Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.
Hulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!
Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið.
Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!
Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!
Hulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.