Hátalarinn kemur sér fyrir í leðursófanum í Lucky Records og spjallar við tónlistarfólk og innanbúðarmannskap þar á bæ.
Viðmælendur eru Ingvar Geirsson, Jóhannes Birgir Pálmason, Áskell Másson, Tómas R Einarsson, Sóley Stefánsdóttir og Samúel Jón Samúelsson sem á einmitt afmæli í dag.
Það er eitt og annað sem ber á góma. Tilurð og dreifing tónlistarinnar og hvaðeina sem snýr að lífi og starfi þeirra sem gefa sig tónlistinni á vald.