Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Hálfleikur frá helvíti drap Ólympíudrauminn
    Tómas Þór Þórðarson kíkti til okkar í Dominos stúdíóið og fór yfir lokaleik Íslands á Evrópumótinu í handbolta. Farið var yfir leik liðsins gegn Austurríki og rýnt í frammistöðu leikmanna. Undir lok þáttar var það ljóst að Ísland næði ekki Ólympíusæti.
    56 min
  • Vörnin brást en miði er möguleiki - Handkastið x Siggi Bond
    Siggi Bond kíkti í Dominos Stúdíóið og fór yfir leikinn gegn Frökkum og framhaldið hjá Strákunum okkar. Við eigum ennþá möguleika á umspilssæti fyrir ÓL2024 en til þess þarf margt að falla með okkur. Slúðurmolar úr Olísdeildinni en það styttist í að hún fari aftur af stað.
    1 hr 14 min
  • Snorri hlustaði á Séffann & fáfræðin er víða
    Strákarnir okkar voru einum röngum dómi, fjórum vítaköstum og töluvert af dauðafærum frá því að ná að minnsta kosti stigi gegn Þjóðverjum í fyrsta leik milliriðilsins í kvöld. Sérfræðingurinn, Stymmi klippari og Einar Ingi Hrafnsson gerðu upp leikinn og miklu meira til. Sigfús Sigurðsson var á (síma)línunni og ræddi frammistöðu landsins á mótinu og Gunni Birgisson frá RÚV hitaði upp fyrir næsta leik gegn Frökkum.
    1 hr 4 min
  • Heilladísirnar halda okkur inná EM - Algjört afhroð gegn Ungverjum
    Svartfjallaland tryggði íslenska landsliðinu sæti í milliriðil á EM fyrr í dag. Farið yfir leik Íslands og Ungverjalands sem tapaðist með átta mörkum. Logi Geirsson var á línunni frá Þýskalandi og fór yfir þetta allt saman með Sérfræðingnum, Ponzunni og Gunnari Birgissyni lýsanda stóru leikjanna á RÚV. Framundan eru fjórir leikir í milliriðli þar sem allt getur gerst. Vonin um verðlaunasæti lifir enn.
    1 hr 9 min
  • Sigur er sigur - Handkastið x Unglingastarf Dr. Football
    Stymmi Klippari fékk þá Jóa Má og Arnar Svein til sín í Dominos Stúdíóið til að fara yfir leik Íslands og Svartfjallalands. Ræddum frammistöðu Íslands í leiknum og mótinu til þessa og hvernig framhaldið liti út. Nocco leikmaður leiksins var valinn ásamt Skitu leiksins. Fórum yfir úrslit í Olísdeild kvenna og ræddum brotthvarf Basta frá HK í lok tímabilsins.
    1 hr 4 min
  • "Þetta var þungt" - Handkastið x Steve Dagskrá
    Handkastið gerði upp leik Íslands og Serbíu sem fram fór á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi í kvöld. Steve Dagskrá bræðurnir, Andri Geir og Vilhjálmur, kíktu til Stymma Klippara og fóru yfir leikinn. Sérfræðingurinn var á línunni beint frá Munchen og hafði sitt að segja um leik landsliðsins.
    1 hr 11 min
  • Gleðilegt EM - Handkastið x Dr. Football
    EM í Þjóðaríþróttinni hefst í dag og það var því tilvalið að fá sjálfan Dr. Football, Hjörvar Hafliðason, til okkar í stúdíó og fórum yfir hans uppáhalds stórmót, draumalið og fleira. Hituðum upp fyrir fyrsta leik strákanna okkar gegn Serbíu á föstudaginn, Stymmi Klippari henti í veðmál. Björgvin Páll er að gefa út nýtt Podcast og eru "Strákarnir Okkar" vannýtt vörumerki?
    1 hr 15 min