Blaðamaður Karfan.is var fyrir vestan í körfuboltabúðum Vestra og tók nokkur stutt og laggóð viðtöl við þjálfara og leikmenn sem voru þar. Að þessu sinni fékkst formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, til að mæta í stutt viðtal. Við ræddum Vestra körfuboltabúðirnar og sumarstarf KKÍ ásamt yngri landsliðaverkefni (og verkefni A-landsliðanna) í sumar. Að lokum ræddum við vöxt körfubolta á Íslandi og hvert körfuboltinn er að fara. Hvað myndi Hannes gera ef að KKÍ hefði fleira starfsfólk? Hvað er að frétta af þjálfara- og dómarastéttinni og hvernig styður KKÍ við þau? Umsjón: Helgi Hrafn Ólafsson00:30 – Körfuboltabúðir Vestra og formaður KKÍ.04:30 – Tvær stærstu körfuboltabúðir Íslands sömu vikuna.07:00 – Sumarstarf KKÍ: afreksbúðir og úrvalsbúðir KKÍ. 09:45 – Yngri landsliðin og verkefni þeirra í sumar.12:10 – Mótahaldið næsta vetur, nokkrar breytingar.15:30 – Er hellingur að gera á skrifstofu KKÍ allt árið?17:40 – Hvert stefnir körfuboltinn á Íslandi?19:55 – KKÍ samanborið við önnur körfuknattleikssambönd úti í heimi.23:40 – Hvað yrði næsta framfaraskref hjá KKÍ ef að tækifærið byðist?25:30 – Dómaramál rædd.29:55 – Lokaskilaboð Hannesar út í sumarið fyrir efnilega leikmenn og þjálfara.