Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • HM Handkastið x Brodies
    Strákarnir í útvarpsþættinum Brodies, þeir Axel Birgisson, Björn Kristjánsson og Freyr Friðfinnsson mættu og fóru um víðan völl. Sérfræðingurinn þarf síðan að borga dýran símreikning eftir þennan þátt því Sigfús Sigurðsson, Styrmir Snickers og Teddi Ponza voru allir á línunni í þættinum.
    Sigfús fór yfir jákvæða og neikvæða punkta úr æfingaleikjunum gegn Þýskalandi. Styrmir fór yfir stóra fatamálið í Leifstöð og Ponzan fór yfir ótrúlegar sviptingar í því hvar Ísland gæti leikið í undanúrslitum og úrslitum en það hefur allt mikil áhrif á Ponzu travel.
    1 hr 40 min
  • Stórasta land í heimi: Ísland-Spánn 36-30 / Logi Geirsson grét þegar hann rifjaði upp leikana
    Logi Geirsson er næstsíðasti gestur seríunnar um Ólympíuleikana í Peking en Ísland vann Spánverja 36-30 og komst í kjölfarið í úrslit. Logi skoraði sjö mörk í leiknum og var algjör lykill að því að Ísland vann silfur á leikunum. Í þættinum fer Logi Geirsson yfir leikana, ferill og ræðir fallega um alla leikmenn íslenska landsliðsins í þessum hópi.
    1 hr 14 min
  • HM Handkastið x Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
    Sérfræðingurinn fékk strákana í Útvarpsþættinum Fótbolta.net til að ræða allt milli himins og jarðar sem tengist íslenska handbolta landsliðinu. Benedikt Bóas, Elvar Geir og Tómas Þór fóru um víðan völl og rifjuðu upp ótrúlegar minningar sem þeir eiga af stórmótum í handbolta.
    Í lok þáttar tók Sérfræðingurinn síðan upp tólið og heyrði í fyrrum landsliðs-goðsögninni, Sigfúsi Sigurðssyni.
    1 hr 39 min
  • Stórasta land í heimi: Ísland-Pólland 32-30 / Guðmundur Guðmundsson
    Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson er sjötti gestur í nýrri hlaðvarpsseríu þar sem farið er yfir sögu íslenska handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Farið verður yfir alla leikina á mótinu. Sjötti leikurinn var gegn Pólverjum í 8-liða úrslitunum og vann Ísland merkilegan sigur á þessu frábæra landsliði og tryggði sig inn í undanúrslitin.
    39 min
  • Ísland er með bestu útilínu heims
    Í Handkastinu í dag mættu þeir Ingvi Þór Sæmundsson og Theodór Ingi Pálmason og ræddu íslenska landsliðið í handbolta. Guðmundur Guðmundsson valdi 19 manna hóp fyrir jól sem fer á HM í byrjun næsta árs. Farið var yfir hópinn og möguleika Íslands á mótinu.
    1 hr
  • Viðhafnarútgáfa - AP4 heim í Krikann "Hej Rasmus, det er Teddi Ponza her"
    Sérfræðingurinn og Teddi Ponza spörkuðu upp hurðinni á Suðurlandsbrautinni og tók upp viðhafnarútgáfu af Handkastinu í tilefni þess að Aron Pálmarsson skrifaði undir þriggja ára samning við FH í gær. Sérfræðingurinn var fyrstur manna í heiminum til að tilkynna þetta á samfélagsmiðlum.
    Heyrt var í Einari Andra Einarssyni sem bæði þjálfaði Aron í FH og unglingalandsliðinu á sínum tíma en margir vilja meina að hann hafi búið til handbolta-Aron Pálmars. Þá var Einar Andri einnig einn af þeim örfáu sem vissu af komu Arons og var að vinna í því bakvið tjöldin að láta þetta gerast.
    Þá var einnig hringt til Danmerkur þar sem spjallað var við handbolta spekúlantinn, Rasmus Boysen um þessar risa fréttir og þá var hann einnig spurður út í íslenska landsliðið og ruglið sem fór fram á samfélagsmiðlum í kringum síðasta EM.
    Í lok þáttar var rætt um HM landsliðshópinn sem Gummi Gumm valdi fyrr í dag.
    50 min
  • HM Handkastið x Pitturinn
    Strákarnir í Pittinum eru gestirnir í fyrsta þætti HM Handkastsins.
    HM í þjóðaríþróttinni hefst 11.janúar og verður HM Handkastið með upphitun fyrir mót og uppgjörsþætti eftir alla leiki Íslands á mótinu.
    1 hr 5 min
  • Stórasta land í heimi: Ísland-Egyptaland 32-32 / Bjarni Fritzson
    Bjarni Fritzson er fimmti gestur í nýrri hlaðvarpsseríu þar sem farið er yfir sögu íslenska handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Farið verður yfir alla leikina á mótinu. Fimmti og síðasti leikurinn í riðlinum var gegn Egyptum og endaði hann með jafntefli 32-32 og átti stigið eftir að reynast mikilvægt, en segja má að Íslendingar hafi sloppið við Frakka í 8-liða úrslitunum með þessu eina stigi. Bjarni Fritzson var alltaf utan hóps á leikunum en dvöl hans í Peking var heldur skrautleg.
    52 min
  • Stórasta land í heimi: Ísland-Danmörk 32-32 / Arnór Atlason
    Arnór Atlason er fjórði gestur í nýrri hlaðvarpsseríu þar sem farið er yfir sögu íslenska handboltalandsliðsins á Ólympíuleikunum í Peking árið 2008. Farið verður yfir alla leikina á mótinu. Fjórði leikurinn í riðlinum var gegn Dönum og endaði hann með jafntefli 32-32 og átti stigið eftir að reynast mikilvægt. Arnór fiskaði vítakast á lokasekúndum leiksins.
    59 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.