Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 99 - Réttarhöldin yfir Hefnendunum
    Réttarhöld eru haldin yfir hetjunum okkar þar sem Ævorman og Hulkleikur þurfa að verja sig gegn ásökunum saksóknarans Erik The Viking og svara fyrir glæpi sína gegn jarðarbúum. Allt er lagt að veði, njósnir, feðraveldið, hár og hunsun í æsispennandi réttardrama og nítugasta og níunda þætti Hefnendanna.
    1 hr 34 min
  • Hefnendurnir 98 - Trek Wars (Live! á Húrra)
    Hefnendurnir stigu upp á svið á Húrra um daginn ásamt Fílalagsbræðrum og fluttu þátt fyrir framan “live studio audience”. Sú taumlausa gleði var tekin upp og nú geta jarðarbúar hlustað á Hulkleik og Ævorman velta fyrir sér verðleikum Jobsanna, hvað Hulli og pabbi hans horfa á saman á kvöldin; og hvort vinnur í slag, Star Trek eða Star Wars? Njótið heil!
    1 hr 2 min
  • Hefnendurnir 97 - Eins og eldgömul sápa
    Eftir hressandi hundasund í Dauðalauginni pæla Hullinn og Ævarinn í pésé húmor, Stebba steik, nýjum Refsara og hetjunum í sviðsljósinu, áður en þeir skella sér í eitt verulega feitt maraþonáhvaðertuaðglápa.
    1 hr 27 min
  • Hefnendurnir 96 - Rödd Rudds
    Hefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.
    1 hr 20 min
  • Hefnendurnir 94 - Ógn Og Scheving
    ÆvorMan er upptekinn við að bjarga heiminum Þannig að Hulkleikur fær Lobo Hjálmtýsdóttur til að halda rassafari hans volgu á meðan. Þau ræða um gagnsleysi giftinga, andlát Alans, orðaleiki Arnolds og einelti gegn elítunni í þessum athyglisverða og athyglislausa þætti.
    1 hr 37 min
  • Hefnendurnir 90 - Það var svo sem auðvitað!
    Gætið ykkar! Nú byrja Hefnendurnir! Í dag fjalla þeir um hvað það er erfitt að vera frægur, bera saman nasista og daleka, óska sér fleiri jólagjafa frá uppáhaldsbúðinni sinni Nexus – áður en þeir halda á vit ævintýranna með epísku spjalli við sveppagreifann Stefán Pálsson um Sval og Val.
    1 hr 22 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir