Handkastið

Handkastið

By VísirSportsFootball
Download on the App Store

Handkastið episodes

  • Oddaleikur baby, engan fu.... dómaraskandal og nýtt Íslandsmet
    Þríeykið var mætt í Handkastið að þessu sinni. Sérfræðingurinn, Ponzan og Snickers-ið. Farið var yfir stóra dómaramálið í þriðja leik Aftureldingar og Hauka, fjórða leik liðanna sem var í dag, rætt um komandi oddaleik og í lok þáttar var Gunnar Magnússon þjálfari Aftureldingar í símaviðtali ný kominn af Kúmen Mathöll. Nýtt Íslandsmet var slegið í El grande í þættinum.
    1 hr 19 min
  • Mikalonis og Dolli komnir í sumarfrí og lestarslys í hægri endursýningu í Eyjum
    Sérfræðingurinn fékk Herra Mosó, Ásgeir Jónsson til sín og fóru þeir félagar yfir báða leikina í 2. umferð undanúrslitanna um Íslandsmeistaratitilinn. Teddi Ponza var á línunni og fór yfir atburðina í Vestmannaeyjum og þá kom Tómas Steindórsson í heimsókn og fór yfir sviðið. Rætt var um oddaleik Víkings og Fjölnis í umspilinu um sæti í Olís-deildinni og Hanna Guðrún Stefánsdóttir var til umræðu en hún hefur lagt skónna á hilluna eftir 28 ár í meistaraflokki.
    1 hr 11 min
  • Lygileg endurkoma Blæs, ungir nýliðar FH-inga lentu á Heimakletti og verður Erlingur aðstoðarlandsliðsþjálfari?
    Sérfræðingurinn fékk þá Styrmi Sigurðsson og Benedikt Grétarsson til sín til að fara yfir 1.umferðina í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Farið var síðan yfir félagaskipti undanfarna daga og slúðurmola. Í lok þáttar hringdi Sérfræðingurinn í Sverri Eyjólfsson þjálfara Fjölnis sem er á leið í oddaleik um sæti í Olís-deildinni á næsta ári.
    1 hr 16 min
  • Kvennakastið: Þáttur 90
    Stjörnukonurnar Inga Fríða Tryggvadóttir og Anna Bryndís Blöndal mættu í spjall og hafa þær tröllatrú á að sínar konur verði meistarar í ár. Silla fór með þeim yfir tímabilið og úrslitakeppnina.
    47 min
  • Snorri Steinn líklegastur, FH-Haukar í úrslitum og ómögulegt að koma breytingum í gegn
    Sérfræðingurinn fékk enga sófa-sérfræðinga til sín að þessu sinni. Fyrrum landsliðs- og atvinumennirnir Bjarni Fritzson þjálfari ÍR og Logi Geirsson sérfræðingur Seinni bylgjunnar voru gestir Sérfræðingsins. Farið var yfir landsliðsmálin, hitað upp fyrir undanúrslitin og þá var deildarfyrirkomulagið rætt en ársþing HSÍ fór fram um helgina þar sem allar tillögur um breytingar á deildarfyrirkomulaginu voru felldar.
    1 hr 16 min
  • Kvennakastið: Ragnar Hermannson spáir í spilin
    Ragnar Hermannsson er gestur Kvennakastsins að þessu sinni. Silla spurði hann spjörunum út og stóð helst upp úr afhverju hann hætti með Haukaliðið, mun Díana verða næsti þjálfari Haukaliðsins og hvaða lið komast upp úr undanúrslitunum
    54 min
  • Lausn í sjónmáli og Snorri Steinn fer yfir tímabilið
    Í þættinum er rætt við Róbert Geir Gíslason framkvæmdastjóra HSÍ um samningamálin um sjónvarpsréttinn fyrir Olís-deildir karla og kvenna sem hefur verið til umræðu í síðustu þáttum. Í lokþáttar er síðan viðtal við Snorra Stein Guðjónsson þjálfara Vals sem fer yfir tímabilið í viðtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur.
    41 min
  • x Óli stef
    Sérfræðingurinn og Teddi Ponza hringdu til Þýskalands og spjölluðu við Óla Stef um landsliðsþjálfaramálin, Arnór Snæ og að lokum ræddum við um Boris Bjarna Akbachev heitinn. Blessuð sé minning hans.
    54 min

About Handkastið

From the publisher's feed

Handboltahlaðvarp þar sem farið er yfir Olís deild karla vikulega. Umsjónarmaður hlaðvarpsins er Arnar Daði Arnarsson.