
Sign up to save your podcasts
Or


ÆvorMan og Hulkleikur halda uppá 200 þátta afmæli með jarðarbúum! Þeir ræða leðurblökur verkalýðsins, slaufuð sagnaskáld, gikkjagleði Hans Óla, partý á öðrum plánetum, sundhallarakyttur, disneydýrablöndur, þrífætta fimmtudaga, leiðinlegar ljósmyndadúkkur, greddu Svals, mennskar sjálfshjálpargeimverur, húðflúraða jólasveina, bennatvennur, sverð, sandala, seiðkarla og íþróttir.
Hetjurnar okkar jafna sig á spurningakeppnis-tráma, fara yfir best of lista sem einhver leikstjóri útí bæ gerði og undirbúa sig undir 200 þátta afmæli.
Hetjurnar okkar syrgja Udo og Larry, skrifa ímyndað bréf til Tarantino og spyrja hvorn annan ofurhetjuspjörunum úr.
Hulkleikur og Ævorman kryfja kveðju Indjána Jóns, brjálast yfir internetbrjáli, eru down with the Downton og mæla með morð-róbótum og róbóta-risaeðlum.
Hulli og Ævar baða sig í fortíðarþrá. Fyrst í fjarlægri VHS nostalgíu og svo í nýlegri gláps-upprifjun og komast að óvæntri niðurstöðu um besta marvel þáttinn.
From the publisher's feed