Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Körfuboltinn farinn af stað og hver er Mohammed bin Salman?
    Stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Newcastle glöddust í síðustu viku þegar staðfest var að eigandi liðsins, Mike Ashely, hefði selt eignarhlut sinn í liðinu til fjárfestingahóps í eigu Sádi-Arabíu sem gengur undir nafninu PIF. Stjórnarformaður þessa félags er Mohammed Bin Salman, krónprins Sadí-Arabíu og leiðtogi landsins. Með kaupunum fór Newcastle úr því að vera miðlungs lið yfir í það að verða langríkasta knattspyrnufélag heims. En sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun forsvarsmanna ensku úrvalsdeildarinnar að heimila félaginu að taka yfir rekstur Newcastle. Fyrir því eru ýmsar ástæður, meðal annars sú að þótt PIF sé fjárfestingasjóður er hann fjárfestingasjóður í 100% eigu ríkis, Sádi-Arabíu. En einnig vegna þess að Mohammed bin Salman, og stjórnvöld í Sádíu-Arabíu, eru með óhreint mjöl í pokahorninu. En hver er þessi dularfulli og valdamikli leiðtogi Sádí-Arabíu, Mohammed bin Salman?
    Efstu deildir karla og kvenna í körfubolta eru farnar af stað og yfir því gleðjast unnendur körfuboltans, móður allra íþrótta, eins og Svali Björgvins kallar íþróttina. Njarðvíkingum er spáð deildarmeistaratitli í karlaflokki þrátt fyrir að hafa næstum fallið um deild í vor, og Haukum er spáð titlinum í kvennaflokki. Sigurður Orri Kristjánsson, körfuboltalýsandi og ristjóri Karfan.is, kemur til okkar í síðari hluta þáttarins og spáir í spilin fyrir átökin í vetur.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Verðbólga og viðsnúningur á umdeildum lögum í Texas
    Í fyrri hluta þáttarins örskýrir Atli Fannar Bjarkason fyrirbærið verðbólgu. Verðbólga er á vörum margra um þessar mundir. Á heimsvísu heldur verbólga áfram að aukast á næstu mánuðum og nær ekki jafnvægi fyrr en um mitt næsta ár, samkvæmt nýrri spá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Verðlag hefur hækkað á þessu ári, um leið og hagkerfi heimsins ná vopnum sínum á ný eftir efnahagskreppuna sem fylgdi kórónuveirufaraldrinum. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn bendir á vöruskort, truflanir á aðfangakeðjum og örvunaraðgerðir seðlabanka sem helstu orsakaþætti verðbólgunnar. Hér á landi mælist verðbólga nú 4,4 prósent, sem er umtalsvert yfir 2,5 verðbólgumarkmiði Seðlabankans. En hvað er þetta fyrirbæri verðbólga? Í örksýringum sínum útskýrir Atli Fannar Bjarkason flókin fyrirbæri, á einfaldan hátt.
    Dómari við alríkisdómstól í Texasríki varð við beiðni Bandaríkjastjórnar um að stöðva tímabundið nýja og umdeilda þungunarrofslöggjöf í Texas. Lögin, sem tóku gildi fyrsta september, eru þau ströngustu í Bandaríkjunum öllum. Og samkvæmt þeim er þungunarrof bannað eftir að greina má hjartslátt hjá fóstri, en það er alla jafna í kringum sjöttu viku meðgöngu. Á þeim tíma eru margar konur enn óvarar um að þungun hafi átt sér stað. Aðeins má grípa inní ef heilsa konu er í hættu. Aðrar undantekningar eru ekki veittar, svo sem ef þungun kom til vegna lögbrots, til dæmis nauðgunar eða sifjaspells. Þá heimila og hvetja lögin almenning til að koma upp um hvern þann sem kann að hafa aðstoðað konu við þungunarrof eftir þann tíma sem lögin kveða á um og - leiði málið til sektar - fær viðkomandi peningagreiðslu frá ríkinu að launum. Katrín tekur nú við.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Afganistan og almenningssamgöngur til og frá Keflavíkurflugvellli
    Ástandið í Afganistan fer síversnandi undir stjórn Talíbana. Aukið hefur á örbirgð og fátækt, það stefnir í matarskort og hungursneyð. Og þetta allt þrátt fyrir innspýtingu gífurlegs fjármagns Bandaríkjamanna til Afganistan - fjármagn sem átti að meðal annars að skila sér í uppbyggingu innviða í Afganistan. Hvert fóru þeir peningar, hvernig var þeim eytt - dugðu þeir svona skammt? Gunnar Hrafn Jónsson sækir Hádegið heim.
    Í síðari hluta strætó fjöllum við um almenningssamgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli. Við ættum kannski að segja skorti á þeim. Ólíkt því sem tíðkast víðast hvar í heiminum er ekki hægt að taka almenningssamgöngur á háannatíma til og frá alþjóðaflugvellinum á Íslandi, í Keflavík. Það er þó hægt að taka flugrútu, sem kostar sitt. En hvað veldur þessu? Guðmundur Björn kynnti sér málið og ræddi við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Spjallmenni og skopmyndateiknarinn Lars Vilks látinn
    Við byrjum á nýjustu tækni og vísindum. Kristjana Björk Barðdal, tölvunarfræðingur og þáttastjórandi UT-hlaðvarps Ský, er sérfræðingur Hádegisins í öllu því sem viðkemur tæknimálum. Í síðustu viku ræddum við um stöðu kvenna í tölvuleikjabransanum en í dag ætlum við að spjalla um allt annað, svokölluð spjallmenni. Rannsóknir hafa sýnt að viðskiptavinir hinna ýmsu fyrirtækja vilja geta fengið skjót svör við spurningum sínum á netinu þegar þau bóka eða kaupa hluti. Hingað til hefur þá þurft að vera manneskja á hinum enda spjallborðsins, með tilheyrandi tilkostnaði, en það er að breytast. Fjölmörg fyrirtæki og stofnanir á Íslandi eru byrjuð að nota spjallmenni til þess að svara viðskiptavinum; þau svara erindum viðskiptavina hratt og skjótt - en eru auðvitað ekki manneskjur. Og ekki vélmenni heldur. En hvað eru spjallmenni?
    Sænski listamaðurinn Lars Vilks lést í umferðarslysi á sunnudaginn, sjötíu og fimm ára að aldri. Teikningar af hundi með spámannshöfuð gjörbreyttu lífi listamannsins við birtingu þeirra árið 2007 - og hugsanlega áttu þær eftir að hafa áhrif á dauðdaga hans líka. Því þrátt fyrir að lögregla telji ekkert saknæmt eða grunsamlegt við umferðarslysið sjálft, gæti bifreiðin sjálf, sem Vilks ferðaðist með, sérstök ómerkt og sérlega útbúin lögreglubifreið, hafa átt þátt í hvernig fór. En Vilks naut lögreglufylgdar allt frá birtingu myndanna árið 2007 og fram til dauðadags, vegna líflátshótana og ógnanna vegna myndanna. Hann var til dæmis talinn meginskotmark hryðjuverkaárásar á menningarmiðstöð á Austurbrú í Kaupmannahöfn árið 2015. Við fjöllum um manninn, teikningarnar, pólitíkina, trúarbrögð og andlát Lars Vilks í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Facebook frost og nýr forsætisráðherra í Japan
    Stór hluti heimsbyggðarinnar lagðist í fósturstellinguna í gær þegar nokkrir af stærstu samfélagsmiðlum heims, allir í eigu Facebook, lágu niðri í sex klukkustundir. Sex klukkutímar eru ekki stór tala í tímasögulegu samhengi, en það er óhætt að segja að það hafi farið um marga, og fólk komist að því hve ótrúlega mikið það reiðir sig á þessa samfélagsmiðla. Hlutabréf í Facebook hríðféllu og óttuðust margir að stóri gagnalekinn væri loks mættur.
    Japansþing gerði Fumio Kishida að hundraðasta forsætisráðherra Japan í gær. Kishida var kjörinn formaður stjórnarflokksins Frjálslynda lýðræðisflokksins í síðustu viku en fyrirrennari hans, Yoshihide Suga, tilkynnti fyrir skömmu að hann ætlaði ekki að sækjast eftir því að stýra flokknum eða landinu lengur eftir tæpt ár við stjórnvölinn. En af hverju tók Suga þá ákvörðun? Hver er arftaki hans? Hvað er næst á döfinni í Japönskum stjórnmálum? Við ræðum við Kristínu Ingvarsdóttur, lektor í japönskum fræðum við Háskóla Íslands í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nýr formaður KSÍ og níu hundruð þúsund tonn af loðnu
    Aukaþing Knattspyrnusambands Íslands var haldið á Hilton Nordica í Reykjavík á laugarag, þar var sjálfkjörin svokölluð bráðabirgðastjórn og formaður, sem munu sitja fram að ársþingi KSÍ í febrúar á næsta ári. Í nýrra stjórn eru fimm konur og tíu karlar, en síðustu stjórn voru þær aðeins tvær. Helstu fréttirnar eru þó auðvitað þær að við stjórnartaumunum tekur Vanda Sigurgeirsdóttir, hún verður nýr formaður fram í febrúar hið minnsta. Það hefur ekki farið fram hjá neinum að mikill styr hefur staðið í kringum A-landslið karla að undanförnu, og þess vegna var nú þetta aukaþing haldið. Stjórn KSÍ sagði af sér og formaðurinn Guðni Bergsson í lok ágústmánaðar vegna frétta af hymlingu knattspyrnusambandsins yfir kynferðisbrot leikmanna. Framundan eru tveir landsleikir á Laugardalsvelli; á föstudaginn koma Armenar í heimsókn og Lichtenstein á mánudag. Kristjana Arnarsdóttir íþróttafréttamaður er sest hjá mér og við ætlum að ræða aðeins um þennan nýja formann; og komandi leiki.
    Það ríkir mikil gleði í útgerðarþorpum víða um land, aðalleg á Austfjörðum og í Vestmannaeyjum þó, vegna þeirrar ákvörðunar Hafrannsóknarstofnunar að leyfa veiðar á rúmlega níuhundruð þúsund tonnum af loðnu fyrir komandi vertíð. Loðnukvótinn hefur ekki verið meiri í nærri 20 ár. Í fyrra var úthlutað tæplega 130.000 tonnum. Þessi aukni loðnukvóti á næstu vertíð gæti valdið minna atvinnuleysi og lægri verðbólgum, og hafa hagfræðingur spáð því að þessi ákvörðun Hafrannsóknarstofnunnar skili sér í vasa almennings. En hlýnun sjávar undanfarin ár hefur haft slæm áhrif á loðnustofna og með hækkandi hitastigi á jörðinni eru framtíðarhorfurnar ekki endilega góðar, þótt vel gefi nú. Hreiðar Þór Valtýsson fiskifræðingur og dósent við Háskólann á Akureyri lítur við í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Britney losnar við föður sinn og síðustu helfararréttarhöldin
    Dómari í Los Angeles hefur fallist á kröfu söngkonunnar Britney Spears um að faðir hennar verði settur af sem lögráðamaður hennar. Sjálfur hafði hann óskað eftir því að fá að hætta á eigin forsendum en dómarinn sagði að núverandi fyrirkomulag væri óboðlegt og skipaði endurskoðanda til að halda tímabundið utan um fjármál söngkonunnar sem hlaupa á milljörðum. Í örskýringu vikunnar segir Atli Fannar Bjarkason okkur frá öllu því nýjasta í máli Britney Spears.
    Réttarhöld í máli hinnar níutíu og sex ára Irmgard Furchner áttu að hefjast í gær í Þýskalandi. Furchner starfaði á tíma Þriðja ríkisins sem ritari á skrifstofu fangabúða nasista í Stutthof í Póllandi á árunum 1943 til 1945 og er ákærð fyrir að hafa með kerfisbundnum hætti átt þátt í dauða rúmlega tíu þúsund fanga. Ekkert varð þó úr réttarhöldunum í gær þar sem Fuchner lét aldrei sjá sig í réttarsal - heldur lagði hún á flótta, tók leigubíl frá hjúkrunarheimili sínu í átt að neðanjarðarlestarstöð, en náðist svo á rölti nokkrum klukkutímum síðar. Réttarhöldunum, sem gætu verið þau síðustu sinnar tegundar, síðustu réttarhöld vegna helfararinnar, hefur verið frestað til nítjánda október.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Konur og tölvuleikir og seðlabankastjóri um hámark greiðslubyrðar
    Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands ákvað í gær að setja reglur um hámark greiðslubyrðar. Reglurnar kveða á um að greiðslubyrðarhutfall fasteignalána skuli almennt takmarkast við þrjátíu og fimm prósent og fjörutíu prósent fyrir fyrstu kaupendur. Með þessu á að sporna við hækkandi fasteignaverði og aukinni skuldsetningu heimila og koma í veg fyrir að fólk yfirbjóði hvort annað og taki of mikla fjárhagslega áhættu. En sérfræðingar segja hættumerki á lofti á fasteignamarkaðnum um þessar mundir - Merki um að fasteignamarkaðurinn sé að leita í sömu átt og fyrir hrun. En hver er nákvæmlega staðan? Hvað felst í þessu úrræði? Hvernig mun það bæta úr stöðunni? Er hægt að fara aðrar leiðir að sama markmiði? Er ekki hætt við að úrræðið bitni á röngum aðilum á markaði, svo sem tekjulágum, eða fyrstu kaupendum? Eða gerir það einmitt öfugt? Við berum þessi álitamál og fleiri undir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra í seinni hluta þáttarins.
    Í fyrri hluta þáttarins kemur Kristjana Björk Barðdal tölvunarfræðingur í heimsókn til okkar og ræðir um stöðu kvenna í heimi tölvuleikja og rafíþrótta, en gerðu fulltrúar Samtaka leikjaframleiðanda (IGI), Rafíþróttasamtaka Íslands (RÍSÍ) og Game Makers Iceland (GMI) með sér samkomulag um öruggt starfsumhverfi.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Thunberg hjólar í ráðamenn og afganskar konur ofsóttar af tugthúslimum
    Viðbyrjum í Mílanó, en þar fer fram loftslagsráðstefna unga fólksins, Youth4Climate. Aðgerðarsinninn Greta Thunberg tók þar til máls og sagði ráðafólki, þar á meðal breska forsætisráðherranum Boris Johnson, til syndanna.
    Yfirtaka Talíbana í Afganistan hefur aukið á örbirgð í landinu. Og þrátt fyrir yfirlýsingar Talíbanastjórnar um að virðing verði borin fyrir réttindum kvenna í Afganistan er raunin önnur, líkt og aðgerðir þeirra bera merki um: Á aðeins örfáum vikum hefur konum hefur verið gert að halda sig heima, hylja líkama sinn og andlit og þeim meinaður aðgangur að menntun og störfum. Þá eru hundruðir (kvenkyns) dómara í felum eða á flótta undan mönnum sem þær dæmdu í fangelsi á ferli sínum en Talíbanar hafa nú sleppt lausum. Við förum betur yfir stöðu kvenna í Afganistan undir stjórn Talíbana í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Jafnaðarmenn í Þýskalandi í kjörstöðu og R Kelly dæmdur sekur
    En við byrjum í Þýskalandi, þar sem kosið var til sambandsþings um helgina. Eftir sextán ára setu á kanslarastóli er tími Angelu Merkel kominn, og allar líkur á því að Olaf Scholz, leiðtogi Jafnaðarmanna, taki við embætti kanslara. Jafnaðarmenn fengu ríflega fjórðung atkvæða og lýstu yfir sigri í kosningunum. Flokkurinn mun mynda ríkisstjórn ásamt Græningjum og Frjálslyndum demókrötum. Angela Merkel er þó líklega ekki á förum alveg strax, þar sem það getur tekið langan tíma að mynda ríkisstjórn í Þýskalandi. Og Armin Laschet, arftaki hennar og kanslaraefni Kristilegra demókrata, hann telur að flokkurinn eigi bara víst erindi í ríkisstjórn, þrátt fyrir að hafa tapað miklu fylgi frá síðustu kosningum. Guðmundur Björn tekur nú við.
    Í gær sakfelldi kviðdómur í New York ríki bandaríska tónlistarmanninn R. Kelly fyrir að hafa stýrt kynferðisglæpahring í um áratug, í fyrsta dómsmálinu af þó nokkrum vegna málsins. Hann á því yfir höfði sér fimmtán ára fangelsi og allt að lífstíðarfangelsi, en dómari á eftir að kveða upp refsingu í málinu. Saknæm, óviðeigandi og ólögleg háttsemi söngvarans virðist hafa verið á margra vitorði í gegnum árin, þótt lítið hafi verið viðhafst þar til nú, eftir langa og stranga baráttu brotaþola hans. Katrín skoðar málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…