
Sign up to save your podcasts
Or


Hólmar Örn Eyjólfsson, fráfarandi fyrirliði Vals í fótbolta, hefur lagt knattspyrnuskóna á hilluna eftir langan feril. Hólmar hóf ferilinn hjá HK hér á landi en fór ungur til West Ham á Englandi. Hann átti sín bestu ár í Rosenborg fyrir smá brölt í Ísrael og Búlgaríu áður en hann sneri aftur til Rosenborgar fyrir heimför.
Hann var um tíma leikjahæsti U21 árs landsliðsmaður Íslands og var fyrirliði liðs sem fór á EM í aldurflokknum í fyrsta sinn og var stýrt af föður hans, fyrrverandi landsliðs- og atvinnumanninum Eyjólfi Sverrissyni. Það lið taldi til að mynda Gylfa Sigurðsson, Aron Einar Gunnarsson og fleiri sem voru í gullaldarliði Íslands sem fór síðar á EM 2016 og HM 2018.
Hólmari tókst ekki að vinna Íslandsmeistaratitil á sex árum með liði Vals sem átti erfitt sumar. Hólmar gerir upp ferilinn, sigrana og vonbrigðin og ræðir stöðuna á Val er hann gerir upp ferilinn.
Andri Lucas Guðjohnsen hefur verið að slá í gegn hjá Blackburn enda hefur hann raðað inn mörkum og er næstmarkahæsti leikmaður enski Championship deildarinnar. Hann ræðir Guðjohnsen fárið í Blackburn, drauma fyrir framtíðina og íslenska landsliðið.
Emil Atlason er að fara til Fram þar sem hann hittir fyrir sinn gamla þjálfara, Rúnar Kristinsson. Magnús Már má ekki fara til Breiðabliks og spurning hvað mamma hans, Hanna Símonardóttir, segir við því. Man. Utd þarf að sanna sig og stórleikur milli Liverpool og Arsenal.
Yfirlýsing Fylkis frá í gær er félagið tilkynnti að Heimir Guðjónsson væri á förum frá félaginu var einkennileg svo ekki sé meira sagt. Besta sætið fer yfir hana en Heimir er svo að skrifa undir hjá ÍA. Stuðullinn á Magnús Má Einarsson sem næsti þjálfari Blika lækkaði hratt eftir viðtal Vísis í gær. Liverpool slapp svo með skrekkinn í deildabikarnum.
Leit Blika að nýjum þjálfara er í hámarki og margir um hituna. Besta sætið fer yfir stöðuna í þjálfaramálunum. Ræðir einnig óvænt tap Arsenal í gær og svo er Orri Steinn orðaður við Everton. Passið ykkur svo ef þið kastið rusli út um gluggann. Besta sætið mun elta ykkur uppi.
Stjarnan er búin að tilkynna nýjan þjálfara formlega sem og nýjan yfirmann knattspyrnumála. Blikar eru í þjálfaraleit og standa á tímamótum. Michael Carrick lifði gærdaginn af sem þjálfari Man Utd og mun stýra liðinu um næstu helgi.
Körfuboltamaðurinn Veigar Páll Alexandersson hefur verið dæmdur í tólf mánaða keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi síðastliðið vor. Hann spilar því líklega ekkert með Njarðvík á þessari leiktíð í Bónusdeildinni.
Veigar tók ADHD-lyf í tengslum við próflestur síðasta vor og það mældist í lyfjaprófi eftir leik með Njarðvík gegn Grindavík í úrslitakeppninni síðastliðið vor. Við hittum Veigar á heimili hans í Njarðvík.
Michael Carrick hefur væntanlega stýrt sínum síðasta leik með Man. Utd. Stuðningsmenn kenna honum ekki um lélegt gengi liðsins. Besta deild karla er búin og KA stendur frammi fyrir stórum spurningum á næstu vikum.
Amin Cosic varð í vikunni nítjándi Íslendingurinn til að spila í Meistaradeild Evrópu er hann kom inn á sem varamaður með Noregsmeisturum Viking gegn Aston Villa á Villa Park.
Aðeins 15 mánuðir eru síðan hann lék með Njarðvík í Lengjudeildinni hér á landi og uppgangur hans verið hreint lygilegur, enda kominn í Meistaradeildina með viðkomu í KR á skömmum tíma.
Að baki er mikil vinna en Amin bætti á sig átta kílóum af vöðvum á undirbúningstímabilinu með KR síðasta vetur og tala menn í Vesturbænum um að þeir hafi vart séð leikmann bæta sig eins ört á skömmum tíma.
Valur Páll Eiríksson ræddi þennan öra uppgang við Amin stuttlega í Besta sætinu.
Besta sætið er komið í hátíðarskap og tók nokkur vel valin jólalög. Lyfjamál Veigars Páls í Njarðvík var útskýrt í þaula, spáð í botnbaráttu Bestu deildar karla og einnig rennt yfir körfuboltann.
From the publisher's feed
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.
Ranked by our users in the last 21 days

139 Listeners

11 Listeners

5 Listeners

22 Listeners

15 Listeners

2 Listeners

1 Listeners

1 Listeners