dró til tíðinda í einu umfangsmesta máli sinnar tegundar síðustu ár, þegar réttarhöld yfir söngvaranum, lagahöfundinum og framleiðandanum R. Kelly hófust í New York. Kelly sætir ákæru fyrir mörg og margvísleg kynferðisbrot.
    Í þessari viku höfum við fjallað ítarlega um uppgang Talíbana í Afganistan, fall stjórnarhersins þar í landi, viðbrögð Bandaríkjastjórnar við ástandinu þar og síðast en ekki síst þá umdeildu ákvörðun Bandaríkjanna og annara ríkja Atlantshafsbandalagsins NATÓ, að draga herlið sitt til baka frá landinu eftir 20 ára hersetu. Það er óvíst hvað framtíðin ber í skauti sér í Afganistan, en eitt er víst: Talíbanar eru komnir aftur til valda, 20 árum eftir innrás Bandaríkjanna inn í landið. En hverjir eru Talíbanar, hver er þeirra hugmyndafræði og hefur hún breyst á síðastliðnum 20 árum? Hvaðan fá þeir fjármagn sitt? Við ræðum um þetta og margt fleira sem snýr að Talíbönum í síðari hluta þáttarins við Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamann og sérfræðing í málefnum Mið-Austurlanda.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Trump hraunar yfir Biden og hvað eru ?incels??
    Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, segir stöðuna sem nú er komin upp í Afganistan, það skammarlegasta sem gerst hafi í bandaríksri sögu. Líkt og við fjölluðum um í gær hér í Hádeginu hafa Talíbanar náð höfuðborginni Kabúl á sitt vald og fara nú tögl og haldir í landinu, á sama tíma herlið Bandaríkjanna og annarra ríkja Atlantshafsbandalagsins eru í óða önn að hverfa frá landinu eftir 20 ára hersetu. Guðmundur Björn tekur nú við og rýnir í viðtal sem Sean Hannity á Fox fréttastöðinni tók við forsetann fyrrverandi í gær.
    Ungur maður skaut fimm til bana á fimmtudaginn í bresku hafnarborginni Plymouth. Maðurinn tilheyrði hreyfingu manna sem viðhafa öfgakennda hatursorðræðu á samfélagsmiðlum í garð kvenna. Manna sem kenna konum um að þeir eigi ekki upp á borð hjá þeim með þeim afleiðingum að þeir eru nauðugir skírlífir. Þetta hljómar ótrúlega - og fræðumst meira um svokallaða Incels í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Dylan sakaður um kynferðisofbeldi og Biden sér ekki eftir neinu
    Bandaríski tónlistarmaðurinn og Nóbelsskáldið Bob Dylan bætist nú í stóran og sístækkandi hóp ástsælla listamanna sem hafa verið sakaðir um kynferðislegt ofbeldi. Dylan er sakaður um að brjóta kynferðislega gegn tólf ára stúlku fyrir rúmlega hálfri öld. Katrín segir okkur meira um málið.
    Joe Biden Bandaríkjaforseti stendur við þá ákvörðun sína að draga herlið Bandaríkjanna burt frá Afganistan, en Biden sætir nú mikilli gagnrýni vegna landvinninga Talíbana í Afganistan, en þeir hafa náð landinu á sitt vald úr höndum afganskra stjórnvalda. Þúsundir Afgana hafa reynt að flýja land með litlum árangri. Við ræðum um stöðuna í Afganistan, og Joe Biden, í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jarðskjálfti á Haítí og enski boltinn byrjaður að rúlla
    Tæplega þrettán hundruð hafa fundist látin eftir að öflugur jarðskjálfti - sjö komma tveir að stærð - reið yfir Haítí á laugardaginn. Minnst fimm þúsund og sjö hundruð slösuðust og enn er leitað í rústunum. Aðeins eru um ellefu ár frá því að öflugur jarðskjálfti varð vel á þriðja hundrað þúsund að bana í höfuðborg landsins.
    Fyrsta umferð ensku úrvalsdeildarinnar, stærstu og vinsælustu fótboltadeild í heimi, fór fram um helgina. Leikvangar voru þétt settnir í fyrsta sinn í eitt og hálft ár eða frá því kórónuveirufaraldurinn hófst og stemningin draup af strái hverju. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður lítur við í síðara hluta þáttarins og ræðir við okkur um ensku deildina, vonir og væntingar stóru liðanna, helstu félagaskipti og nýjar reglubreytingar.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Uppsig Talíbana í Afganistan og þróun bóluefna við COVID-19
    Uppgangur Talíbana í Afganistan hefur verið með ólíkindum hraður undanfarna daga og vikur. Hver afganska borgin fellur á fætur annarri í hendur talíbana og fjöldi fólks flýr nú landið. Líklegast má rekja uppganginn til brotthvarfs alþjóðaliðsins, Bandaríkjahers og Breta, úr landinu, en til stóð að það yrði með öllu farið 11. september næstkomandi. Snærós ræðir við Unu Sighvatsdóttur um málið í fyrri hluta þáttarins. Una starfaði á upplýsingadeild Nató í Kabúl, höfuðborg Afganistan, á árunum 2016 til 2018.
    Nú hefur heimsfaraldur haldið nær öllum heiminum í heljargreipum í meira en eitt og hálft ár - og átján mánuðir - þrátt fyrir að vera kannski tiltölulega skammur tími í stóra samhengi hlutanna - hefur sjaldan liðið jafn hægt og verið jafn þrúgandi. Allskonar hefur gerst á þessum mánuðum - flest slæmt - en þó sumt gott inn á milli. Því þessir fordæmalausu tímar hafa einnig kallað á fordæmalaus viðbrögð - fordæmalausa vísinda - já og skipulagssigra. Á einu og hálfu ári hafa tugir bóluefna verið fundin upp, þróuð og framleidd. Fjögur þeirra hafa hlotið markaðsleyfi hér á landi og þeim hefur svo verið sprautað í okkur - eða um áttatíu prósent Íslensku þjóðarinnar - sextán ára og eldri - á skipulegan hátt - allt með áður óþekktu hraði.
    En það að reyna að halda í við þessa hröðu, ófyrirsjáanlegu og síbreytilegu veiru, þýðir að oft þarf að bregðast skjótt við og taka ákvarðanir út frá þeim upplýsingum sem liggja fyrir einmitt þá stundina. Upplýsingum sem - eins og með annað í þessum faraldri - eru ekki endilega fasti - heldur í sífelldri mótun. Vissan - jafnvel staðreyndir - geta því breyst ört, stundum frá degi til dags meira að segja. Og það á einnig við um bóluefnin. Margt hefur nú komið í ljós, margt hefur nú breyst, frá því við heyrðum fyrst af þessum nýju bóluefnum og þar til þau fóru að renna um æðar okkar. Við ræðum við Rúnu Hauksdóttur Hvannberg, forstjóra Lyfjastofnunar um þróun bóluefna gegn COVID-19 í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Kynsegin-intersex menningarminjafundur og síðdegisspjall á Spáni
    Þegar degi tekur að halla að sumarlagi í spænska smábænum Algar í Andalúsíu, draga íbúar fram stóla sem þeir koma fyrir undir berum himni. Þar - á götum, torgum og þrepum bæjarins litla, safnast því saman nágrannar, vinir og vandamenn og spjalla, oft tímunum saman, um daginn og veginn, heima og geima. Og nú berst José Carlos Sanchéz, bæjarstjóri Algar, fyrir því að fá þessa gamalkunnu spænsku hefð, færða á heimsminjaskrá menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, eða UNESCO, sem nú skoðar málið.
    Ný DNA rannsókn á gröf höfðingja sem fannst í Finnlandi árið 1968 varpar merkilegu ljósi á stöðu kynsegin- og intersex fólks á miðöldum, en vísindamenn hafa dregið þá ályktun að það hafi jafnvel verið sérstaklega í hávegum haft í samfélaginu. Snærós ræðir við Ármann Jakobsson prófessor um stöðu kynjanna fyrir þúsund árum síðan, í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Verslunarborgin Riga og óháðir fjölmiðlar
    Hlutleysi blaðamanna er einn af þeim nauðsynlegu þáttum sem þarf að tryggja, eigi fjölmiðlaumfjöllun að vera óháð og óhlutdræg. En hvernig gengur það á svo litlu landi? Er það raunhæft? Snærós Sindradóttir forvitnast um málið í fyrri hluta þáttarins.
    Þar á eftir höldum við til Lettlands. Riga, höfuðborg landsins, er verslunarborg frá fornu fari. Aðalmarkaðurinn í Riga, eða Central Market, er einn sá stærsti af sínu tagi í Evrópu ? sá stærsti segja heimamenn. Á markaðnum er mikið úrval af matvælum, en líka blóm, gjafavara og margt fleira, bæði innandyra og í sölubásum undir beru lofti. Sveinn Helgason, okkar maður í Brussel, lagði land undir fót í síðustu viku og fór til Lettlands. Hann kynnti sér sögu landsins en heimsótti fyrst þennan fræga markað sem var byggður á þriðja áratug síðustu aldar og er á heimsminjaskrá UNESCO.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min
  • Nýár múslima og Andrés prins kærður fyrir kynferðisofbeldi
    Í dag gengur árið 1443 í garð samkvæmt Hijri-tímatali múslima og nýju ári er því fagnað víðast hvar um heim um þessar mundir. Við skoðum Hijri-tímatalið, tilurð þess, notkun og nýárið í fyrri hluta þáttarins.
    Virginia Giuffre, ein þeirra mörgu kvenna sem kærðu barnaníðinginn Jeffrey Epstein, hefur höfðað einkamál gegn Andrési prins fyrir gróft kynferðisofbeldi og nauðgun. Hin bandaríska Giuffre segist hafa orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu Andrésar bæði í New York og London - en þangað hafi hún verið flutt nauðug sem fórnarlamb kynlífsþrælkunar aðeins sautján ára gömul. Prinsinn neitar ásökununum. Snærós Sindradóttir ræðir við Önnu Lilju Þórisdóttur fréttamann um málið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Þáttur dagsins var í umsjón Katrínar og Snærósar Sindradóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…