Hádegið

Hádegið

By RÚV
Download on the App Store

Hádegið episodes

  • Log4j og Tikhanovsky í átján ára fangelsi
    Ríkislögreglustjóri lýsti yfir óvissustigi Almannavarna í samráði við netöryggissveitina CERT-IS og fjarskiptastofu vegna Log4j veikleikans svokallaða. Unnið er að viðbragðsáætlun um hvernig beri að vernda ómissandi upplýsingainnviði. Mörg hjörtu taka aukaslag þegar fréttir sem þessar berast og óttast að persónulegar upplýsingar, skilaboð og annað, gæti farið í almenna dreifingu. Ríkislögreglustjóri telur þó að almenningur þurfi ekki að óttast veikleikann þegar kemur að heimilistölvunni eða farsímum. En hvað er þetta fyrirbæri, Log4J? Kristjana Björk Barðdal, tæknisérfræðingur Hádegisins svarar því.
    Sergei Tikhanovsky, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Hvíta-Rússlandi, var í gærmorgun dæmdur í átján ára fangelsi fyrir að skipuleggja og hvetja til óeirða og mótmæla gegn stjórnvöldum. Tikhanovsky hefur verið í haldi frá því í maí í fyrra þegar hann ákvað að skora forseta landsins til 27 ára - Alexander Lukashenko - á hólm í forsetakosningum. Eiginkona Tikhanovskys, Svetlana Tikhanovskaya, tók við við keflinu og framboðinu þegar hann var tekinn höndum. Bæði hún og Lukashenko lýstu yfir sigri í kosningunum - en þar sem Lukashenko sat sem fastast neyddist Tikhanovskaya til að flýja land vegna harðra aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum og mótmælendum sem töldu kosningarnar spilltar og ólýðræðislegar. Tikhanovskaya heldur þó baráttunni áfram, jafnvel þótt hún sé niðurkomin í nágrannaríki Hvíta-Rússlands. Baráttu sem hún segir að þau stjórnarandstæðingarnir muni að endingu vinna sigur í - og það áður en eiginmaður hennar verði búinn að dúsa á bak við lás og slá í átján ár.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur..
    58 min
  • Vopnkaup SAF, samfélagsmiðlar og fjölmiðlar
    Við byrjum í Mið-Austurlöndum. Á dögunum fjallaði Katrín hér í Hádeginu um að vopnasala blómstri í miðjum heimsfaraldri. Covid-19 fær víst ekki stöðvað hildarleiki og stríðsherrar jafnt sem ríkisstjórnir víða um heim versla vopn sem aldrei fyrr. En, þrátt fyrir það virðist nú sem risavaxinn vopnasölusamningur Bandaríkjastjórnar við Sameinuðu-arabísku furstadæmin vera runninn út í sandinn, í bili. Persaflóaríkin hafa vígbúist hratt síðustu misseri og mannréttindasamtök gagnrýna vesturveldin fyrir að hagnast á vígbúnaðarkapphlaupin, meðal annars með skelfilegum afleiðingum fyrir almenna borgara í Jemen þar sem sprengjunum rignir. Það eru þó ekki mannréttindasjónarmið heldur efnahagslegar deilur Bandaríkjastjórnar við Frakka og Kínverja sem sem hafa sett vopnakaupin í uppnám. Gunnar Hrafn Jónsson blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda, segir okkur meira.
    Í fyrsta sinn frá því 1935 þótti nóbelsverðlaunanefndinni tilefni í ár til að tileinka fjölmiðlun og fjölmiðlamönnum friðarverðlaun Nóbels. Þeirri stétt sem stendur vörð um tjáningarfrelsið og lýðræðið, eins og formaður nefndarinnar orðaði það. Vinningshafarnir tveir - blaðamennirnir María Ressa frá Filippseyjum og Dmitry Muratov frá Rússlandi lýstu yfir áhyggjum sínum af stöðu mála við verðlaunaafhendinguna - áhyggjum tengdum samfélagsmiðlum - viðamiklu valdi þeirra og yfirburðarstöðu. Við fjöllum um stöðu samfélagsmiðla og fjölmiðlunar í seinni hluta þáttarins og ræðum við Elfu Ýr Gylfadóttur, framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar um upplýsingaóreiðu, falsfréttamennsku, Facebook, Twitter og allt þetta
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur..
    58 min
  • Friðarverðlaunahafar og framtíð Julian Assange
    Það er ekki beint glænýtt að fjölmiðlun og fjölmiðlafrelsi falli í grýttan jarðveg - svo sem hjá valdhöfum og þeim sem ráða. Þegar litið er til hlutverks fjölmiðla, sem er að upplýsa, miðla, rýna og veita þeim sem valdið hafa aðhald, liggur það kannski augum uppi að ekki kunni allir ráðamenn gott að meta hvað þetta varðar. Það sem er sem sagt kannski nýtt í þessu er þróunin - að það virðist færast í aukana að vegið sé að fjölmiðlum, fjölmiðlafrelsi og fjölmiðlamönnum. Til dæmis, samkvæmt CPJ - alþjóðlegri nefnd um verndun blaðamanna, var nýtt met slegið í þessum efnum í ár: Metfjöldi blaðamanna var handtekinn á heimsvísu á árinu eða tvö hundruð níutíu og þrír. Og þá voru minnst tuttugu og fjórir myrtir starfa sinna vegna.
    Og það er kannski einmitt vegna þessarar þróunar sem Nóbelsverðlaunanefndin ákvað í ár - í fyrsta sinn síðan 1935 - að tileinka blaðamönnum friðarverðlaun Nóbels. Handhafar verðlaunanna eru blaðamennirnir María Ressa frá Filippseyjum og Dmitry Muratov frá Rússlandi fyrir framlag sitt til varnar tjáningarfrelsinu, frumforsendu lýðræðis og varanlegs friðar. En það var um tíma tvísýnt hvort Ressa fengi yfirhöfuð heimild frá yfirvöldum í heimalandi sínu til að fara til Noregs og taka við verðlaununum - til þess þurfti hún leyfi fjögurra filippseyskra dómstóla af þeim sjö sem nú reka mál gegn henni vegna starfa hennar.
    Dómsmál, lagabreytingar, frelsissvipting og annað slíkt hefur oft reynst vera gott vopn í höndum þeirra sem vilja hefta tjáningar- og fjölmiðlafrelsið. Það á einnig við í tilfelli uppljóstrarans Julians Assange. - Áfrýjunardómstóll í Lundúnum komst nýverið að þeirri niðurstöðu breskum stjórnvöldum sé heimilt að framselja Assange, stofnanda WikiLeaks, til Bandaríkjanna - þar sem bandarísk stjórnvöld bíða eftir að fá að rétta yfir honum fyrir að birta hundruð þúsunda leyniskjala tengd átökunum í Írak og Afganistan á árunum 2010 og 2011. Við fjöllum nánar um málið í síðari hluta þáttarins og ræðum þá við Kristin Hrafnsson, ritstjóra Wikileaks.
    En við byrjum á fjölmiðlaumhverfinu og friðarverðlaunahöfunum
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur..
    58 min
  • Hvirfilbyljir í Kentucky og áhrif loftslagsbreytinga á náttúruhamfarir
    Við byrjum á náttúruhamförunum í Bandaríkjanum. Óttast var að vel yfir hundrað manns hafi látist í Kentucky-ríki þegar kröftugir hvirfilbyljir riðu yfir nokkra bæi í ríkinu aðfaranótt laugardags, en nú er talið að sú tala sé ekki svo há. Þetta er eitt versta óveður í manna minnum. Bandaríkjaforseti hefur heitið ríkisstjórn Kentucky allri þeirri aðstoð sem stjórnvöld geta veitt við leit að fólki og við uppbyggingu í þeim bæjum sem urðu verst úti. Þá ýjaði hann að því, sem fyrr segir - að hvirfilbyljirnir væru afleiðingar loftslagsbreytinga.
    En hafa loftslagsbreytingar áhrif á náttúruhamfararir? Eða, gerir hlýnun jarðar það að verkum að ákveðnar tegundir náttúruhamfara, eins og til dæmis hvirfilbylir, eru að verða algengari? Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur situr fyrir svörum í síðari hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Nýr þjóðarleikvanvur og afrek Blikastúlkna í Meistaradeildinni
    Á dögunum fjölluðum við í Hádeginu um aðstöðuleysi íslensku landsliðanna í handbolta og körfubolta, sem þurfa nú að leika heimaleiki sína erlendis, þar sem Laugardalshöll stenst ekki alþjóðlegar kröfur alþjóðahanknattleiks- og körfuboltasambandsins. Þá þykir Laugardalsvöllur einnig ekki vera upp á marga fiska í alþjóðlegu samhengi, og hafa forsvarsmenn HSÍ, KKÍ og KSí lengi kallað eftir því að stjórnvöld gyrði sig í brók og sjái til þess að aðbúnaður íslensku landsliðanna, heimavellirnir, standist alþjóðlegan samanburð. Nú kann að verða breyting þar á, með nýjum ráðherra íþróttamála.
    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, gladdi eflaust marga í gær þegar hann sagði hug sinn standa til þess að á kjörtímabilinu yrði hægt að fara á heimaleiki á nýjum þjóðarleikvangi. Ásmundur Einar fer með málefni íþrótta í nýrri ríkisstjórn og var spurður út í málið í þættinum Pallborðinu á Vísi. Hann bætti þó við að varnagla þyrfti að setja á framkvæmdatíma og fleira.
    En af hverju liggur svona mikið á að henda upp nýjum þjóðarleikvangi? Erum við ekki í góðum málum í Laugardalnum? Við skulum skoða málið í örskýringu vikunnar hér í Hádeginu.
    Kvennalið Breiðabliks í fótbolta beið lægri hlut fyrir Real Madrid á Kópavogsvelli á miðvikudag í næst síðasta leik B-riðils Meistaradeildar Evrópu. Blikastúlkur eru á botni riðilsins með aðeins 1 stig, eiga enn eftir að skora mark í keppninni. Einn leikur er eftir, gegn Frakklandsmeisturum Paris St. Germain í París. En afrek Blikastúlkna er engu að síður mikið. Þær eru fyrsta íslenska knattspyrnuliðið sem leikur í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Eva Björk Benediktsdóttir íþróttafréttmaður ræðir við okkur í síðari hluta þáttarins um afrek Blikastúlkna.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Fjölmiðlafrelsi í Mið-Austurlöndum og vopnasala blómstrar í Covid
    Síðustu daga höfum við fjallað um fjölmiðla og hvað veldur því að þetta en ekki hitt sé tekið til umfjöllunar í fjölmiðlum. Fjölmiðlalandslag heimsins er æði fjölbreytt og ekki allstaðar sem fjölmiðlafólk nýtur viðlíka frelsis til tjáningar eins og hér á landi. Alræðisstjórnir hafa notað baráttuna gegn hryðjuverkum og Covid-19 faraldrinum sem yfirskin til að klekkja á mannréttindasamtökum um allan heim og hindra störf blaðamanna sem hafa reynt að skjalfesta brot ráðamanna og umfang faraldursins. Ógnarstjórnir skerða þannig enn frekar lýðræðisleg réttindi þegna sinna og hefta upplýsingaflæði til almennings, sem veikir lýðheilsumarkmið varðandi Covid, stuðlar að kosningasvindli og mannréttindabrotum. Þetta er niðurstaða nýrrar samantektar á vegum samtakanna Fréttamenn án Landamæra. Svört skýrsla svo ekki sé meira sagt. Langverst er ástandið sagt vera í Miðausturlöndum og Norður-Afríku en á því svæði eru 9 af 10 þeim ríkju þar sem starfsöryggi og líf blaðanna eru í mest bráðri hættu. Gunnar Hrafn Jónsson, blaðamaður og sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda ræðir við okkur um skýrsluna.
    Það hefur orðið efnahagssamdráttur vegna heimsfaraldurs. Hann plagar flesta - flesta einstaklinga, fyrirtæki, stofnanir, ríki og ríkisstjórnir heimsins - en þó ekki alveg allt og alla. Til dæmis, og kannski eðli málsins samkvæmt, virðast ákveðin lyfja- og bóluefnafyrirtæki mala gull á þessum tímum veiru. Þá hafa margar netverslanir það gott, greiðsluþjónustufyrirtæki og póstendingarþjónustur á þessum tímum útgöngubanna og lokana. - Já og svo vopnaframleiðslufyrirtæki, en hundrað stærstu vopnaframleiðendur heims högnuðust á síðasta ári. Í árlegri úttekt Alþjóða friðarrannsóknarstofnunarinnar í Stokkhólmi kemur fram að hagnaður þeirra hafi numið um einu komma þremur prósentum á sama tíma og efnahagur heimsins dróst saman um þrjú prósent. Ríkisstjórnir heimsins virðast því ekki hafa séð tilefni til þess að skera niður í vopnakaupum í Covid-kreppu. Jafnvel þvert á móti - því samkvæmt úttektinni hafa sum ríki gripið til aðgerða til verndar og stuðnings vopnaframleiðendum. Við skoðum málið í seinni hluta þáttarins.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Rússar vígbúast og hver ræður því hvað er í fréttum?
    Við hefjum Hádegið í dag á umfjöllun um herðnaðarumsvif Rússa við úkraínsku landamærin. Vladimír Pútín Rússlandsforseti og Joe Biden forseti Bandaríkjanna funduðu í gær í um tvær klukkustundir. Rússar hafa aukið við herafla sinn við landamærin að Úkraínu og óttast Bandaríkin og Evrópusambandsríkin að Rússar gætu reynt að innlima enn stærri hluta Úkraínu inn Rússland strax snemma á næsta ári.
    Mikilvægi fjölmiðla hefur kannski sjaldan verið augljósara en einmitt nú á tímum heimsfaraldurs - þar sem hlutirnir gerast og breytast á ógnarhraða - Og fjölmiðlar virðast vera að standa sína pligt - að minnsta kosti berast okkur fregnir af covid hægri vinstri, dag eftir dag eftir dag á flestum fréttaveitum og miðlum - jafnvel enn eftir næstum tvö ár af veiru. Og á meðan sumir fá hreinlega ekki nóg af heimsfaraldursfregnum, finnst öðrum alveg nóg komið. Enn aðrir eru jafnvel orðnir ónæmir fyrir veirufréttum - þær orðnar eins og suð í sjónvarpsskjá - En hvenær er komið gott? Hvað eiga fjölmiðlar að gera þegar mál varða heimsbyggðina alla, eru alltumlykjandi, og virðast engan endi ætla að taka? Fjalla endalaust um veiru - og það kannski á kostnað annarra frétta? Eða láta bara gott heita á einhverjum tímapunkti? Hvernig ákveða fjölmiðlar yfir höfuð hvað þeir taka til umfjöllunar? Og hversu mikla umfjöllun ákveðin mál fá? Og hvaða máli skiptir það? Við bárum málið undir Valgerði Önnu Jóhannsdóttur, lektor í blaða- og fréttamennsku við Háskóla Íslands.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Truth Social og Aung San Suu Kyi dæmd í fangelsi
    Við hefjum Hádegið í dag í Bandaríkjunum. Donald Trump, fyrrum Bandaríkjaforseti, vinnur nú að stofnun síns eigin samfélagsmiðils. Lokað var fyrir reikninga Trumps á Facebook og Twitter fyrr á þessu ári.
    Í síðari hluta þáttarins förum við til Mjanmar. Dómstóll herforingjastjórnarinnar í Mjanmar hefur dæmt Aung San Suu Kyi í tveggja ára fangelsi. Suu Kyi er fyrrum leiðtogi landsins og formaður NLD-flokksins sem hlaut meirihluta á þingi í kosningum skömmu fyrir valdarán hersins í febrúar. Suu Kyi var sett í hald í valdaráninu og síðan þá hefur herstjórnin lagt fram hverja ákæruna af annarri á hendur henni. Í gær var hún dæmd í fjögurra ára fangelsi fyrir að hvetja til ófriðar og fyrir brot á sóttvarnalögum. Dómurinn var seinna sama dag styttur í tvö ár. Hins vegar á hinn sjötíu og sex ára gamli friðarverðlaunahafi Nóbels yfir höfði sér allt að hundrað ára fangelsi verði hún dæmd sek fyrir öll hin ákæruatriðin sem bíða þess að verða tekin fyrir í dómstóli herforingjastjórnarinnar, sem gagnrýnendur segja langt frá því að vera óvilhallur og sanngjarn.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Austurríska undrabarnið og niðurstöður kosninga kærðar til MDE
    Við byrjum í Austurríki. Sebastian Kurz sagði af sér kanslaraembætti í Austurríki í haust vegna spillingamála. Hann var yngsti kanslarinn í sögu landsins, aðeins þrjátíu og eins árs þegar hann tók við embætti. Í síðustu viku sagði hinn nú 35 ára gamli Kurz formannsembætti sínu í austurríska þjóðarflokknum lausu, og kvaðst vera hættur í stjórnmálum. En hver er þessi maður, hvernig komst hann til valda og hvað varð honum að falli?
    Magnús Davíð Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, greindi frá því í lok síðasta mánaðar að hann ætli sér að kæra framkvæmd kosninganna í kjördæminu til Mannréttindadómstóls Evrópu. Magnús lagði í fyrstu fram kæru til Alþingis vegna stöðunnar í Norðvesturkjördæmi, og krafðist ógildingar kosninganna í kjördæminu. Hann segir að þeir 42 þingmenn, sem staðfestu útgefin kjörbréf og þar með niðurstöðu seinni talningar, þurfa að íhuga stöðu sína og framtíð fari svo að málið vinnist fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Magnús lítur við í síðari hluta þáttarins
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min
  • Mannanafnanefd og HM í Katar
    slendingar hafa rifist um mannanöfn alla tíð og við sjáum reglulega fréttir um nöfn sem svokölluð mannanafnanefnd hafnar eða samþykkir.
    En hvenær settum við á fót sérstaka nefnd sem ræður hvað heitir og er tíðkast þetta einhvers staðar annars staðar? Hver er í mannanafnanefnd og eftir hvaða reglum starfar hún? Við skulum skoða málið í örskýringu en það mætti segja að örskýring sé nýyrði og við ættum kannski að leita samþykkis fyrir því hjá sérstakri efnisflokkanafnanefnd, eða hvað? Atli Fannar Bjarkason kíkir í heimsókn með örskýringu vikunnar.
    Tveir norskir fjölmiðlamenn voru handteknir í Katar fyrir tveimur vikum og sátu tvo sólarhringa í haldi lögreglu. Mennirnir, sem starfa fyrir norska ríkisútvarpið NRK, voru þar í fréttaöflun í tengslum við heimsmeistaramót karla í fótbolta sem fer fram í Katar eftir ár. Stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd af mannúðarsamtökum út um allan heim fyrir aðbúnað verkafólks sem unnið hefur síðustu ár hörðum höndum að uppbyggingu mannvirkja fyrir mótið. Fjölmiðlamennirnir ætluðu að taka viðtal við mann sem hefur gagnrýnt stjórnvöld, en sá maður var handtekinn aðeins nokkrum klukkustundum áður en viðtalið átti að fara fram. Í síðari hluta þáttarins ræðum við við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson um meint mannréttindabrot Katara í aðdraganda HM og þá ákvörðun alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, að veita Katörum réttinn til að halda mótið.
    Hádegið er fréttaþáttur sem er á dagskrá alla virka frá 12 til 13 í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur.
    58 min

About Hádegið

From the publisher's feed

Hádegið er daglegur fréttaskýringaþáttur í umsjón Guðmundar Björns Þorbjörnssonar og Katrínar Ásmundsdóttur. Fjallað er um innlend og erlend fréttamál, menningu, íþróttir og daglegt líf.…