Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.... more
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.
May 15, 202615. maí - Þreföld öryggisgæsla í GrindavíkGrindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum. Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn?FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf, er Chelsea í séns en Manchester City verður að teljast sigurstranglegri eftir að hafa hvílt allar helstu stórskytturnar.Spennan magnast í enska boltanum og heil umferð fer fram í Bestu deild karla. Að ógleymdu PGA meistaramótinu, þar sem Rory McIlroy hefur látið kosta Nike margar milljónir dollara....more28minPlay
May 13, 202613. maí - Þetta er svo asnalegt hjá KaneDeAndre Kane gaf Stólunum puttann á Króknum og allt er brjálað. Strákarnir okkar unnu í Egyptalandi og Arnar Gunnlaugs valdi Ögmund Kristins í landsliðið. Hann reyndar valdi tvo hópa í dag. ...more26minPlay
May 12, 202612. maí - Ætla að kveikja í tréslaufu RúnarsRúnar Ingi Erlingsson á ekki von á góðu í ferðalagi dagsins á Krókinn enda stendur til að kveikja í einni af hans frægu tréslaufum. Einnig er rennt yfir handbolta kvöldsins en Valur getur orðið Íslandsmeistari. Njarðvík er í toppstöðu í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna og Tottenham er enn í kröppum dansi í enska boltanum....more21minPlay
May 11, 202611. maí - Hvar er eiginlega samræmið?VAR-dómurinn í leik West Ham og Arsenal er á vörum allra í dag. Það verður líklega eitthvað rifist um hann næstu vikurnar. Bakgarðshlaupið ótrúlega fór fram um helgina. Það var ýmislegt áhugavert á ársþingi HSÍ og Baldur Þór Ragnarsson hætti með Stjörnuna í miðjum þætti. BOMBA! Annar leikurinn í úrslitum Bónus kvenna fer fram í kvöld og þá er einnig spilað í Bestu deild kvenna. Svo er mikið undir hjá Tottenham í enska boltanum....more21minPlay
May 08, 20268. maí - Ætla að fagna þar til ég deyValsmenn tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í gær og þeir voru enn að fagna er íþróttadeild Sýnar heimsótti þá í dag. Úrslitin í Bónus kvenna hefjast í kvöld og þá fara líka fram fimm leikir í Bestu deild karla. Við hitum vel upp fyrir þá alla....more24minPlay
May 07, 20267. maí - Galin hegðun sjálfboðaliðaTveir oddaleikir í körfu karla og Tindastóll og Grindavík komust í úrslit. PSG mun spila í úrslitum Meistaradeildarinnar gegn Arsenal eftir hörkuleik gegn Bayern. Mikið líf í Bestu deild kvenna þar sem sjálfboðaliði á Akureyri stal senunni með galinni hegðun. Svo er barist til þrautar um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta karla í kvöld....more24minPlay
May 06, 20266. maí - Hvar er Hlynur Bærings?Besti íþróttadagur ársins er runninn upp. Tveir oddaleikir í Bónus deild karla og seinni undanúrslitaleikur Bayern og PSG í Meistaradeildinni. Ótrúleg veisla. Einnig rætt um leiki kvöldsins í Bestu deild kvenna og vanvirðingu við úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna....more22minPlay
May 05, 20265. maí - Grindvíkingar valda vonbrigðum og Stjarnan líklega án Seth LeDayBesta íþróttavika ársins er í fullum gangi. Það verða fjórir oddaleikir í íslenskum íþróttum næstu þrjá dagana og undanúrslit í Meistaradeildinni klárast einnig á morgun. Man. City er svo að kasta frá sér Englandsmeistaratitlinum....more26minPlay
May 04, 20264. maí - Hvað gera stuðningsmenn Vals?Stuðningsmenn Vals standa frammi fyrir erfiðri ákvörðun í kvöld. KR-ingar óstöðvandi í Bestu karla en brekka hjá Stjörnunni. Oddaleikur í Skagafirði í körfunni og svo er Man. Utd aftur komið í Meistaradeildina....more28minPlay
April 30, 202630. apríl - Vítaspyrnuvæl og stórleikir um helginaArsenal taldi sig vera grátt leikið gegn Atletico í gær. Stólarnir eru á lífi í Bónus deild karla og svo er Grindavík að taka á móti Val í kvöld. Valsarar eru líka á ferðinni í handboltanum þar sem leikur þrjú í úrslitunum gegn FH fer fram. Úrslitakeppni Bónus kvenna er æsispennandi og svo er spáð í spilin fyrir stórleikina í Bestu deild karla....more27minPlay
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.