Gestur þáttarins er Karl Olgeirsson píanóleikari og söngvasmiður. Hann gefur út í dag nýja plötu með fjórtán nýjum söngdönsum sem einnig koma út prentaðir á bók.
Karl segir frá því hvað drífur hann í tónlistinni, áhrifavöldum og ýmsu fleiru.
Tónlistin er af nýju plötunni og úr smiðju ýmissa þeirra sem koma til tals í þættinum.