Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • HM Handkastið - Tíu Jardarnir
    Strákarnir í Tíu Jördunum þeir Birgir Þór Björnsson og Þorkell Magnússon mættu til Stymma Snickers og fóru yfir Ísland - Svíþjóð. Ásgeir Gunnarsson mætti einnig og var okkur innan handar. Sérfræðingurinn var á línunni frá Gautaborg og fór yfir gang leiksins eins og honum einum er lagið.
    1 hr
  • HM Handkastið x Þarf alltaf að vera grín?
    Strákarnir í Þarf alltaf að vera grín? þeir Ingólfur Grétarsson og Tryggvi Snær Torfason mættu til Sérfræðingsins og fóru yfir sigur Íslands á Grænhöfðaeyjum í fyrsta leik Íslands í milliriðlum á HM. Stefán Árni Pálsson var á línunni frá Gautaborg og þá heyrðum við einnig í Sigfúsi Sigurðssyni sem ræddi leikinn gegn Grænhöfðaeyjum og spáði í spilin fyrir leikinn gegn Svíum.
    1 hr 8 min
  • HM Handkastið x BLE x Smassbræður
    Strákarnir í Boltinn lýgur ekki og Smassbræðrum, Gunnar Birgisson, Sigurður Orri Kristjánsson og Tómas Steindórsson kíktu í fuglabúrið til Sérfræðingsins og fóru yfir sigur Strákanna okkar gegn Suður-Kóreu. Gunnar Birgisson fór yfir stöðuna í öðrum riðlum. Í þættinum var farið yfir þá leikmenn sem hafa verið bestir í íslenska liðinu hingað til á mótinu og þá leikmenn sem hafa valdið mestu vonbrigðum.
    1 hr 13 min
  • HM Handkastið x Dr. Football
    Sérfræðingurinn fékk strákana úr Dr. Football til sín þá, Arnar Svein Geirsson, Jóhann Má Helgason og Hrafnkel Frey Ágústsson til að fara yfir tapið gegn Ungverjum í gær í öðrum leik Íslands á HM.
    Sigfús Sigurðsson var einnig í síma viðtali og fór yfir það helsta úr leiknum. Í lokin spiluðum við El Grande að hætti Doc.
    1 hr 23 min
  • HM Handkastið x Steve Dagskrá
    Strákarnir í Steve Dagskrá, þeir Andri Geir Gunnarsson og Vilhjálmur Freyr Hallsson mættu í HM Handkastið og fóru yfir fyrsta leik Íslands á HM með Sérfræðingnum og Snickers-inu.
    Sigur gegn Portúgal í fyrsta leik og við erum komnir langleiðina í 8-liða úrslit. Sigfús Sigurðsson var á línunni og fór yfir leikinn með strákunum.
    1 hr 18 min
  • Stórasta land í heimi: Ísland-Frakkland 23-28 / Ólafur Stefánsson
    Lokaþátturinn fjallar um úrslitaleikinn gegn Frökkum þann 24. ágúst 2008. Ísland tapaði leiknum 23-28 enda að leika gegn einu besta handboltaliði sögunnar. Í þættinum fer Ólafur Stefánsson yfir leikana og undirbúninginn fyrir leikinn sjálfan. Einnig fer þessi magnaði íþróttamaður yfir ferilinn sinn sem handboltagoðsögn.
    1 hr 9 min
  • HM Handkastið x Þungavigtin
    Strákarnir í Þungavigtinni, þeir Kristján Óli Sigurðsson, Mikael Nikulásson og Ríkharð Óskar Guðnason mættu í HM Handkastið og fóru yfir stóru málin.
    1 hr 6 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.