Tryggvi Hübner gítarleikari og Lárus H Grímsson hljómborðsleikari ræða um hljómsveitina Eik sem hefur starfað síðan í við byrjun áttunda áratugarins og spilar á næstunni, í fyrsta sinn opinberlega, titilverk plötunnar ,,Hríslan og straumurinn“, sem kom út 1977.
Einnig er rætt við Magnús Trygvason Elíassen, Tuma Árnason og Albert Finnbogason um plötuna ,,Allt er ómælið“, sem var að koma út.