Gestur þáttarins að þessu sinni var Baldvin hinn Fróði Hauksson þjálfari akademíunnar í Kópavogi.
Í þættinum fórum við yfir 7. umferðina í Olís-deild karla, ræddum aðeins um Grillið og tvær meiðslasögur duttu inn í lokin.
Umferðin var söguleg í meira lagi því fjórir leikir af sex enduðu með jafntefli og mikil umræða skapaðist á samfélagsmiðlum yfir dómgæslunni. Þjóðin er greinilega að fylgjast með þjóðarsportinu.
Auk þess völdum við Coolbet leikmann umferðarinnar.
- Langur dagur í Mosó
- Dómararnir stálu senunni í Pizzabænum
- Sömu dómarar við störf í Eyjum þar sem Agnar Smári og Róbert Aron eignuðu sér sinn gamla heimavöll
- Læðan læddist og ungu strákarnir stóðu sig vel í Austurblokkinni
- Tarik "the clutch" Kasumovic
- Stál í stál á Nesinu
- Framarar teknir í Stjörnuna
- Fjölnir að pakka saman óspennandi Grill66-deildinni
- Meiðslasögur úr 220
- Coolbet leikmaður umferðarinnar í boði Coolbet