Hefnendurnir

Hefnendurnir

Download on the App Store

Hefnendurnir episodes

  • Hefnendurnir 190 - Átótjúnað bíósuss
    Ævormann býður Hullann velkominn frá plánetunni Ber-Lin yfir í Stark Tower, þar sem þeir taka fyrir mikilvægustu málefnin, nemlig: Battinson, Sjálfsmorðsliðana og annað désadæmi… og tala síðan aðeins um eina af dauðasyndum bíógláps: að tala meðan ÉG ER AÐ REYNA AÐ HORFA!
    1 hr 4 min
  • Hefnendurnir 189 - Tóm Knús
    Hetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
    1 hr 24 min
  • Hefnendurnir 188 - 28 dögum síðar
    Strákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
    59 min
  • Hefnendurnir 187 - Þegar allt lék í lyndí hopp
    Í þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
    45 min
  • Hefnendurnir 186 - Paradís lost
    Feigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
    1 hr 3 min
  • Hefnendurnir 185 - Haltá Ketti
    Ævorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
    59 min
  • Hefnendurnir 184 - Star Wars, maður
    Skywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
    48 min
  • Hefnendurnir 183 - Party like it's neunzehnhuntertneunundneunzig
    Hulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style!
    Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
    1 hr 43 min
  • Hefnendurnir 182 - Annie Lennox prófið
    Hul­k­leikur og ÆvorMan eiga fund í Gríms­son Tower og velta vöngum yfir ímynd­uðum bolta­leikjum í ódæmi­gerðu lög­reglu­ríki, velja topp 2 kvik­myndir sem batna við mute takk­ann og veðja uppá flott­ann kall.
    Hefn­end­urnir eru í boði Nex­us. Nex­us. Það er svo best sko.
    1 hr 25 min
  • Hefnendurnir 181 - Manhattan ójafnvægið
    Hulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
    1 hr 16 min

About Hefnendurnir

From the publisher's feed

Podcast by Hefnendurnir