Hátalarinn er uppveðraður eftir tónleika Gautborgarsinfóníunnar á dögunum.
Þess vegna er tónlist eftir Jean Sibelius ofarlega í hátalaraboxinu þessa dagana.
Jóel Pálsson ræðir um nýja plötu sína - Dagar koma, sem sýnir á saxófónleikaranum nýja hlið. Hann hefur ekki samið mikið af sönglögum fyrr en nú.
Arnljótur Sigurðsson kemur í heimsókn með nokkur sýnishorn úr sínu tónlistarsafni.
Kjallarmúsík og heimspekilegar hringekjupælingar koma þar við sögu.