
Sign up to save your podcasts
Or


SÖKUM TÆKNILEGRA ÖRÐUGLEIKA er enginn nýr Hefnendaþáttur í dag!!! Til að bæta ykkur það upp ætlum við að pósta sérvöldum þætti að Patreon síðunni okkar. Það er þátturinn um Morbius. Við biðjumst afsökunar og lofum glænýju hefni í næstu viku. Koss.
Hefnendurnir hafa áhyggjur af Tick ruglingi, átta sig á aldri iMax, skipta sér af Skerjagarðsdrama og syrgja Sam.
Hefnendurnir rannsaka mútanta Íslandssögunnar, rugla saman Carpenter og Gomez, spá í hrukkur Ali G og láta sig dreyma um vélvini framtíðarinnar.
Strákarnir ræða um Helsinki syndrómið, áhrifavaldarassa, píkuhallir, nornahreima, gervi-wonka, endaleysuframhöld og ofurstelpur.
Ævar fer yfir helstu animationfréttirnar í okkar júniversi og Hulli bjargar Marvel Cinematic júniversi En hvorugir botna þeir neitt í quantum júniversi (Hey það er nú einu sinni júní(versi)).
Strákarnir spjalla um óþarft áframhald Austins, meltingarfæri hvals, nýjustu geimverumynd geimverumeistarans, íslenskar poppfötur og Arthúr Björgvin Bollason.
Ævar mikli og Hulli litli ræða um upphaf nördahaustsins, fráhvarf doktorsins, endurgerða sjóræningja, framhaldna fugla, klippta tittlinga og tik tok villinga.
Hulkleikur og Ævorman taka símafund yfir hafið um mandolínmanninn, falsaðan ofurhetjuhöfund, endurtekinn nýju-jórvíkurflótta, hnefaleikahæfileika útikatta og endalok strákanna.
Félagarnir voga sér í dýfuna, kýla í fötuna og fara gaumgæfilega yfir kvikmyndasumarið 2026.
From the publisher's feed