Gestur þáttarins að þessu sinni var örvhenta undrið úr Safamýrinni, Jóhann Gunnar Einarsson sérfræðingur Seinni Bylgjunnar.
Í þættinum fjölluðu strákarnir um leiki helgarinnar í Olís-deild karla, en nú er Olís-deildin komin í stutt landsleikjafrí.
Í lok þáttarins skilaði Jóhann Gunnar síðan heimavinnunni sinni þegar hann fór á félagaskiptamarkaðinn fyrir öll félögin í Olís-deild karla.
- Slök FRAMmistaða í Safamýrinni
- Mosfellingar með sigur í mykjuhaugnum að Hlíðarenda
- Björgvin Hólmgeirsson mætti til leiks í jafntefli ÍR fyrir norðan
- Besta lið landsins vann toppslaginn
- The Fannar Friðgeirsson show fyrir norðan
- Anton Gylfi Pálsson dæmdi þrjá leiki á sólarhring
- RúnarsKára-hornið