Eðvarð Lárusson gítarleikari spjallar um uppvaxtarár sín á Akranesi, fyrstu skrefin í tónlistinni og músíkina sem hafði áhrif á hann.
Eðvarð var bæjarlistamaður Akraness síðastliðið ár og hélt tónleika í Gamla Kaupfélaginu á Akranesi við lok þess tímabils, tónleika sem Rás 1 hljóðritaði og sendi út.
Í þessum þætti hljóma sýnishorn af ýmsu fleiru sem Eðvarð hefur snert á, auk tóndæma um áhrifavalda á gítarleik hans.