Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Mosó er bikarbær, Haukar ekki fundið lausnina og óvæntustu úrslit tímabilsins
    Sérfræðingurinn fékk sófasérfræðinga Jóhann Gunnar Einarsson og Þorgrím Smára Ólafsson tvo af dáðustu sonum Mosfellsbæjar til að fara yfir bikarhelgina. Rúnar Sigtryggsson þjálfari Leipzig var á línunni ræddi Haukana, Leipzig og Göppingen. Einar Ingi Hrafnsson var óvænt á línunni í þættinum og fór yfir heilsuna daginn eftir bikarfögnuð. Jóhann Gunnar kvaddi Harðverja sem eru fallnir og við ræddum úrslitakeppnina sem er handan við hornið.
    1 hr 20 min
  • Engir sófasérfræðingar að þessu sinni einungis Sérfræðingurinn og fyrrum landsliðsmenn
    Sérfræðingurinn fékk enga sófasérfræðinga til sín að þessu sinni. Hann fór í efstu hilluna og fékk fyrrum landsliðsmennina Einar Örn Jónsson og Ingimund Ingimundarson til að ræða frábæran sigur Íslands á Tékkum í dag. Sigfús Sigurðsson var á línunni en hann er enginn sófasérfræðingur heldur. Einnig var farið yfir það hver á að taka við íslenska landsliðinu og að lokum var smá upphitun fyrir Final4 sem fer fram í næstu viku.
    1 hr 7 min
  • Afhroð í Tékklandi, slæmt gengi á útivelli og Kristján Andrésar er klár
    Sérfræðingurinn fékk Henry Birgi Gunnarsson og Valtý Björn Valtýsson til sín til að fara yfir slæmt tap landsliðsins gegn Tékklandi í undankeppni EM í gær. Það voru fáir jákvæðir punktar sem hægt var að ræða eftir þann leik.
    Kristján Andrésson fyrrum þjálfari sænska landsliðsins var á línunni og var spurður út í starf sitt í Svíþjóð og áhuga hans á að taka við íslenska landsliðinu. Í lok þáttar var Ágúst Þór Jóhannsson einn af þjálfurum íslenska landsliðsins á línunni frá Tékklandi og ræddi leikinn í gær og hvað þarf að laga fyrir mikilvægan leik á sunnudaginn.
    1 hr 12 min
  • Handkastið - Til hamingju Valur, Landsliðsumræða og Eurovision
    Farið yfir leiki umferðarinnar í Olísdeild Karla. Fundin ný lið fyrir Egil Magnússon og Phil Döhler ásamt því að Ásgeir Gunnarsson fann 5 nýja leikmenn fyrir FH-inga fyrir næsta tímabil. Slúðurhorn, landsliðsumræða, skattskil og síðast en ekki síst Eurovision horn í lok þáttar.
    Handkastið - Menningar og lífsstílsþáttur þjóðarinnar.
    1 hr 18 min
  • Kvennakastið: Landsliðskonur í spjalli
    Landsliðkonurnar Andrea Jacobsen og Elín Jóna Þorsteinsdóttir mættu í Kvennkastið til Sillu. Þær renndu yfir ferilinn sinn og sögðu frá lífinu í Danmörku. Það var einnig rætt um næstu verkefni kvennalandsliðsins og hvort að stórmót sé mögulega á næsta leiti.
    44 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.