Handkastið

Handkastið

By HandkastiðSports
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Ristarspyrna Einars Jóns reyndist dýrkeypt og hverjir eru þessir menn?
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu í stúdíó Handkastsins og gerðu upp vikuna í handboltanum, bæði hér heima og erlendis.
    Frammarar eru að glíma við gífurlega mikil meiðsli í leikmannahóp sínum og evrópukeppnin er handan við hornið.
    Darri Aronsson er mættur aftur á parketið eftir rúmlega 1.000 daga fjarveru frá handbolta.
    ÍR-ingar verða að fara að byrja leikina ef þetta á ekki að enda illa hjá þeim.
    Valskonur jarðtengdu ÍR stelpur eftir góða byrjun á tímabilinu og nýliðar KA/Þór eru á toppi deildinnar með fullt hús stiga.
    Nóg af handbolta um helgina bæði hérlendis og erlendis.
    Séffinn setti strákana í próf um hversu vel þeir þekktu leikmennina í Olís deildinni.
    Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr
  • Óvænt úrslit í Olís og Arnar að setja saman nýtt lið
    Stymmi Klippari fékk til sín Gunnar Val og Sigurjón Friðbjörn til að ræða síðustu daga í handboltanum.
    Stelpurnar Okkar fór til Danmerkur og fengu skell gegn Dönum. Breytingarnar sem hafa orðið á landsliðinu undanfarin ár voru ræddar og þær áskoranir sem Arnar Pétursson landsliðsþjálfari stendur frammi fyrir.
    Óvænt úrslit voru í Olís deildinni á föstudaginn og allir þrír leikirnir enduðu með 1 marks sigrum. Hefur deildin aldrei verið jafnari?
    Cell-Tech Lið 3.umferðar í Olís-deild karla á sínum stað, Skólhreinsun Ásgeirs á ferðinni og heil umferð í karla og kvenna í vikunni.
    Hlustið á nýjasta þátt Handkastsins.
    46 min
  • Róbert Geir hættur og allt vitlaust í Eyjum
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Kiddi Bjé mættur í stúdíó Handkastsins og fóru yfir annasama viku.
    Róbert Geir hættir um áramótin hjá HSÍ eftir 22 ára starfsferil.
    Ásgeir Snær dæmdur í þriggja leikja bann eftir myndbandsupptöku. Erum við búin að opna pandórubox þar?
    Hitamálið í Eyjum sem allir eru að tala um. Klúðraði ÍBV framkvæmd leiksins algjörlega?
    3.umferðin er komin af stað og klárast í kvöld.
    Þetta og miklu meira í nýjasta þætti Handkastsins.
    1 hr 5 min
  • Aukakastið - Rúnar Kárason
    Aukakastið er ný hliðarþáttarröð frá Handkastinu sem er stýrt af Stymma Klippara og Kidda Björgúlfss.
    Í Aukakastinu munum við fá góða gesti sem allir eiga það sameiginlegt að tengjast handbolta. Hvort sem um er að ræða leikmenn, þjálfara, stjórnamenn eða sjálfboðaliða.
    Markmið þáttarins er að kynnast viðmælandanum betur, allt frá fyrstu kynnum þeirra að íþróttinni, hápunkta ferilsins og hvernig lífið eftir handboltann er.
    Gestur þáttarins er Rúnar Kárason.
    1 hr 14 min
  • Skyttuboltinn er kominn aftur og líkamsárásir í Grillinu
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Einar Ingi gerðu upp helgina í handboltanum hér heima og erlendis.
    Hefði Arnar Pétursson ekki mátt velja stærri æfingarhóp fyrir landsliðsvikuna?
    Olís deild kvenna er komin í landsleikjahlé eftir 2.umferðir. Skytturnar eru byrjaðar að láta vaða á markið. Haukar unnu Val á þeirra heimavelli og nýliðar KA/Þór eru með fullt hús stiga.
    Hvorki gengur né rekur hjá Stjörnunni í karla og kvennaflokki. Andri Snær er að smíða eitthvað fyrir norðan og Fram þurfti bara góðar 30 mínútur til að rúlla yfir Þór.
    Þetta og svo miklu fleira í nýjasta þætti Handkastsins.
    52 min
  • Olís deildirnar aldrei verið jafnari
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Geiri Sly fóru yfir vikuna í handboltanum og spáðu í spilin fyrir helgina.
    Olís deildirnar hafa aldrei verið jafnari og ærið verkefni að spá í spilin fyrir leikina.
    FH-ingar pökkuðu Valsmönnum saman í gær. Selfyssingar naga sig í handarbökin að vera ekki komnir með fleiri stig og frábær endurkomusigur hjá Mosfellingum.
    Nóg af handbolta um helgina og allt saman í þráðbeinni á handboltapassanum.
    1 hr
  • Nýliðarnir bíta frá sér og nýja logo-ið er ekki allra
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Gaupi fóru yfir 1.umferðina í Olís deildum karla og kvenna.
    Sigmundur Steinarsson gefur ekki mikið fyrir nýja logo-ið hjá HSÍ og sendi væna pillu á þá.
    Stjörnumenn misstu af sæti í Evrópudeildinni eftir vítakastkeppni í Hekluhöllinni.
    Strákarnir okkar í Magdeburg buðu Krickau velkominn til starfa í Berlín og settu upp sýningu.
    Nýliðarnir í Olís deildunum byrja tímabilið af krafti.
    Cell Tech lið karla og kvenna fyrir 1.umferðina opinberað og margt fleira í þætti dagsins.
    53 min
  • Meðbyr með þjóðaríþróttinni og nýjar stjörnur að verða til
    Sérfræðingurinn, Stymmi Klippari og Andri Berg mættu og gerðu upp byrjun tímabilsins í Olís deild karla og helstu fréttir erlendis.
    Valsmenn byrjuðu tímabilið á sigri í Garðabænum, Fram sóttu 2 stig í Karpakrika og ekkert virðist hafa breyst hjá Haukum með tilkomu nýs þjálfara.
    Strákarnir voru einstaklega jákvæðir með allt í kringum handboltann á þessum fyrstu dögum en fundu þá einn til tvo mínusa til að ræða.
    Er Mathias Gidsel að stýra öllu bakvið tjöldin hjá Fusche Berlin?
    Þetta og svo miklu meira í nýjsta þætti Handkastsins.
    55 min
  • Ný ásýnd HSÍ og opinber spá Handkastins opinberuð
    Stymmi Klippari og Benni Gré mættu í stúdíóið á sunnudagsmorgni og fóru yfir allt það helsta í Handboltanum undanfarna daga. HSÍ kynnti nýja ásýnd, nýtt logo og metnaðarfullt prógram fyrir veturinn á kynningarfundi í gær og ríkir mikil bjartsýni fyrir tímabilinu.
    Valskonur héldu uppteknum hætti og unnu enn einn titilinn í gær þegar þær unnu Meistarar Meistaranna í leik gegnum Haukum á Hlíðarenda.
    Við ræddum spá Handkastins fyrir komandi átök í karla og kvennaflokki í vetur.
    Stjarnan gerði frábæra ferð til Rúmeníu í gær og er í góðum séns fyrir heimaleikinn að taka þátt í Evrópudeildinni í vetur.
    57 min

More shows like Handkastið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

471 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

433.is by 433.is

433.is

4 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Draumaliðið by Jói Skúli

Draumaliðið

12 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

5 Listeners

Einn Tveir by Gula Spjaldið

Einn Tveir

2 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

11 Listeners