Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 149 - General Meryl
    Ævorman og Hulkleikur vígja nýja aðstöðu í Hefnendaturninum með tuði um finnskar/írskar/íslenskar kveðjur, áfengiverslanir og barnaheimili í Enterprise, Berry-kisuna vs Leto-jókerinn og að lokum telja þeir upp besta sjónvarp 2017
    Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Resistance is futile.
    1 hr 59 min
  • Hefnendurnir 147 - StarWarsHolidaySpecial
    Hefnendur eru á fullu við að borða alltof mikið af reyktu svínakjöti, opna gjafir og drekka jólaöl til að taka upp venjulegan þátt. Þess vegna ætla þeir að birta í staðinn áður óútgefna upptöku frá því í fyrra.
    The Star Wars Holiday Special er líklega ein versta mynd allra tíma. Mögulega sú versta. Hún er allavega langversta Star Warsið. Þess vegna ákváðu Hefnendur að horfa á lengstu þekktu útgáfu af myndinni og tala yfir hana. Gera svona Commentary. Með Lóu Hlín (Lóbó) Hjálmtýsdóttur.
    2 hr 5 min
  • Hefnendurnir 146 - Bangsalundar V Kristalsrefir: Dawn of Nerdrage
    Hefnendárinu lýkur senn og því er viðeigandi að hetjurnar okkar líti um öxl á allt það stærsta sem hefur gengið á, í einum feitum áramótaannál! Þar verður imprað á öllu frá tortímingu og trekki, krípum og myrkraheimum og hæfilegum skammti af undrakonum og gömlum körlum að lesa vitlaus umslög. Að auki fer fram ítarleg umfjöllun um nýjasta kafla stjörnustríðsbálksins og örlög hinsta væringjans. Always.
    2 hr 8 min
  • Hefnendurnir 145 - Chrismas Special
    Hulli og Ævar tala um afar spennandi hluti eins og afar mikla ást Hulla á Ævari, afar spennandi prump, það sem Grant Morrison þykir afar gaman að horfa á, afar slæma skinkusamloku, afar óhugnanlega sólmyrkva og afar góðhjartaðar alvöru ofurhetjur.
    1 hr 14 min
  • Hefnendurnir 144 - Í myrkum bjánafjöllum
    Hetjurnar okkar koma seint til leiks þessa vikuna en bjóða upp á tregafulla umræðu um endalok hins myrka alheims, reffilegan refsanda, stjörnustæla Tarantino og líka hvort það sé í lagi að vera leiðinlegur ef maður er að gera list.
    1 hr 40 min
  • Hefnendurnir 143 - M-orðið
    Ævar og Hulli ræða samskiptaleiðir íslenskra dægurgoða, poppkúltúrreferensa framtíðarinnar, muninn á stroke og pool, misskilda mömmufordóma, dónakalla og ljóta brandara.
    1 hr 47 min
  • Hefnendurnir 142 - Gotham of the rings
    Hetjurnar okkar prúðu henda í umræðuveislu um tilvistarkreppu tölvutengja, tilvistarkreppu Hringadróttinssögu, tilvistarkreppu Batmans, tilvistarkreppu treilara og tísera, tilvistarkreppu vídeóleigunnar og tilvistarkreppu flokkanna á kvikmyndum og sjónvarpi. Sartre hvað? *Klíng*
    1 hr 47 min
  • Hefnendurnir 141 -Farðu Louie! Við erum að reyna að tala um Viggó Viðutan!
    Í nýjasta þætti Hefnenda ræða Hulkleikur og Ævorman um mögulegan stjörnuþríleik, dévítans Disneyvæðinguna, óskalistann sinn í myndasögusjónvarpi og ofurkonu að sparka í karlpung. Síðan þarf að ræða aðeins alvarlegri mál á alvarlegri nótum í nýja dagskrárliðnum Æi fokk, seriously? Þú líka?! Afhverju? Dísis fokking kræst hvað er að?!
    1 hr 17 min
  • Hefnendurnir 140 - Rotin Raddbönd (Live)
    Ævarúlfurinn og Hullvítið setjast á TwinPeaks-esque sviðið í hryllingsholunni Húrra og hljóðrita Live bloodcast fyrir framan áhorfendur sem eru fleiri en puttahnífar Freddys en færri en endurkomur Jasons. Þeir ræða byssuleysi grímuklæddra morðingja, sjálfstæð vélmenni og réttdræpar nasistazombíur. Ævar reynir að tala um örlög Corey Feldman en Hulla finnst það of hryllilegt fyrir þetta hryllings-special Hefnenda!
    1 hr 20 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir