Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 119 - Brúna Eldingin
    Hulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!
    1 hr 7 min
  • Hefnendurnir 118 - Gwyneth gufan
    Hulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.
    1 hr 13 min
  • Hefnendurnir 117 - Dottið upp
    Hugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.
    1 hr 8 min
  • Hefnendurnir 116 - Konráðs Saga Barbara
    Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.
    1 hr 14 min
  • Hefnendurnir 115 - Frussuprumpið

    Sökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járnhnefa.

    50 min
  • Hefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnað
    Hugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.
    1 hr 14 min
  • Hefnendurnir 113 - BuffyLove Soldiers
    Huffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.
    1 hr 15 min
  • Hefnendurnir 112 - Game Over, Man!
    Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.
    1 hr 13 min
  • Hefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagið
    Ævor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.
    1 hr 14 min
  • Hefnendurnir 110 - Hulli 4-ævar
    Hulli og Ævar fara í sjálfhverfasta trúnó allra tíma og tala einungis um Hulla og Ævar. Ævar yfirheyrir Hulla um Hulla og Hulli yfirheyrir Ævar um Ævar. Æ var það ekki? Hull yeah!
    1 hr 9 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir