Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Rafhlöður og Ndrangheta-mafían
    Við hefjum Hádegið í dag á tæknispjalli með Kristjönu Björk Barðdal, tæknisérfræðingi Hádegisins og hlaðvarpsstjórnanda UT hlaðvarps SKÝ. Í dag ætlum við að tala um rafhlöður, af öllum stærðum og gerðum.
    Fyrsta áfanga einna umfangsmestu réttarhalda í ítalskri sögu lauk fyrr í mánuðinum með sakfellingu sjötíu meðlima Ndrangheta mafíunnar - einna umsvifamestu glæpasamtaka heims. Enn er þó langt í land. Því eftir standa hinir þrjú hundruð fimmtíu og fimm sakborningarnir, sem meðal annars eru grunaðir um peningaþvætti og eiturlyfjasmygl, sem enn á eftir að rétta yfir. Það er því nóg um að vera hjá saksóknaranum Nicola Gratteri, sem hefur helgað starfsævina því að uppræta mafíur. Það hefur þýtt að hann hefur þurft að njóta lögregluverndar í rúma þrjá áratugi og færa ýmsar fórnir - svo sem í sínu persónulega lífi, hann hefur til dæmis ekki farið út að borða eða í bíó allan þann tíma. Við skoðum Ndrangheta mafíusamtökin og eitt umfangsmesta mál í réttarsögu Ítalíu í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Steve Bannon og Ásmundur Einar
    Steve Bannon, sem gengdi hlutverki aðalráðgjafa Donalds Trumps, fyrrum forseta Bandaríkjanna, mætti fyrir dómara í Washington D.C. í Bandaríkjunum í gær. Hann er ákærður fyrir að hafa sýnt Bandaríkjaþingi lítilsvirðingu í kjölfar rannsóknar Bandaríkjaþings á árásunum á þinghúsið í Washington í upphafi þessa árs og reynt að hindra framgang réttvísinnar. Auk þess að vera langtímabandamaður Trumps er Bannon einnigfyrrum bankastjóri og fjölmiðlamaður - sem nú rekur sitt eigið hlaðvarp.
    Í nýlegri skýrslu Barnaheilla um fátækt meðal barna er dregin upp dökk mynd af vaxandi barnafátækt í Evrópu. En talið er að um tuttugu og þrjú komma sjö prósent barna innan Evrópu búi við fátækt og félagslega einangrun að meðaltal. Og líklegt er að heimsfaraldur geri slæma stöðu verri. Staðan er einna alskást hér á landi, en þó benda samtökin á ýmislegt sem má betur fara. Við berum skýrsluna undir Ásmund Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og tökum stöðuna á málaflokknum, í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fjórða bylgjan og undankeppni HM lokið
    Íslenska karlalandsliðið í fótbolta lauk keppni í undankeppni HM í Katar í gær þegar liðið beið lægri hlut gegn Norður-Makedóníu í Skopje, 3-1. Á fimmtudag gerði liðið markalaust jafntefli við Rúmeníu í Búkarest. Íslensku drengirnir riðu ekki feitum hesti frá þessari undankeppni og endaði Ísland með 9 stig, í næst síðasta sæti riðilsins. Kristjana Arnarsdóttir ræðir við okkur um framtíð landsliðsins.
    Fjórða bylgja kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 sjúkdómnum ríður nú yfir evrópubúa jafnt sem Íslendinga. Í Austurríki hefur verið sett á útgöngubann fyrir óbólusetta, og í Þýskalandi búa þúsundir hermanna sig undir að rétta heilbrigðisþjónustunni hjálparhönd við bólusetningar þegar líður að jólum. Samkvæmt gögnum Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar hefur smitum fjölgað um 7 prósent í Evrópu síðustu vikuna og dauðsföllum um tíu af hundraði. Víða hefur verið gripið eða boðað til hertari sóttvarnaaðgerða vegna þessa, svo sem á Ítalíu, í Hollandi og Þýskalandi.
    Hér á landi voru sóttvarnarreglur hertar á föstudaginn og í dag hefst enn eitt bólusetningarátakið. Við tökum stöðuna á fjórðu bylgjunni í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Leigubílar og COP26 senn á enda
    Umræðan um fyrirkomulag leigubíla á Íslandi skýtur reglulega upp kollinum. Í vikunni blandaði ESA, eftirlitsstofnun EFTA, sér í málið og sendi frá sér tilkynningu þar sem kemur fram að reglur um leigubílaleyfi hér á landi séu ekki í samræmi við EES-samninginn. Samkvæmt núverandi löggjöf þarf atvinnuleyfi til þess að mega aka leigubíl á ákveðnum svæðum, gert ráð fyrir að leigubílstjórar tengist leigubílastöð á skilgreindu svæði og hafi aksturinn að aðalstarfi. Þetta telur ESA vera ólögmæta takmörkun á rétti fólks til að stofna til varanlegrar atvinnustarfsemi í öðru aðildarríki, eða svokölluðum staðfesturétti. Það er föstudagur og á föstudögum örskýrir Atli Fannar Bjarkason fyrir okkur flókin mál, og í dag tekur hann fyrir íslenska leigubílaumhverfið.
    Bjartsýni ríkti í Glasgow í gær um að samningur náist á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um aðgerðir sem gangi nógu langt til að markmið Parísarsamkomulagsins náist. Þá kynntu Bandaríkin og Kína samstarf í loftslagsmálum í fyrradag og hefur formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands sagt að það verði diplómatískt afrek ef samkomulag þjóðanna dugi til að tryggja samkomulag um mjög hertar aðgerðir í loftslagsmálum. Ný drög að samkomulagi loftslagsráðstefnunnar COP26 í Glasgow voru birt í morgun, en ráðstefnunni á að ljúka í dag. Halldór Þorbergsson formaður Loftslagsráðs lítur við í síðari hluta þáttarins og ræðir um það helsta sem fram fór á ráðstefnunni, og hvað er framundan.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • NFT og börn undir fátæktarmörkum í Evrópu
    Heimurinn stendur ekki í stað, kannski sem betur fer, og tæknin ekki sömuleiðis. Sum fyrirbæri sem við heyrum um í dag úr heimi tækninnar og vísindanna eru svo furðuleg að maður einfaldlega botnar ekkert í þeim. Eitt af þeim eru svokölluð NFT, sem Alti Fannar Bjarkason ræddi stuttlega í örskýringu í maí síðastliðnum. Þetta eru stafræn skilríki, einhverskonar þó, og nei við erum ekki að tala um stafrænt ökuskirteini hér. Þetta er miklu flóknara en svo, og til að ræða NFT nánar er Kristjana Björk Barðdal, sérfræðingur Hádegisins í öllu því sem viðkemur nýjustu tækni og vísindum.
    Í nýlegri skýrslu Barnaheilla um fátækt meðal barna er dregin um dökk mynd af vaxandi barnafátækt í Evrópu. Á Íslandi eru líkurnar á því að börn alist upp við fátækt og félagslega einangrun einna minnstar af þeim fjórtán Evrópuríkjum sem rannsókn samtakanna tekur til. Þrátt fyrir það benda samtökin hér á landi á ýmislegt sem betur megi fara. Auka þurfi jöfnuð innan menntakerfisins og tryggja börnum húsnæðisöryggi svo dæmi séu nefnd. Þá þurfi að setja opinbera stefnu eða áætlun um hvernig eigi að uppræta fátækt meðal barna hér á landi. En Ísland er eina þátttökuríkið sem ekki hefur slíka stefnu nú þegar. Við könnum stöðuna betur í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Líbanska ríkið að hruni komið og skyldubólusetningar
    Líb­anska rík­ið er að hruni kom­ið og samfélagið í molum eft­ir röð áfalla. Á dögunum voru skotbardagar á götum höfuðborgarinnar sem hafa verið sjaldséðir borgarastríðinu lauk fyrir rúmum þremur áratugum. Klíkustarfsemi, landlæg spilling, stjórnarkreppa, algjört efnahagshrun og risavaxin sprenging sem grandaði stórum hluta höfuðborgarinnar Beirút, eru meðal þeirra fjölmörgu vandamála sem Líbanir glíma nú við. Evrópusambandsríkin hafa áhyggjur af stöðu mála, ekki síst vegna þess fjölda flóttamanna sem Líbanon hýsir. Óttast er að þeir leggi land undir fót og stefni til Evrópu þar sem ástandið er orðið óbærilegt. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda er á línunni og ræðir við okkur um Líbanon.
    Ráðamenn heimsins hafa gengið mislangt í ráðstöfunum vegna heimsfaraldurs. Á meðan sum ríki leggja fram tilmæli setja önnur lög, svo sem um sérstaka heilsupassa svokallaða eða bólusetningarskyldu. Þjóðir hafa brugðist við aðgerðum stjórnvalda og víða hefur þeim verið mótmælt, þau sögð ganga of langt, of nærri frelsi einstaklingsins og jafnvel á mannréttindi. Þetta er tilfellið í Bandaríkjunum þar sem ellefu ríki láta nú reyna á lögmæti laga og tilskipanir bandaríkjastjórnar fyrir dómstólum. Katrín kíkir á málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Líffæragjafir dýra og eldfim staða á landamærum Póllands
    Við byrjum á læknavísindunum: Bandarískir læknar tóku í október stórt skref í átt að því að gera ígræðslu líffæra úr dýrum í menn að veruleika nú á dögunum þegar bandarískir læknar græddu nýra úr svíni í mann. Tilraunin hefur vakið von í brjósti margara um framtíðarmöguleika aðferðarinnar. En á sama tíma er ekki hægt að líta fram hjá þeim siðferðilegu álitamálum sem vakna.
    Þúsundir flóttamanna frá Mið-Austurlöndum hafast nú við á landamærum Hvíta-Rússlands að Póllandi og freista þess að komast yfir í ríki Evrópusambandsins í von um betra líf. Pólski herinn hefur vígbúist við landamærin og staðan er eldfim. Allt er þetta liður í pólitískri refskák Aleksander Lúkasjenka, forseta Hvíta-Rússlands, sem hefur boðið flóttamenn velkomna til Hvíta-Rússlands í þeim tilgangi einum að koma þeim yfir á ríki Evrópusambandsins. Ástæðan eru viðskiptaþvinganir sem Lúkasjenka kann illa við. Við skoðum þessa forvitnilegu stöðu sem upp er komin á landamærunum í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Kostir og gallar netheima
    Við leiðum hugann að tæknitímum og þróun í Hádeginu í dag - efni sem nú er einhvern vegin orðið alltumlykjandi.
    Við byrjum á jákvæðu nótunum: Því ógrynni aðgengilegra og gagnlegra upplýsinga sem alnetið geymir. Bara á alfræðivefnum Wikipedia má finna 56 milljónir greinar á 316 tungumálum. En vefurinn, sem óx ört frá stofnun, er orðinn tuttugu ára. Pistillinn var fyrst fluttur 15. janúar 2021.
    Í seinni hluta þáttarins beinum við sjónum okkar að valdi samfélagsmiðla, sem fer vaxandi eftir því sem tækninni vindur fram: Með hverri nýrri uppfærslu, nýju spennandi appi, fleiri vinum á samfélagsmiðlum og nýjum Iphone með enn fleiri myndavélar.
    Og þetta vald þessara einkafyrirtækja nær inn á hin ýmsu samfélagssvið, líka hvað varðar tjáningarfrelsið og ritskoðun. Er sú þróun áhyggjuefni? Hvernig lítur framtíðin út í þessum efnum? Við berum málið undir Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar. Pistillinn var fyrst fluttur 23. febrúar 2021.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Dramatík í verkalýðshreyfingunni og átökin í Eþíópíu
    Það hefur líklega ekki farið fram hjá neinum sem fylgist með fréttum að formaður stærsta stéttafélags landsins, Eflingar - Sólveig Anna Jónsdóttir, sagði af sér í vikunni. Sólveig kom eins og stormsveipur inn í íslenska verkalýðsbaráttu þegar hún var kjörinn formaður fyrir þrmur árum - og hefur alla tíð staðið fyrir nokkuð róttækri stéttabaráttu, á ansi stormasamri og tíðindamikilli stjórnartíð. Hún tók við af Sigurði Bessasyni sem hafi gegnt embætti formanns í tuttugu ár; og vann Sólveig stórsigur í formannskjörinu. En nú er tími hennar á enda, og Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflinar, fór að fordæmi formannsins og ekk út sömuleiðis. Í kjölfarið voru fluttar ótal fréttir af starfsemi Eflingar og innanhússátökum, sem er hreint ekki auðvelt að skilja. Það er föstudagur og á föstudögum örskýrir Atli Fannar Bjarkason flókin mál á einfaldan hátt.
    Sveitir uppreisnarmanna úr Tigray-héraði í norðurhluta Eþíópíu, hafa sótt í sig veðrið undanfarna daga. Stjórnvöld í landiu lýstu yfir neyðarástandi í landinu öllu á þriðjudag, og var íbúum höfuðborgarinnar Addis Ababa skipað að taka þátt í að verja borgina, þar sem uppreisnarsveitirnar stefndu þangað. Tigray liðar sækja nú í sig veðrið og hóta því að ná höfuðborginni á sitt vald. Helen María Ólafsdóttir hefur starfað fyrir þróunarstofnun Sameinuðu þjóðanna, UNDP, víða um heim; meðal annars í Súdan, Súður Súdan, og Sómalíu, þar sem hún starfar nú. Hún hefur dvalið töluvert í Eþíópóu, enda er Afríkusambandið með höfuðstöðvar þar. Helen sest niður með okkur í síðari hluta þáttarins, ræðir þessi átök og baksögu þeirra.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Borgarastríðið í Jemen og meira um netlöggur og Petito
    Stærsta hörmungasvæði heims er Jemen að mati sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna og hvergi í heiminum eru fleiri í alvarlegri nauð. 29 milljónir búa í landinu og af þeim eru 24 milljónir algjörlega háðar alþjóðlegri mataraðstoð, það er svipaður fjöldi og býr í allri Ástralíu. Þar braust út borgarastríð árið 2015, stríð sem stundum er kallað gleymda stríðið - þar sem fókus vestrænna miðla hefur veirð annarsstaðar, meðal annars á átökunum í Sýrlandi. Um 100.000 manns hafa látist í þessum, þar af um 12.000 óbreyttir borgarar, og um 50.000 særst. Sér í lagi hafa stríðsátökin komið illa niður á jemenskum börnum. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, ræðir um þessi átök við okkur í fyrri hluta þáttarins.
    Hin unga bandaríska Gabrielle Petito var myrt. Talið er að Brian Laundrie, unnusti hennar og ferðafélagi, hafi tekið hana kyrkingartakinu sem varð að endingu dánarorsök hennar. Því miður er það ekki einsdæmi að kona látist vegna ofbeldis í nánu sambandi, en eins og við vitum eru dæmin æðimörg. Samt einhverra hluta vegna hefur þetta einstaka mál náð að fanga athygli fjölmiðla og netverja á heimsvísu. Almenningur hefur fundið sig knúinn til að taka þátt í rannsókn málsins í netheimum og á samfélagsmiðlum. Og sú þátttaka athugula samfélagsmiðlanotenda leiddi til dæmis til þess að lík hennar fannst að endingu. En hvað er það við einmitt þetta mál sem kallaði svo á athygli fjölmiðla og samfélagsmiðlanotenda - og hélt henni og þeim við efnið? Við spyrjum Mar­gréti Valdi­mars­dótt­ur, doktor í afbrota­fræði og dós­ent í lög­reglu­fræðum við Háskól­ann á Akur­eyri, nánar út í það í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…