Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Haukar í draumalandi Ásgeirs, barn verður forseti og hvar er Björn Viðar?
    Það var Víkingsþema í Handkastinu að þessu sinni. Jón Gunnlaugur Viggósson þjálfari Víkings í Grill66-deildinni og Davíð Már Kristinsson yngri flokka þjálfari Víkings fóru yfir þá fjóra leiki sem búnir eru í 10.umferð Olís-deildarinnar.
    Þeir spáðu einnig í spilin fyrir komandi leiki í umferðinni sem fram fara á mánudaginn. Rætt var um Grill66-deildina í lok þáttar auk þess sem nýjar reglur í handboltanum voru ræddar.
    Patrekur Jóhannesson þjálfari Stjörnunnar var í símaviðtali og fréttaritari Handkastsins í Vestmannaeyjum var á línunni.
    1 hr 37 min
  • Seinni Bylgjan: Teitur Örn um leikinn gegn Val
    Teitur Örn Einarsson leikmaður Flensburg var á línunni og ræddi við Stefán Árna Pálsson og Ingva Þór Sæmundsson um lífið í Flensburg, leikinn gegn Val í Evrópudeildinni og HM í handbolta sem fer fram í janúar. Einnig var hitað upp fyrir 10.umferðina í Olís-deildinni og farið yfir hvað strákarnir okkar eru að gera í deildunum í Evrópu.
    46 min
  • Stjörnumenn hlusta á Sérfræðinginn, Ásgeir Örn í fallsæti og vígið féll fyrir norðan
    Sérfræðingurinn, Hrannar og Jóhann Ingi Guðmundssynir gerðu upp alla leikina í 9. umferð Olís-deildar karla auk þess sem markmannsþjálfarinn og fyrrum markvörðurinn, Jóhann Ingi valdi topp5 lista yfir efnilegustu markmenn landsins.
    Í lokþáttar kom Logi Geirsson inn sem óvæntur gestur og spáði fyrir um næstu umferð, ræddi ótrúlegt jafntefli ÍR-inga gegn Aftureldingu og sagði okkur stuttu útgáfuna af sögunni þegar Kiddi Bjé. hitti Holger Glandorf á æfingu hjá Lemgo.
    Hvernig gekk prófraun Ásgeirs Arnar?
    Nýtt stuðningsmannalag fyrir Adam Thorstensen
    Það vantar herslumuninn hjá Herði
    FH-ingar eru orðnir sjóðandi heitir
    Eyjamenn kræktu í tvö stig þrátt fyrir lélega frammistöðu
    Ótrúlegir ÍR-ingar
    1 hr 21 min
  • Seinni Bylgjan: Ásgeir Örn tekur við Haukum
    Ásgeir Örn Hallgrímsson mætti í spjall um nýja þjálfarastarfið hjá Haukum en hann tók við liðinu í vikunni. Stefán Árni og Ásgeir hituðu upp fyrir 9.umferðina í Olís-deildinni og fóru yfir hvað atvinnumennirnir okkar eru að gera úti í Evrópu.
    42 min
  • Hættum að tala um comeback og maðurinn sem eyðilagði Evrópudraum Hauka
    Sérfræðingurinn, Ponzan og Henry Birgir fara yfir öll liðin í Olís-deild karla og gott betur en það. Farið var yfir þá fjóra leiki sem fram fóru í 8.umferðinni um helgina.
    Jónatan Magnússon þjálfari KA var í símaviðtali í upphafi þáttar og þá heyrðu strákarnir í Sigurði Finnboga Sæmundssyni fyrrum leikmanni Anorthosis í Kýpur en það lið sló út Hauka sannfærandi um helgina. Í viðtalinu kom í ljós að Sigurður hafði njósnað um Haukaliðið fyrir Anorthosis.
    1 hr 22 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.