Ævar mætir eldsnemma í Hullbunkerinn og þeir ræða lélegustu endurgerð ársins, sumé kosningarnar og stórasta land í heimi, sumsé Asgard (Ekki Ásgarð því það er munur á Asgard og Ásgarði). Svo reyna þeir að fatta hvort 2049 sé klámvætt eða feminískt ár og svo koma auglýsingar. Og hvílíkar auglýsingar! Og meira. Ágætur þáttur sko.
Hulli er með of bilaðan heila til að podcasta en Ævar kveikir samt á upptökutækinu og þeir tala um bókasafnsbiturð skrípasöguskálds, skyggn augu með heyrn, rasisma og hvernig kvikasilfur getur bjargað heiminum.
Hulkleikur er með flensu og Ævorman kemur í heimsókn til að hressa hann við með rabbi um tilgangsleysi slagorðagríns, öfugþýðingar og andstöðurangstæðu, en líka aðeins um alla þessa káfandi kúkalabba í Hollívúdd.
Hulkleikur yfirhefnir Andreu Björk; Hönnuð, leikstjóra, animator og almennan flippara um glyðrulega fugla í Lumbruskógi, foreldrakynlíf og fimmta frumefnið.
Hefnendurnir babbla um danska hönnun í geimnum, stuðboltastelpu með mjaðmir, legsteinaletur og bestu kóngaræmurnar áður en þeir fara í spoileriffic greiningu á mömmumyndinni þarna sem er að gera allt vitlaust.
Hulkleikur og ÆvorMan rökræða um allt sem skiptir máli. Þar á meðal Emmy verðlaunin, Scorsese Jókerinn, fráfallinn költ karakter, hrædda karlmenn í kvikmyndahúsum og margt fleira. Allt mjög marktækt og vestfirskt.
Hulkleikur og ÆvorMan skeggræða öryrkja-arkítektúr, 11/9, Del Toro prumpið, list í list, ítölsk kvennamorð, of ungan gamm og venjulegheit Howards, skálandi í vatni með útsýni yfir hallargarð ÆvorMans.
Hulkleikur og ÆvorMan taka þátt í umræðunni um umræðuna en snúa sér að miklvægari málefnum eins og tölvuleikja anime áNetflix, vaktmenn DC heimsins og hvað Hulli glápti á í góða veðrinu.
Hulkleikur og ÆvorMan tala um ófullnægjandi staðgengla mútanta, minnast fráfallina grínista, hryllingskokka og borgartraðkara og vangavelta hvað sé bestverst og hvað sé verstbest.