Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

All Handkastið episodes

  • Forsetabikarinn heim, bananahýði fyrir norðan og þjálfarabreytingar á Ásvöllum?
    Stelpurnar okkar voru hársbreidd frá því að komast í milliriðla en nú tekur við nýtt ævintýri. Forsetabikarinn býður og við sækjum hann.
    Svava Kristín Grétarsdóttir var gestur Handkastsins að þessu sinni og við hituðum einnig upp fyrir 12.umferðina. Strákarnir okkar eru sjóðandi í Evrópu - það er rúmlega mánuður í mót og við erum á leiðinni á pall!
    1 hr 4 min
  • Sturluð botnbarátta framundan - Boltabloggið hitar upp fyrir HM
    Hitað var upp fyrir 11.umferðina í Olís-deildinni þar sem áhugaverðir leikir fara fram í vikunni. Þá heyrðum við í Ragnari Hermannssyni, Boltablogginu sjálfu sem fór yfir landsleikina hjá kvennalandsliðinu í aðdraganda HM og það sem koma skal. Umfjöllunin um kvennalandsliðið er í boði Vogue - fyrir heimilið.
    56 min
  • ÍH reif í gikkinn og KA svífa vængjum þöndum norður
    Í þætti kvöldsins fórum við yfir stóra ÍH daginn og síðustu 2 leikina í 16liða úrslitum.
    10. umferð Olís deildar karla hófst í kvöld með þrem leikjum, þeir voru gerðir upp og spáð í spilin fyrir síðustu 3 leikina í umferðinni.
    Sérstakur gestur þáttarins var Einar Ingi Hrafnsson.
    1 hr 9 min
  • Yfirvinna hjá Skolpinu í Garðabænum - Geta Haukar unnið í Krikanum?
    Olís-deild karla er í fríi þessa vikuna. Olís-deild kvenna fer í frí eftir daginn í dag. Fagleg umfjöllun um Olís-deild kvenna. Vönduð umfjöllun um bikarkeppnina. Hringt í Mosfellsbæinn þar sem við fengum að vita ástæðuna afhverju félög selja heimaleiki sína í Evrópukeppnunum. Stjarnan er á botni Olís-deildar kvenna og þjálfari liðsins var í viðtali. Nocco leikmaður vikunnar og skita vikunnar í boði Skolphreinsun Ásgeirs var á sínum stað.
    Stærsti leikur ársins fer fram í Kaplakrika 18.nóvember þegar ÍH og Haukar mætast í bikarnum. Gamla bandið, Sérfræðingurinn og Ponzan stýra liði ÍH í leiknum.
    1 hr 1 min
  • Jón Batman með næringu í æð og gulu spjöldin á lofti
    Yfirferð yfir þá fimm leiki sem búnir eru í 9.umferð Olís-deildar karla. Nocco leikmaður umferðarinnar og Skita umferðarinnar i boði Skolphreinsun Ásgeirs. Þorsteinn Leó er farinn í Porto og Atli Steinn er mættur í Olís. Erfiður dagur hjá Björgvini Páli á meðan Aron Pálmarsson dældi boltunum á Jón Bjarna.
    1 hr 12 min
  • HSÍ svarar fyrir sjónvarpsmálin - Rýnt í El Clasico með Gaupa
    9.umferðin í Olís-deild karla er framundan eftir landsleikjapásu. El Clasico í Hafnarfirðinum. Gaupi rýndi í stórleikinn. Nýliðaslagur í Kópavoginum. Í veikindaleyfinu fór Teddi að hugsa til allra góðu útlendingana sem spilað hafa hér frá aldamótum. Stymmi klippari bauð upp á svakalegan seðil. Sérfræðingurinn settist niður með Bjarka Sigurðssyni tímabundnum verkefnastjóra HSÍ í sjónvarpsmálunum og fór yfir sviðið.
    1 hr 25 min
  • Snorri ósigrandi og Eyjakonur hefðu átt að vita betur
    Landsliðið sigraði Færeyinga í tvígang um helgina. Farið var yfir frammistöðu liðsins. Velkominn Haukur Þrastarson. Elliði Snær geggjaður og í lokþáttar drógum við út í treyjuleik Elliða og Handkastsins. 8.umferðin í Olís-deild kvenna var gerð upp. Hitamál í kvennaboltanum var rætt. Eigið góða vinnuviku.
    50 min