Hátalarinn heimsækir Hafnarfjarðarkirkju og ræðir við Guðmund Sigurðsson organista og kórstjóra. Hann hefur nýverið spilað inn íslensk og erlend verk á plötuna Haf, en á henni hljóma tvö orgel kirkjunnar, sem eru hvort um sig fulltrúar mismunandi tíma tónlistarinnar.
Meðal höfunda verkanna eru fyrsti organisti Hafnarfjarðarkirkju - Friðrik Bjarnason, Hugi Guðmundsson, Jóhann Johannsson og Smári Ólason. Ekki má heldur gleyma Jóhanni Pachelbel, Jóhanni Sebastían Bach og George Shearing, sem allir koma við sögu á umræddri plötu.
Þá er líka skotið inn einu lagi með húskór Hafnarfjarðarkirkju - Barbörukórnum.
Guðmundur ræðir líka starf organistans og hvernig það hefur breyst í tímans rás.
Tónlist:
Melodía í As dúr - Friðrik Bjarnason
Toccata í d moll BWV 538 - J S Bach
Prelúdía í e moll - Friðrik Bjarnason
Haf - Hugi Guðmundsson
Glíma - Jóhann Jóhannsson
Ég byrja reisu mína-Hallgrímur Pétursson/Ísl þjóðlag- Barbörukórinn
Was Gott tut, das ist wohlgetan-Johann Pachelbel
Greinir Jesús um græna tréð - Smári Ólason