Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 109 - Ben Off-leck… heh heh… ekki?
    Drengirnir dágóðu dútla við hvorn annan í drykklanga stund og þræta um hvort er betra, meyja eða ljón? Hvor sé verri, Batman Forever eða Batman & Robin? Hvor er meira sexist, myndasögubransinn eða tískubransinn? Þetta og margt fleira í Hebb! Nenn! Dumm!
    1 hr 12 min
  • Hefnendurnir 108 - Doktor hver nú?
    Krútturassarnir fá Sandrés Önd í heimsókn og þau spyrja hvort annað spurninga eins og: Hvernig fljúga risaskjaldbökur? Afhverju hunsar akademían mútanta? Hver verður næsti doktor? Og í alvöru, hvað er svona gott við La La Land? Ég meina í alvöru? HVAÐ?! Ó vorum við búnir að tala um þetta?
    1 hr 32 min
  • Hefnendurnir 107 - La La Rant
    Hullsubrauðið og Ævarosturinn ræða ljósmyndir af limum, skilning á skaupinu og pönkleysi Potusar áður en þeir rökræða hina ultimate spurningu: hvort er betra, risaeðlur eða dans?
    1 hr 12 min
  • Hefnendurnir 102 - Koss Kapteinsins
    Til að fagna því að uppáhaldsbúðin þeirra í heiminum, Nexus, er nýr styrktaraðili Hefnendanna rifja Hulkleikur og Ævorman upp Nexus sýningar á árinu, tala aðeins um trailera og vafra síðan yfir á jarðsprengjusvæði ofursamkynhneigðar og ástir á stríðslínum á sinn klunnalega en einlæga máta.
    1 hr 43 min
  • Hefnendurnir 101 - Resurrection
    Strákarnir snúa aftur til að verma skammdegishjörtu jarðarbúa með léttu hjali um allskonar skemmtilegt dót. Hvaða dót? Nú til dæmis nútímanasista, hina stöðugu baráttu óreiðu og skipulags, hvað Dr. Strange er flott mynd og svo lesa þeir langan lista um sci-fi þætti. Er það ekki bara fínt? Jú.
    1 hr 27 min
  • Hefnendurnir 100 - Hefnendirinn - The Death Of Hefnendurnir
    Í tilefni af sínum hundraðasta þætti ætla Hefnendur að gera það sem þeir gera best… tala… bara það… tala… um allskonar… ekkert gimmick, engir dagskrárliðir, bara tveir hefnendur að tala um hluti. Tali tali tali. Í hundraðasta veldi. Knús og kram! Hulkleikur og Ævorman. Þormóður Dagsson sá um flutning á intróinu að þessu sinni.
    1 hr 26 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir