Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Dauðakippir á Selfossi og er Halldór Jóhann að trufla HK-inga?
    18.umferðin var gerð upp í þessum þætti.
    - HK-ingar mættu á Selfoss með skóflurnar og grófu upp Selfyssinga
    - Andri Berg er að elda eitthvað svakalegt í Safamýrinni
    - EuroLalli var með hausinn á Söngvakeppninni
    - Leikbann Ágústar Inga reyndist Gróttumönnum dýrt
    - Ungu strákarnir hjá KA fengu hjálp frá þeim eldri til að ná prófinu
    - Martröð HK í hornafærunum heldur áfram
    - Aron Pálmarsson mætti með flugeldasýningu þökk sé FitnessSport
    - Hvaða lið fara í bikarúrslit?
    - Kvennalandsliðið lenti á vegg í Svíþjóð
    - Jonas Maier hefur múrað fyrir í Grill66-deildinni
    - Fer Seðilinn upp með Fjölni?
    1 hr 7 min
  • Haukar elska að sjokkera & leikþáttur Basta gekk ekki upp
    17.umferð Olís-deildar karla var gerð upp af Sérfræðingnum, Gaupa og Benna Grétars.
    - Valsmenn unnu torsóttan sigur í Garðabænum
    - Lítil sem engin framþróun á liði KA á milli ára
    - Óli Gúst þarf CBD olíu og það strax
    - Hvað gengur mönnum til í Haukum?
    - Gróttan gat fagnað í sólarhring
    - Leikþáttur Basta gekk enganveginn upp gegn FH
    - Afturelding náði fram hefndum í Eyjum
    - Hvort vilja Fram eða Haukar mæta ÍBV eða Aftureldingu í 8-liða?
    - Bryggjan Brugghús leikmaður 17.umferðar
    - Skita 17.umferðar í boði Skolphreinsun Ásgeirs
    - Gaupi myndi frekar skúra Hólmsheiðina en að fara í 2. bundesliguna
    1 hr 15 min
  • Basti bastar yfir sig & sigur Framara dýrkeyptur
    16.umferðin var gerð upp í þætti kvöldsins auk þess sem fyrsti leikur 17.umferðar var gerður upp. Farið var yfir Evrópuboltann og hringt til Þýskalands þar sem afmælismonsinn, Arnór Snær Óskarsson leikmaður Gummersbach var á línunni.
    53 min
  • Hvíl í friði Selfoss - Víkingarnir lifa í voninni
    Olís-deildar umræða, Evrópubikarinn, Strákarnir okkar í mennskunni og hitað upp fyrir næstu leiki.
    Hugur okkar er á Selfossi þessa dagana þar sem mikið svartnætti ríkir. Ekki er staðan betri fyrir norðan hjá gulklæddum KA-mönnum. Eyjamenn skelltu sér á Irish-man Pub eftir kærkominn sigur um helgina og Víkingarnir lifa í voninni um að halda sér uppi.
    1 hr 12 min
  • Stjarnan féll á prófinu & Selfyssingar í braaaaasi
    16.umferðin í Olís-deild karla hófst í kvöld með leik Stjörnunnar og Aftureldingar. Valsarar voru síðasta liðið til að tryggja sér í Final4 í Höllinni. Hvar endar Alli Eyjólfs og Selfyssingar virðast vera í þjálfaraleit fyrir næsta tímabil. Teitur Örn Einarsson var í símaviðtali frá Þýskalandi.
    1 hr 11 min
  • Vond ára yfir Rúnari Kára - Rasimas spilar fyrir áframhaldandi veru í Olís
    15.umferðin í Olís-deildinni var gerð upp í þætti kvöldsins. Slúðurmolarnir voru fjölmargir og áhyggjuefnin ekki færri. Hvaða fimm félög heyrðu í Halldóri Jóhanni? Hvert fer Einar Baldvin? Rasimas hefur fengið kveðjubréfið á Selfossi og AP4 hefur fengið hvíld fyrir bikarleikinn gegn Haukum. Sjö umferðir eftir og staðan í fallbaráttunni er stórhættuleg.
    1 hr 12 min