Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Vinstriblokkin sigrar í Noregi og slær í brýnu milli Talíbana
    Vinstriblokkin hafði sigur í þingkosningum í Noregi. Samkvæmt niðurstöðum kosninga á mánudag náði vinstriblokkin hundrað þingsætum af hundrað sextíu og níu og hægriblokkin tapaði tuttugu sætum frá síðustu kosningum. Verkamannaflokkurinn hlaut flest atkvæði og verður með fjörutíu og átta þingmenn á Stórþinginu. Þar með lauk hægristjórnartíð síðustu ára, undir forystu Ernu Solberg, forsætisráðherra og leiðtoga Hægriflokksins. Og við stjórnartaumunum tekur Jonas Gahr Störe, leiðtogi Verkamannaflokksins, sem þegar hefur hafið stjórnarmyndunarviðræður ? en búist er við að það geti reynst erfitt verk. Við förum yfir niðurstöður kosninganna í seinni hluta þáttarins.
    Í fyrri hluta þáttarins ræðir Gunnar Hrafn Jónsson, sérfræðingur um málefni mið-austurlanda um uppþot í forsetahöllinni í Afganistan, þar sem sló í brýnu milli æðstu ráðamanna Talíbana.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Unga kynslóðin svartsýn og sæðisfrumum fer fækkandi
    Fjöldi daga í heiminum þegar hitastig fer yfir fimmtíu gráður hefur tvöfaldast frá árinu 1980. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn breska ríkisútvarpsins, BBC. Og bón vísindamanna er sú sama; ef við hættum ekki að brenna jarðefnaeldsneyti heldur þessi þróun áfram og fer versnandi. Þá bendir nýleg könnun til þess að yfir sextíu prósent ungs fólks hafi verulegar áhyggjur vegna loftslagsbreytinga.
    Sæðisfrumum hjá karlmönnum fer ört fækkandi vegna notkunnar efna sem eru skaðleg hormónastarfsemi líkamans. Efni sem geta leynst víða í kringum okkur - svo sem í þvottaefni, snyrtiefnum, raftækjum, textíl og málningu. Svartsýnustu spár segja að sæðisfrumur gætu verið nær alveg horfnar árið 2045 haldi þessi sama þróun áfram. En stenst þetta? Er mannkynið í útrýmingarhættu? Er þetta þróun sem hægt er að snúa við? Hvað getum við gert? Við heyrum hvað Snorri Einarsson, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir, sem hefur sérhæft sig í ófrjósemislækningum, hefur við því að segja í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Covid-19 stöðutékk og geislamengað vatn í sjóinn frá Fukushima
    Tuttugu og fimm greindust innanlands með kórónuveirusmit í gær, eitt smit greindist á landamærunum. Bólusetningar eru enn í fullum gangi, hættustigi hefur verið aflétt á Landspítala og von er á nýjum sóttvarnartakmörkunum á næstu dögum, sem að öllum líkindum fela í sér einhverjar afléttingar. Við tökum stöðuna á heimsfaraldri í fyrri hluta þáttarins.
    Japanir hyggjast dæla rúmlega þúsund tonnum af geislamenguðu vatni sem notað var sem kælivatn þegar kjarnorkuslysið í Fukushima varð fyrir tíu árum - eða árið 2011. Vatnið er geymt í um þúsund tönkum á svæðinu sem nú eru að verða yfirfullir. Áform Japana hafa vakið hörð viðbrögð bæði heima fyrir sem og annarsstaðar að úr heiminum. Við förum yfir þessi áform Japana og viðbrögð alþjóðasamfélagsins í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ný ríkisstjórn Talíbana og hinn undarlegi Nxivm söfnuður
    Í fyrri hluta þáttarins fer Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur um málefni mið-austurlanda, yfir stöðuna í Afganistan, en Talíbanar kynntu nýja ríkisstjórn í vikunni. Þar eru mörg kunnuleg nöfn, sem voru áberandi á tímum síðustu stjórnar Talíbana, frá 1996 til 2001.
    Nancy Salzman, annar stofnanda Nxivm safnaðarins, var í gær dæmd í rúmlega þriggja ára fangelsi fyrir aðild sína að glæpum safnaðarins. Í fyrra var Keith Raniere, sjálfskipaður andlegur leiðtogi safnaðarins dæmdur í hundrað og tuttugu ára fangelsi fyrir meðal annars fjárkúgun, kynlífsmannsal og barnaklám í tengslum við starfsemi safnaðarins. Söfnuðurinn, eða fyrirtækið gaf sig út fyrir að vera sjálfshjálparstofnun en saksóknarar segja fyrirtækið í raun hafa verið notað til kynlífsmansals. Við skoðum málið nánar í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Réttað vegna hryðjuverkanna í París 2015 og átök í Svartfjallalandi
    Ein stærstu réttarhöld í franskri nútímasögu hefjast í dag, vegna hryðjuverkanna í París árið 2015. Tuttugu eru ákærðir og viðbúið að réttarhöldin standi í níu mánuði. Þrjú hundruð og þrjátíu lögmenn og þrjú hundruð eftirlifendur árásarinnar koma að málinu. Alls létust 130 í samstilltum árásum þriggja hópa hryðjuverkamanna á bari, veitingastaði og Bataclan-leikhúsið að kvöldi föstudagsins 13. nóvember. Við vorum við hljóðmynd þessa pistils.
    Núningur á milli serbnesku rétttrúnaðarkirkjunnar, stærstu trúarstofnun Svartfjallalands, og svartfellskra yfirvalda, svo sem Milo Djukanovic, forseta landsins, er ekki nýr af nálinni. Vígsla nýs erkibiskups á sunnudaginn og hörð mótmæli sem henni fylgdu var þó eins og olía á eldinn. Forsetinn telur kirkjunnar menn ætla sér að grafa undan sjálfstæði landsins og færa það undir serbneska stjórn að nýju. Mótmælendur kváðust þreyttir á afskiptum Serba af málefnum Svartfjallalands. Við köfum dýpra í þennan ágreining kirkjunnar og stjórnvalda í Svartfjallalandi og baráttuna um völd í landinu í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Þrífarar í framboði og afleiðingar Covid fyrir fíkla og heimilislausa
    Við byrjum í Rússlandi. Sveitarstjórnarkosningar verða víða í landinu síðar í þessum mánuði, kosningar sem alþjóðasamfélagið fylgist grannt með vegna vaxandi áhyggna af tilraunum stjórnvalda þar í landi til að berja niður hvers kyns andóf stjórnarandstæðinga. Það er svosem gömul saga og ný að stjórnvöld í Rússlandi beiti ýmsum brögðum til að koma í veg fyrir að óæskilegir frambjóðendur velgi þeim undir uggum. Ein leiðin er einfaldlega að losa sig við þá, eins og í tilfelli Alexeis Navalny, ötuls gagnrýnanda Pútíns forseta. Navalny var dæmdur í fangelsi í upphafi árs fyrir að brjóta skilorð, en það þarf ekki ekki doktorsgráðu rússneskum stjórnmálum til að skilja að stjórnvöld voru fyrst og fremst að losa sig við hann. En svo eru til aðrar leiðir, og frumlegri, líkt og kjósendur í Pétursborg fengu að sjá um helgina þegar listi yfir frambjóðendur í sveitarstjórn var birtur. Heimsfaraldur COVID-19 hefur komið illa við okkur öll. Þeir eru eflaust fáir sem ekki hafa þurft að takast á við einhvers konar afleiðingar eða óbeinar afleiðingar hans. Þó vitum við að faraldurinn leikur okkur misgrátt og bitnar jafnvel harðar og verr á vissum einstaklingum eða vissum hópum samfélagsins. Þeirra á meðal er fólk sem glímir við vímuefna- og húsnæðisvanda. Fólk sem á erfiðara með að fylgja tilmælum stjórnvalda, eða einfaldlega getur það ekki, svo sem tilmælum um persónulegar sóttvarnir eða að halda sig heima. Í seinni hluta þáttarins ræðum við við Hafrúnu Elísu Sigurðardóttur, sérfræðing hjá Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarverkefni á vegum Rauða Krossins um áhrif heimsfaraldurs á jaðarsetta hópa samfélagsins. Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Þrífarar í framboði og afleiðingar Covid fyrir fólk í vímuefnavanda
    Við byrjum í Rússlandi. Sveitarstjórnarkosningar verða víða í landinu síðar í þessum mánuði, kosningar sem alþjóðasamfélagið fylgist grannt með vegna vaxandi áhyggna af tilraunum stjórnvalda þar í landi til að berja niður hvers kyns andóf stjórnarandstæðinga. Það er svosem gömul saga og ný að stjórnvöld í Rússlandi beiti ýmsum brögðum til að koma í veg fyrir að óæskilegir frambjóðendur velgi þeim undir uggum. Ein leiðin er einfaldlega að losa sig við þá, eins og í tilfelli Alexeis Navalny, ötuls gagnrýnanda Pútíns forseta. Navalny var dæmdur í fangelsi í upphafi árs fyrir að brjóta skilorð, en það þarf ekki ekki doktorsgráðu rússneskum stjórnmálum til að skilja að stjórnvöld voru fyrst og fremst að losa sig við hann. En svo eru til aðrar leiðir, og frumlegri, líkt og kjósendur í Pétursborg fengu að sjá um helgina þegar listi yfir frambjóðendur í sveitarstjórn var birtur.
    Heimsfaraldur COVID-19 hefur komið illa við okkur öll. Þeir eru eflaust fáir sem ekki hafa þurft að takast á við einhvers konar afleiðingar eða óbeinar afleiðingar hans. Þó vitum við að faraldurinn leikur okkur misgrátt og bitnar jafnvel harðar og verr á vissum einstaklingum eða vissum hópum samfélagsins. Þeirra á meðal er fólk sem glímir við vímuefna- og húsnæðisvanda. Fólk sem á erfiðara með að fylgja tilmælum stjórnvalda, eða einfaldlega getur það ekki, svo sem tilmælum um persónulegar sóttvarnir eða að halda sig heima. Í seinni hluta þáttarins ræðum við við Hafrúnu Elísu Sigurðardóttur, sérfræðing hjá Frú Ragnheiði, skaðaminnkunarverkefni á vegum Rauða Krossins um áhrif heimsfaraldurs á jaðarsetta hópa samfélagsins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Ungu drengirnir í landsliðinu og Skaftárhlaup
    Fregnir af Skaftárhlaupi hafa vart farið fram hjá landsmönnum. Seint á laugardaginn hóf að hlaupa úr Eystri Skaftárkatli og í kjölfarið lýstu almannavarnir yfir hættustigi. Búist er við því að hlaupavatn nái Þjóðveginum í kvöld. Við skoðum þetta fyrirbrigði - jökulhlaup - í seinni hluta Hádegisins. Hvað er jökulhlaup? Hvenær gerist það? Stafar af því hætta? Hversu lengi mun þetta hlaup vara og hvað verður það stórt? Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarðeðlisfræði situr fyrir svörum.
    En við byrjum á íþróttunum. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta reið ekki feitum hesti frá fyrstu tveimur leikjum sínum þessari landsleikjahrinu, í undankeppni heimsmeistaramótsins í fótbolta. Liðið tapaði fyrir Rúmenum á fimmtudag og gerði jafntefli við Norður-Makedóníu í gær. Framundan er leikur gegn Þjóðverjum, einu allra besta liði heims, á miðvikudagskvöld. Miðað við úrslit síðustu tveggja leikja, er ljóst að það verður við ramman reip að draga á miðvikudaginn. Edda Sif Pálsdóttir ræðir við okkur um landsliðið og framtíð þess.
    58 min
  • Hvað og hverjir eru ISIS-K?
    Mannskæð sprengjuárás var gerð á alþjóðaflugvöllinn í Kabúl í síðustu viku, tugir létust og hundruð særðust. Hryðjuverkusamtökin ISIS-K lýstu ábyrgð árásarinnar á hendur sér? Hvað er nú það spurðu mörg sig. Við þekkjum öll ISIS, samtökin sem kenna sig við Íslamskt ríki og fóru mikinn á síðustu árum tímum vargaldar í Írak og Sýrlandi, en lítið hefur heyrst af síðustu misseri. ISIS-K eru nokkurskonar svæðisbundinn undirhópur ISIS og kennir sig við landsvæðið Korashan, svæði sem Afganistan tilheyrir. Þeir eru svarnir andstæðingar Talíbana, sem fara nú með tögl og hagldir í Afganistan eftir að tuttugu ára hersetu Bandaríkjanna og annarra herliða Atlantshafsbandalagsins NATÓ yfirgáfu þetta stríðshrjáða land.
    En hvaðan koma þeir, hver er forsagan og eru átök milli og þeirra og Talíbana nú í vændum? Njóta þeir stuðnings í Afganistan? Gunnar Hrafn Jónsson, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, og fyrrum fréttamaður á erlendu deildinni hér á RÚV, flytur sinn fyrsta pistil í Hádeginu hér í síðari hluta þáttarins. Og þar verður ISIS K og framtíð Afganistan til umræðu.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…