Sign up to save your podcastsEmail addressPasswordRegisterOrContinue with GoogleAlready have an account? Log in here.
Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.... more
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.
April 29, 202629. apríl - Skjálfti í SíkinuStjarnan er 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Stólunum í undanúrslitum Bónus-deildar karla og getur sópað Stólunum í frí í Síkinu. Það er því titringur á Króknum. Einn besti fótboltaleikur sögunnar fór fram í Meistaradeildinni í gær en enginn sér fyrir sér sömu flugeldasýningu í kvöld. Önnur umferð Bestu deildar kvenna hefst svo í kvöld með tveimur leikjum....more23minPlay
April 28, 202628. apríl - Rauð flögg hjá StjörnunniÓtrúleg umferð í Bestu deild karla þar sem mörkunum bókstaflega rigndi. Snorri Steinn valdi áhugaverðan landsliðshóp þar sem margir leikmenn fá tækifæri til að láta ljós sitt skína. FH búið að jafna gegn Val í úrslitum Olís-deildar karla og svo hefjast undanúrslit Meistaradeildarinnar í kvöld með risaleik....more24minPlay
April 27, 202627. apríl - Blikar spila leiðinlegasta bolta deildarinnarFimm leikir í Bestu deild karla í kvöld og flestir leikir afar áhugaverðir. Allt brjálað í undanúrslitum Bónus-deildar karla og FH þarf að vinna gegn Valsmönnum í úrslitum Olís-deildar karla....more26minPlay
April 24, 202624.apríl - Elías Már opnaði sokkaskúffunaÞað var nóg að ræða í Besta sætinu í dag enda nóg um að vera í heimi íþróttanna. KR-ingar eru á flugi í Bestu deildinni og Elías Már Ómarsson, sóknarmaður Víkings raðar inn mörkum þvert á spár margra. Úrslitakeppnir í körfubolta og handbolta bera svo hæst en Besta deild kvenna hefst í kvöld og á sviðið....more21minPlay
April 22, 2026Robbie Fowler ræðir stöðuna á Liverpool, Alexander Isak og framtíð SlotLiverpool-goðsögnin Robbie Fowler ræddi við Sýn Sport um stöðuna á félaginu, erfiða titilvörn, vandræði framherja liðsins og framtíð Arne Slot....more21minPlay
April 22, 202622. apríl - Var Samúel Kári keyptur fyrir árshátíðarpeninga?Stórkostleg byrjun á undanúrslitum Bónus-deildar karla og partíið heldur áfram í Grindavík í kvöld. Samúel Kári er óvænt kominn í Val og spurning hvernig Valsmenn fjármögnuðu það? Besta karla fer aftur á fullt í kvöld og því miður er leikið inni á Akranesi en grasið bíður í Keflavík. Svo getur Man. City komist á topp ensku úrvalsdeildarinnar....more23minPlay
April 21, 202621. apríl - Pressa á Stólunum og Hlynur Bærings með óvænta innkomuUndanúrslitin í Bónus-deild karla hefjast í kvöld með fyrsta leik liðanna sem spiluðu til úrslita á síðustu leiktíð. Það er mikil pressa á Stólunum í einvíginu. Undanúrslitin í Bónus-deild kvenna eru komin vel af stað þar sem Haukar og Grindavík leiða. Svo ræðum við um ástand Laugardalsvallar og fréttina sem gerði Eyjamenn brjálaða....more23minPlay
April 20, 202620. apríl - Flagaraklútur Sápa stal senunniTískuyfirlýsing Stefáns Árna Pálssonar vakti mikla athygli í oddaleik Vals og Keflavíkur sem Valsmenn unnu með stæl. Grindavík er komið í blað í undanúrslitum kvenna og Glódís Perla sló leikjametið er Ísland spilaði við England í Laugardal. Svo var stórleikur ársins í enska boltanum í gær....more23minPlay
April 17, 202617. apríl - Upp með hausinn Arsenal-menn!Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum.Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Sindri Sverrisson fóru yfir málin í Besta sætinu á dýrindis föstudegi þar sem heil umferð í Bestu deild karla fer fram. Bjór verður á 800 krónur í KR-heimilinu, Þórsarar ætla á Rauða ljónið og sérlega margir eru að mæta fyrrum félögum sínum, þar á meðal Gísli Eyjólfsson, Atli Sigurjónsson, Danijel Djuric og Adolf Daði Birgisson.Arsenal og Manchester City mætast í stórleik helgarinnar á Englandi þar sem margir segja enska meistaratitilinn undir. Það liggur við að stórleikir Chelsea við Manchester United og Everton við Liverpool blikni í samanburði.Þá er risa verkefni sem blasir við stelpunum okkar. Glódís Perla Viggósdóttir verður leikjahæst í sögunni þegar Ísland mætir Englandi á Laugardalsvelli á morgun....more28minPlay
April 16, 2026Ægir Þór Steinarsson: Óttaðist að ferlinum væri lokiðÆgir Þór Steinarsson, lykilmaður í liði Stjörnunnar og landsliðsfyrirliði í körfubolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úrslitakeppninni. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka....more13minPlay
FAQs about Besta sætið:How many episodes does Besta sætið have?The podcast currently has 127 episodes available.