
Sign up to save your podcasts
Or


Hefnendurnir taka heljarstökk í þróunarsögu sinni og kynna til sögunnar nýja áskrifatrmöguleika! Hverjir halda þeir að þeir séu? Stöð tvö árið 1986? But seriously, folks. Tékkið á Patreon.com/hefnendurnir ef þið viljið gerast Neðanjarðarbúar.
Ævar hristir af sér veiru og ræðir við Hulla sinn um mennskar puntsvínstennur, dvínun treksins og sjö kraftmiklar framhaldsmyndir.
Hulli er aleinn því Ævar er veikur. En ekki örvænta! Hann promptaði til sín gestastjórnanda og saman ræða þau heima og geima. Bæði kjötheima og sæbergeima.
Hulli og Ævar spyrja hvorn annan alveg heilar tvær til þrjár spurningar um Gremlins, bera saman sjálfleikandi hasarhetjur og minnast hins villta vísindasumars áttumiðjunnar áður en þeir gefa Blossa þau props sem hann á skilið.
Hetjurnar okkar hætta við gerast guðir og gerast maðkar í staðinn er þeir fabúlera um stiklur súpuskálarinnar, hrauna yfir hraunara, troða vampýrum í kynsegin stafrófið og tuða stefnulaust um rómantík.
Hefnendurnir hringhvolfa augunum yfir Herra Skepnu, velta vöngum yfir verkefnum Vin Diesels, hafa engin svör um hið rétta andlit Hobgoblins og syrgja bestu leikkonu í heimi.
Samdægurs síðasta þætti en samt viku síðar spjalla Hulli og Ævar enn frekar um stiklu Garps, spá í tilnefningar Óskars og syrgja mikilvægustu menningarstofnun mjóddarinnar.
Hetjurnar hringjast úr sitthvoru landshorninu og ræða bangera Webbers, illa lyktandi He-Man kalla, framhald Grænlands og grínskrínaða hobbita.
Hetjurnar okkar láta sig dreyma um útópískt rækjugúmbó, telja saman fjóra fræknustu fjarkana, melta möguleg marvelísk memberber og segja sjáumst við skrítnari hluti.
ÆvorMan og Hulkleikur veita bíómyndum og sjónvarpsþáttum síðasta árs virtustu ímynduðu bransaverðlaunin landsins.
From the publisher's feed