Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Landsliðs-pallborð - 8-liða úrslit á HM bíður strákana okkar
    Landsliðsumræða þar sem farið er yfir frammistöðu leikmanna í sigrunum gegn Ísrael og Eistlandi auk þess sem farið er heilt yfir stöðu landsliðsins fyrir HM í Svíþjóð og Póllandi sem fram fer í janúar.
    Sérfræðingurinn fékk til sín þá Ásgeir Jónsson og Einar Örn Jónsson til að fara yfir allt sem tengist landsliðinu.
    1 hr 9 min
  • Saumaklúbbur á Ásvöllum, funheitir Framarar og magalending hjá ÍR
    5.umferðin í Olís-deild karla var gerð upp í þættinum með þeim Arnari Daða Arnarssyni og Stefáni Árna Pálssyni. Þá var Theodór Ingi Pálmason á línunni og fór yfir sigur Gunna Magg á Rúnari Sigtryggssyni.
    Framarar voru funheitir á föstudagskvöldið er þeir urðu fyrsta liðið til að leggja sjöfalda meistara Vals. ÍR-ingar lentu í magalendingu fyrir norðan og spurning hvort partý-ið sé búið í Breiðholtinu. Fyrsti sigur FH kom loks á Nesinu og stigasöfnun Stjörnunnar hefur verið af skornum skammti í síðustu umferðum.
    Auk þess ætluðum við að ræða leik Harðar og Selfoss en það fór eins og það fór.
    Stefán Árni Pálsson valdi í lok þáttar sinn topp5 lista leikmanna sem hafa komið honum hvað mest á óvart hingað til.
    1 hr 22 min
  • Krísa í Krikanum, andlaust á Akureyri og hneyksli hjá HSÍ
    4. umferðin í Olís-deild karla er gerð upp í Handkastinu með þeim Arnari Daða Arnarssyni, Hrannari Guðmundssyni og Guðjóni Guðmundssyni.
    Það var stjörnuhrap á lokamínútunum í Garðabænum og ÍR-ingar höfðu betur í nýliðaslagnum. Valsmenn fóru þægilega í gegnum andalausa Akureyringa í leik sem líktist æfingaleik fyrir Val. Selfoss og ÍBV gerðu jafntefli í Suðurlandsslagnum á meðan Mosfellingar unnu sinn fyrsta sigur. Á meðan eru FH-ingar í fallsæti enn í leit af sínum fyrsta sigri.
    Sérfræðingurinn birti topp 5 lista yfir leikmenn sem verða að gera betur en það sem þeir hafa sýnt í fyrstu leikjum tímabilsins og þá var einnig rætt um hitamál í Grill66-deildinni.
    1 hr 26 min
  • Seinni Bylgjan: Bjarki Már svarar spurningum af Twitter
    Í hlaðvarpi Seinni Bylgjunnar þessa vikuna er landsliðsmaðurinn Bjarki Már Elísson á línunni frá Ungverjalandi. Hann fer um víðan völl í viðtalinu og talar um nýja liðið Veszprém, landsliðið og HM í handbolta sem fer fram í janúar á næsta ári. Ásgeir Örn og Stefán Árni fara yfir landsliðshópinn sem Guðmundur Guðmundsson valdi í gær og hita einnig upp fyrir 4.umferðina í Olís-deild karla.
    52 min
  • Lið í mótun, Gróttugrýla í Garðabænum og klukkan kláraði Mosfellinga
    Arnar Daði Arnarsson ásamt súkkulaðistrákunum, Styrmi Snickers og Benedikt Bounty gerðu upp 3. umferð Olís-deildar karla í þessum þætti. Í lok þáttarins kom síðan Andri Már Eggertsson, einn af sérfræðingum Handkastsins um Grill66-deildina og fór yfir stöðu mála þar en deildin hófst með látum í gærkvöldi.
    Olís-deildin fer rosalega af stað og eru sögulínur í nánast hverri einustu viðureign hingað til.
    Haukar mættu aftur til leiks eftir vesen í Breiðholtinu á meðan Breiðhyltingar mættu ekki til Eyja en Bjarni Fritz var þó jákvæður að vanda. Stjarnan getur ekki unnið Gróttu á Nesinu og klukkuvandræðin í Úlfarsárdal höfðu meiri áhrif á Aftureldingu heldur en Framara. FH er lið í mótun og Harðverjar þurfa að taka skotæfingu helst alla virka daga og meira til.
    1 hr 29 min
  • Seinni Bylgjan: Umboðsmaður Íslands með um 60 skjólstæðinga
    Í hlaðvarpi Seinni Bylgjunnar fengu þeir Stefán Árni Pálsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson umboðsmanninn Arnar Freyr Theodórsson í heimsókn. Í þættinum er farið yfir víðan völl og fá hlustendur innsýn í harðan heim samninga í handboltanum. Einnig var hitað upp fyrir 3.umferðina í Olís-deild karla og hvað íslensku handboltamennirnir gerðu erlendis í þessari viku.
    32 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.