Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Orri óstöðvandi á línunni, háspenna-lífshætta og ótrúlegar þolkröfur dómara
    Sérfræðingurinn fékk þá Theodór Inga Pálmason og Ásgeir Jónsson til að fara yfir þá leiki sem búnir eru í 2. umferð Olís-deild karla.
    Við fengum allt sem hægt er að fá í þessari umferð. Háspenna lífshætta, ótrúlegustu úrslit í manna minnum og nýtt lið í efstu deild í fyrsta skipti.
    Bjarni Fritzson þjálfari ÍR var í símaviðtali í upphafi þáttar og í lok þáttar ræddu strákarnir um ótrúlegar þolkröfur dómara fyrir tímabilið sem einhverjir myndu líkja við leikþátt.
    1 hr 27 min
  • KA mætir til leiks án þjálfara og búninga á meðan Stjarnan er með best mannaða lið deildarinnar
    Olís-deild karla er farin af stað og nú er komið að fyrsta uppgjörsþætti Handkastsins.
    Andri Berg Haraldsson og Jóhann Ingi Guðmundsson voru gestir Handkastsins ásamt Sérfræðingnum, Arnari Daði Arnarssyni.
    Afturelding voru hársbreidd frá því að ná í óvæntan punkt gegn lang besta liði landsins. Það er þungt yfir á Selfossi og ekki er bjartara yfir fyrir norðan sem mætti til leiks í æfingabolunum og án þjálfara.
    Stjarnan vann besta sigur umferðarinnar í Kaplakrikanum og líta gríðarlega vel út í upphafi móts. Gróttan vann að lokum sannfærandi sigur gegn nýliðum ÍR.
    1 hr 12 min
  • Handkastið opinberar spá sína fyrir Olís-deild karla
    Handkastið opinberar spá sína fyrir Olís-deild karla í þættinum.
    Þríeykið var á sínum stað auk þess sem góðvinur þáttarins, Árni Stefán Guðjónsson mætti og fóru þeir yfir öll liðin í deildinni auk þess að ræða aðeins fjölda útlendinga í deildinni í lok þáttar.
    1 hr 30 min
  • Hand­kastið - Topp 5 listar og Greiningar­horn Gaupa
    Í öðrum þætti Handkastsins fóru Sérfræðingar Seinni bylgjunnar, Arnar Daði Arnarsson og Þorgrímur Smári Ólafsson ásamt þáttastjórnanda Seinni bylgjunnar, Stefáni Árna Pálssyni yfir topp 5 lista sem þeir bjuggu til. Í lok þáttarins kom síðan Guðjón Guðmundsson, Afi Gaupi og fór aðeins yfir þau lið sem hann telur að verði í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn og meira til.
    1 hr 30 min
  • Handkastið snýr aftur - Ótímabær spá
    Eftir tveggja ára „hlé“ snýr Handkastið aftur og ætlar að vera með hlustendum í allan vetur. Í þessum fyrsta þætti fer þríeykið í gegnum félagaskiptagluggann í sumar og fer yfir hvert lið í Olís-deild karla. Á sama tíma opinbera þeir sína ótímabæra spá fyrir timabilið.
    1 hr 43 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.